Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2002, Blaðsíða 50
50
Helqarblctö 33 "V
LAUGARDAGUR 14. DESEMBER 2002
Bílar
Kraftmesti
lúxusjeppinn
Kostir: Aksturseiginleikar, afl
Gallar: Afkastalítill regnskynjari
Allar götur síðan fréttist af áætlunum Porsche sport-
bílaframleiðandans um að smíða jeppa hefur varla mátt
opna bílablað án þess að fjallað væri að einhverju leyti
um hann. Skoðanir á hvort Porsche ætti nokkuð að vera
að skipta sér af þessum markaði voru skiptar og efa-
semdamenn margir. Allar hafa þessar raddir þó þagnað
eftir að Porsche bauð til reynsluaksturs á gripnum á
Spáni síðastliðnar vikur, en þar voru DV-bílar á dögun-
um.
Stærri en ætla mátti
Þegar bíllinn sást fyrst í eigin persónu varð undirrit-
aður strax hissa á hversu stór bíllinn var, miðað við
hvað ætla mátti af myndum. Ekki varð undrunin minni
þegar sest var upp í gripinn, enda plássið eins og í
miklu stærri jeppum. Hliðarrými er sérlega gott og far-
angursrými gleypir kynstrin öll af farangri. Staðalbún-
aðurinn var líka ekki af verri endanum og má þar með-
al annars nefna leðursæti, upplýsingaskjá og fleira.
Fyrri prófunardaginn rigndi eins og hellt væri úr fotu
og þá kom eini galli bílsins að mati undirritaðs i ljós, en
það var regnskyiyarinn sem réð engan veginn við úr-
hellið.
Jeppi á 250 km hraða
Báöum gerðum bílsins var reynsluekið á Spáni, bæði
Cayenne S og Turbo, og verður hér sagt frá Turbo biln-
um í þeirri von að það gefist tækifæri til að prófa S bíl-
inn hér á landi. Cayenne Turbo er mjög öflugur jeppi,
reyndar sá öflugasti af fjöldaframleiddum jeppum í dag
eða 450 hestöfl. Vélin er að grunninum til sú sama og i
S bílnum nema að þessi er með tveimur forþjöppum.
Aflið kemst vel til skila eins og búast mátti við af
Porsche enda þessi 2,3 tonna þungi bíll aðeins 5,6 sek-
úndur í hundraðið. Bíllinn er líka hraðskreiðari en
nokkur annar jeppi og hefur hámarkshraða upp á 266
km á klst. Við reyndum bílinn upp í 250 km hraða og
var það hrein unun að fylgjast með hvernig hann límd-
ist við veginn með meiri hraða, alveg eins og alvöru
sportbill. Hefði einhver sagt mér að ég ætti eftir að
keyra jeppa á þessum hraða er hætt við að maður hefði
hlegið að viðkomandi fyrir nokkrum mánuðum.
Læstur í bak og fyrir
Cayenne er jeppi í þeim skilningi að hann er búinn
millikassa sem hægt er að læsa og einnig læstu aftur-
drifi. Skiptingin milli fram- og afturdrifs er 62% að aft-
an og 38% að framan þannig að bíllinn leitast frekar við
að vera yfirstýrður enda er það með ráðum gert. Hann
er þó einrýmisbíll, líkt og Mitsubishi Pajero og er ekki
byggður á grind heldur fær styrk sinn frá yfírbygging-
unni. Afleiðingin er stífari bíll sem hentar vel við mal-
biksakstur en síður í torfærum, eða hvaö? Porsche af-
greiðir þetta á einfaldan en um leið sniðugan hátt. Bíll-
inn er búinn alvöru loftpúðafjöörun sem er staðalbún-
aður í Turbo bílnum og getur hún hækkað bílinn um
116 mm. Einnig er driflínan sérlega vel útfærð og hægt
að leika sér með ýmsar stillingar og læsingar eins og á
millikassa og afturdrifi. Auk þess er bíllinn búinn sér-
lega virkri spólvörn og samspO hennar og öflugrar vél-
arinnar er sérlega gott. Porsche hafði látið útbúa tor-
færubraut við hliðina á Jerez-kappakstursbrautinni og
þar var hægt að reyna bOinn í drullusvaði, djúpum hol-
um, pollum og forugum brekkum. Gilti einu hvað bíln-
um var boðið upp á og réð hann vel við allar torfærurn-
ar. Kannski var mesta hrósið það að aldrei sáum við
fastan bU í brautinni þrátt fyrir að þarna væru blaða-
menn þjóða sem vissu varla hvað jeppi væri.
Verðið kemur á óvart
Það kom undirrituðum ekki síður á óvart að heyra
hvað bOlinn á að kosta. S bíllinn mun kosta undir átta
miUjónum sem þýðir að hann mun keppa við bUa sem
lengi hafa verið vinsælir hérlendis eins og Range Rover
og Land Cruiser 100. Ekki hefur verið látið uppi hvað
Turbo bUlinn kemur tU með að kosta en hann verður ef-
laust talsvert dýrari. Þótt Porsche vUji ekki bera hann
saman við lúxusjeppa eins og VW Touareg og Volvo
XC90 verður ekki hjá því komist að nefna að þeir byrja
mun neðar í verði, eða á um 5,5 milijónir hvor. Taka
þarf þó inn í myndina að það eru bUar með mun
aflminni vélum og minni staðalbúnaði. -NG
PORSCHE CAYENNE TURBO
Vél:
Rúmtak:
4,5 lítra, V8 bensínvél, 2 forþjöppur
4511 rúmsentfmetrar
Ventlar:
32
Þjöppun:
9,5:1
Gírkassi:
6 þrepa, sjálfskiptur
UNDIRVAGN:
Fjöðrun framan:
Loftpúðar
Fjöðrun aftan:
Loftpúðar
Bremsur: Loftkældir diskar/diskar, ABS, EBD, PSM
Dekkjastærð:
255/55 R18
YTRI TOLUR:
Lengd/breidd/hæð:
4786/1928/1699 mm
Hjólahaf/veghæð:
2855/157-273 mm
Beygjuradíus:
11,6 metrar
INNRI TOLUR:
Farþegar m. ökumanni:
Fjöldi höfuðpúða/öryggispúða:
5/6
Farangursrými:
540-1770 lítrar
HAGKVÆMNI:
Eyðsla á 100 km:
15,7 lítrar
Eldsneytisgeymir:
100 lítrar
Ábyrgð/ryðvörn:
2/12 ár
Grunnverð:
Undir 8 milljónum kr.
Umboð:
Bílabúð Benna
Staðalbúnaður: 6 öryggispúðar, Bose fjölóma hljóð-
kerfi með 16 hátölurum, fjarstýrðar samlæsingar,
rafdrifnir, aðfellanlegir og upphitaðir speglar, regn-
skynjari, tvöföld, hitastýrð miðstöð með loftkæl-
ingu, spólvörn, skrikvörn, skriðstillir, stillanleg loft-
púðafjöðrun, leðursæti og innrétting, rafdrifin
framsæti og aðdráttarstýri, armpúði, leiðsögukerfi
og upplýsingaskjár, aksturstölva, fjarlægðar-
skynjarar að framan og aftan, sex 12V tengi, þoku-
Ijós, Xenon aðalljós með beygjugeisla, 18 tommu
SAMANBURÐARTÖLUR:
Hestöfl/sn.: 450/6000
Snúningsvægi/sn.: 620 Nm/2250-4750
Hröðun 0-100 km: 5,6 sek.
Hámarkshraði: j 266 km/klst.
Eigin þyngd: 2355 kg
Heildarþyngd: 3080 kg
o Pláss í aftursætum er gott eins og Benedikt Eyj-
ólfsson reynir hér.
© Fyrir miðju torfærubrautarinnar var leiksvæði
með drullupyttum.
© Öflug 4,5 lítra vélin er með tveimur forþjöpp-
um og bókstaflega þeytir bílnum áfram.
© Farangursrýmið er 540 lítrar með aftursætin í
hefðbundinni stöðu.
© Brekkurnar í torfærubrautinni voru skornar og
leirugar en þær fór Cayenne samt án vandræða.
© Mælaborðið er mjög fullkoinið í Cayenne. Tak-
ið eftir handfanginu báðum megin á miðjustokk
sem gott var að halda sér í í verstu torfærun-
um.