Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2002, Blaðsíða 41
LAUGARDAGU R l Ar. DESEMBER 2002
Helqarblað I3V
41
DV-myndir Sig. Jökull
DV-myndir E. Ól.
Jólasalatið, fagurrautt að lit, er
fært upp á fat þegar það hefur
staðið í skál í kæli í tvær vikur
eða svo. Þó er það ekki heilög
tímalengd því salatið er auðvit-
að vel ætt löngu fyrr.
Sigtryggur hefur harðsoðið egg
og skorið í báta sem líta vel út
á rauðu beði.
Hér er nostrað við skreyting-
una áður en rétturinn er bor-
inn á borð. Síldarréttir eru
mjög hentugir sem forréttir og
jafnan á að byrja á þeiin séu
þeir á hlaðborði.
Ljúfur Royal jólabjór
og Faxe lagerbjór
- er val Sigurðar Bemhöft hjá HOB-vín ehf.
Það er ómissandi að hafa gott öl innan seil-
ingar þegar síld er annars vegar og vist er að
margir gæða sér á síld þessa dagana þegar jóla-
hlaðborð og hvers konar upphitun fyrir jólahá-
tíðina er í algleymingi. Sigurður Berhöft hjá
HOB-heildverslun hefur á boðstólum mikið
gæðaöl frá Danmörku, Albani Julebryg, nefnd-
ur Albani Blaa Lys. Þetta ágæta öl hefur verið
á borðum danskra neytenda frá því 1959. Þetta
er kröftugur bjór en áfengisinnihald er 7%. En
eins og vænta má þegar danskur hjór er annars
vegar er bragðið milt. Jólabjórinn frá Albani
kemur nú á íslenskan markað í 5. sinn en ann-
að árið sem hann fæst undir nafninu Blaa Lys.
Áður hét hann Giraf Christmas. Þess má geta
að skáldið H.C. Andersen skrifaði um Albani
brugghúsið en það var stofnað í Óðinsvéum
1859.
En hér verður kynntur til sögunnar jólabjór
frá brugghúsi Ceres í Árósum, Royal X-Mas.
Þetta ágæta öl hefur verið á markaði í Dan-
mörku í 30 ár við miklar vinsældir. margir Is-
lendingar sem búsettir hafa v verið í Dan-
mörku um lengri eða skemmri tíma þekkja
þennan bjór ágætlega. bragðið á vel við jólin,
það er stemning í því, svolítil sæta með kar-
mellukeim. Liturinn er dökkleitur. Áfengis-
magnið er 5,6%. Þetta ágæta öl hentar eitt
og sér og með öllum hefðbundnum jólamat.
Royal X-mas kostar 159 krónur í ÁTVR.
Faxe er annað vel þekkt danskt
brugghús en þaðan kemur Faxe
Christmas. Þetta ágæta öl er reynd-
ar uppselt i verslunum ÁTVR en
unnendur góðs bjórs ættu að
leggja hann á minnið. Faxe er
annars eitt best þekkta ölmerki
Dana. Hið einstaka vatn í einkalind-
um Faxe, vatn sem hefur runnið í
gegn um kóralrif og þannig hreinsast
gerir þennan bjór að einum þeim besta
sem völ er á í flokki lagerbjóra. Hann
er afar ljúfur, ljósgylltur, en bragðið er
„mjótt og langt" með góðri endingu.
Hér eru notaðir bragðmiklir humlar
sem gefa bjórnum svona gott jafn-
vægi. Faxe er sá bjór sem mest er flutt
inn af í Þýskalandi og segir það sína
sögu. Faxe lagerbjór fæst í ÁTVR og
kostar 50 cl dós 159 krónur.
Umsjón
Haukur Lárus
Hauksson