Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2002, Blaðsíða 34
34
HgIqorblac) JOV
LAUGARDAGUR 14. DESEMBER 2002
Meira af því
sem mér
þykir
skemmtilegt
- segir Hera Hjartardóttir tónlistarmaður
Tónlistarmaðurinn Hera Hjartardóttir hefur vakið gríðar-
lega athygli á síðustu mánuðum, hún fór hringinn með
Bubba Morthens, syngur titillagið í Hafrnu og plata hennar
Not Your Type! hefur selst í rúmlega tvö þúsund eintökum.
Hún er tilnefnd til íslensku tónlistarverðlaunanna sem besta
söngkonan og efnilegasti nýliðinn. Megas lofar hana: „Hera
er komin til að vera og þeir sem ekki vilja missa af eigin lífi,
tilfmningum og mennsku gefa sér góðan séns er þeir byija
strax að fylgjast með ferðalaginu. Öll list sem einhvers er
virði dansar blinddans á hengiflugsbrún." Og hún hitaði upp
fyrir Nick Cave á tónleikum hans á Hótel íslandi íyrir
skömmu.
Hera er nítján ára og hefur gefið út þrjá diska, en aldurinn
er afstæður því eins og hún segir sjáif þá ræður líðanin
mestu um aldur manna.
Ævintýri líkast
Hera kom til landsins um miðjan ágúst síðastliöinn og hef-
ur verið í vinnu sleitulaust síðan. „Ég hef annaðhvort verið
í stúdíói eða að spila á tónleikum. Túrinn með Bubba var æð-
islegur, ég hef aldrei ferðast um ísland áður og fannst það æv-
intýri líkast. Það var alls staðar tekið vel á móti okkur og ég
hef ekki kynnst félagsheimilamenningunni áður.“ Hera seg-
ist aldrei hafa átt stóran bróður en nú viti hún hvemig það
sé að vera litla systir. „Það er búið að stríða mér mikið á
túmum og kalla mig litla Bubba og homsílið en Bubbi tók
mig undir sinn vemdarvæng og kenndi mér margt. Megas
hefur lika haft mikil áhrif á mig í gegnum tíðina og hjálpað
mér mikið.“
Að sögn viðstaddra hreifst Nick Cave svo af Hem að hann
fékk hjá henni áritaðan disk og sagði um leiö: You have a
beautiful voice. „Ég er mikill aðdáandi Caves og lagið For-
bidden Fmit er innblásið af Murder ballads þannig aö það
var mjög gaman að hita upp fyrir hann.“
Þóttíst vera Bubbi
„Ég fæddist i Reykjavík og ólst upp í vesturbænum þar til
ég var ellefu ára en þá fór ég með foreldrum mínum í tíu
mánaða frí til Nýja-Sjálands. Við urðum ástfangin af landinu
og ákváðum að flytja þangað nokkrum árum seinna. Þetta er
æðislegur staður til að alast upp á og vatnið þar er alveg eins
gott og hér.“
Hera segist hafa lært að lesa nótur áður en hún lærði að
lesa bókstafi. „Mamma, Dagný Emma Magnúsdóttir, vildi
ekki að ég lærði að lesa áður en ég byrjaði í skóla, hún var
hrædd um að mér myndi leiðast, þannig að hún sendi mig i
tónlistamám þar sem ég lærði að lesa nótur og spila á blokk-
flautu. Seinna langaði mig að læra á píanó en foreldrar mín-
ir treystu sér ekki í það eftir reynsluna með blokkflautuna,
það var aldrei friður á heimilinu. Mamma gaf mér því gítar
og ég man vel eftir því þegar ég sat fyrir framan spegU og
söng Stúlkan sem starir á hafið og þóttist vera Bubbi. Fyrsta
skiptið sem ég kom fram opinberlega var í Kaplakrika þegar
fjórar fimleikastúlkur dönsuðu við lag sem ég spilaði á klass-
ískan gítar
Lítíl stelpa að lesa ljóð fyrir rússnesltít sjómenn
Að sögn Heru byrjað hún að semja Ijóð ellefu ára. „í fyrstu
vom þau á íslensku en eftir að við fluttum út fór ég að semja
á ensku. Ég las fyrst upp ljóð á pöbb á Nýja-Sjálandi þegar ég
var fjórtán ára. Lítil stelpa að lesa ljóð fyrir rússneska sjó-
menn. í framhaldi af því fór ég að spOa undir textana á kab-
arettkvöldum sem gátu orðið ansi skrautleg því þar komu
fram magadansmeyjar, Elvis-eftirhermur og dragdrottningar.
Stundum átti ég það til að syngja Stál og hnifúr eins og bijál-
æðingur á pöbbnum og þá datt allt í dúnalogn því fólk hafði
ekki hugmynd um hvað var að gerast. Vinir foreldra minna
vom mjög hneykslaðir á því að þeir skyldu leyfa mér að
koma fram á pöbbnum en þetta var æðislegur skóli og
skemmtilegur tími.“
Textamir byggja á reynslu
Textamir á Not Your Type! em allir á ensku og óvenju
þroskaðir fyrir svo ungt skáld.
No. I’m not a riice girl no l’m not,
as great as you believe.
I haven’t been waitingfor mister right,
I’m not that easy to decieve.
ÐV-mvnd Sigurður Jökull
Hera Hjartardóttir tónlistarmaöur kont til landsins uni miðjan ágúst síðastliðinn og hefur verið í vinnu sleitu-
laust síðan. Hún hefur annaðhvort verið í stúdíói eða að spila á tónleikum. Hera er tilnefnd til íslensku tónlist-
arverðlaunanna sem besta söngkonan og efnilegasti nýliðinn.
Hera brosir feimnislega þegar hún er spurð hvemig text-
amir verða til. „Æ, þeir koma bara. Þegar lagið kemur, kem-
ur það í heild, lag og texti. Og stundum les ég þá ekki einu
sinni yfir. Textamir byggja allir á persónulegri reynslu,
stimdum er hún góð en stundum slæm. Ég byrjaði fremur
ung að lenda í ýmsum dæmum og var búin að fá nóg af næs
strákum. Stundum fjalla textamir um ástarsorg eða aðra lífs-
reynslu sem veitir innblástur." Hera segist hafa verið fimmt-
án ára þegar hún samdi titillagið á disknum. „Þá var ég búin
að ákveða að ég væri ekkert hrifin af næs strákum sem vom
uppfúllir af rembingsrómantík og færðu mér silfraðar gervi-
rósir, ohhhh. Ég er eins og svo margar aðrar stelpur, veik fyr-
ir óþekkum strákum og hef brennt mig á því, en það er líka
gott því ástarsorg getur verið mjög holl og „inspírandi". Hún
er besta leiðin til að fá mig til að tjá mig, ég sem mig frá leið-
inlegri lífsreynslu.
Lagið Chameleon Girl fjailar um tímabil í lífi mínu þegar
ég var mikið að reyna að breyta mér og í uppreisn. Mig lang-
aði að lita hárið á mér blátt en mamma vildi ekki leyfa mér
það, þannig að ég fór til vinar míns og litaði hárið þar, svaf
með litinn í hárinu og plastpoka yfir. Það var ógeðslegt þeg-
ar ég vaknaði og þá reyndi ég að þvo litinn úr með uppþvotta-
legi. Þannig gekk þetta lengi, hárið var gulgrænt, grátt, skær
appelsínugult og rautt eins og slökkvOiðsbíll alveg eins og
kameljón sem skiptir litum. Ég gerði þetta að sjálfsögðu fyr-
ir strák sem ég var bálskotin í en lærði að lokum að maður
á ekki að breyta sér fyrir aðra.
John fjallar um hræðilega reynslu sem ég lenti í sem ung-
lingur í skóla. John var samói, stór og góður strákur sem
sagði alltaf svo skemmtilega halló við mig á morgnana. Hann
steig á nagla og nokkrum dögum seinna var hann dáinn því
foreldrar hans trúðu því ekki að hægt væri að lækna hann og
lágu á bæn.“
Maybe heaven just wanted you home...
Maybe god, accidentally sent us an angel on earth...
„Lagið Suffer from You er byggt á gamalli ástarsorg en í I
Wanna Run er ég að syngja um strák sem mig langaði til að
losna við. Naughts and Crosses er sungið til fyrrverandi vin-
konu sem var að reyna að sofa hjá kærastanum mínum, ég
sá okkur sem tvær skákdrottningar. Sorglegasta lagið og jafii-
framt það nýjasta heitir Sleepyhead og fjailar um góðan vin
minn. Þremur vikum áður en ég fór frá Nýja-Sjálandi féll
hann í dá og nú tæpum fjórum mánuðum síðar er hann enn
í kóma og enginn veit hvað er að. Ég er að biðja hann um að
vakna.“
Hlutimir gerast liratt
Fyrsti diskurinn sem Hera gaf út heitir Homemade og kom
út í litlu upplagi á Nýja-Sjálandi 1999. „Ég var fimmtán ára
og ég vann hann með pabba, Hirti Kristinssyni. Salan gekk
satt best að segja ótrúlega vel og fólk er enn að biðja um
hann,“ segir Hera og hlær, „en hann er alveg búinn." Það eru
þjú lög af fyrsta disknum á Not Your Type! og nú eru þau orð-
in eins og ég vil hafa þau.“
Hera gaf út diskinn Not So Sweet þegar hún var sautján
ára. „Ég tók hann upp sjálf, pródúseraði og gaf út en ég fékk
til liðs við mig hljóðfæraleikara og seldi hann mest þar sem
ég var að spila. Diskurinn barst meira að segja tO íslands í
litlum skömmtiun. Baltasar Kormákur heyrði í mér í útvarp-
inu einhvem tíma þegar hann var á leiö út í bakarí til að
kaupa með morgunkaffinu. Það var verið að taka við mig
símaviðtal frá Nýja-Sjálandi, seint um kvöld þar en morgun
hér. Honum leist vel á lagið sem var spilað eftir viðtalið og
kom sér í samband við ömmu mína sem útvegaði honum
diskinn og í framhaldi af því spuröi hann hvort hann mætti
nota lagið Itchy Palms í kvikmyndinni Hafið.
Það hefur allt gerst svo hratt undanfarið að stundum er ég
hálfrugluð á þessu öllu saman. Ég var svo heppin að vera ung
þegar ég áttaði mig á því að mig langaði að helga líf mitt tón-
list. Ég er enn sama manneskjan en bara að gera meira að
því sem mér þykir skemmtilegast." -Kip