Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2002, Síða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2002, Síða 34
34 HgIqorblac) JOV LAUGARDAGUR 14. DESEMBER 2002 Meira af því sem mér þykir skemmtilegt - segir Hera Hjartardóttir tónlistarmaður Tónlistarmaðurinn Hera Hjartardóttir hefur vakið gríðar- lega athygli á síðustu mánuðum, hún fór hringinn með Bubba Morthens, syngur titillagið í Hafrnu og plata hennar Not Your Type! hefur selst í rúmlega tvö þúsund eintökum. Hún er tilnefnd til íslensku tónlistarverðlaunanna sem besta söngkonan og efnilegasti nýliðinn. Megas lofar hana: „Hera er komin til að vera og þeir sem ekki vilja missa af eigin lífi, tilfmningum og mennsku gefa sér góðan séns er þeir byija strax að fylgjast með ferðalaginu. Öll list sem einhvers er virði dansar blinddans á hengiflugsbrún." Og hún hitaði upp fyrir Nick Cave á tónleikum hans á Hótel íslandi íyrir skömmu. Hera er nítján ára og hefur gefið út þrjá diska, en aldurinn er afstæður því eins og hún segir sjáif þá ræður líðanin mestu um aldur manna. Ævintýri líkast Hera kom til landsins um miðjan ágúst síðastliöinn og hef- ur verið í vinnu sleitulaust síðan. „Ég hef annaðhvort verið í stúdíói eða að spila á tónleikum. Túrinn með Bubba var æð- islegur, ég hef aldrei ferðast um ísland áður og fannst það æv- intýri líkast. Það var alls staðar tekið vel á móti okkur og ég hef ekki kynnst félagsheimilamenningunni áður.“ Hera seg- ist aldrei hafa átt stóran bróður en nú viti hún hvemig það sé að vera litla systir. „Það er búið að stríða mér mikið á túmum og kalla mig litla Bubba og homsílið en Bubbi tók mig undir sinn vemdarvæng og kenndi mér margt. Megas hefur lika haft mikil áhrif á mig í gegnum tíðina og hjálpað mér mikið.“ Að sögn viðstaddra hreifst Nick Cave svo af Hem að hann fékk hjá henni áritaðan disk og sagði um leiö: You have a beautiful voice. „Ég er mikill aðdáandi Caves og lagið For- bidden Fmit er innblásið af Murder ballads þannig aö það var mjög gaman að hita upp fyrir hann.“ Þóttíst vera Bubbi „Ég fæddist i Reykjavík og ólst upp í vesturbænum þar til ég var ellefu ára en þá fór ég með foreldrum mínum í tíu mánaða frí til Nýja-Sjálands. Við urðum ástfangin af landinu og ákváðum að flytja þangað nokkrum árum seinna. Þetta er æðislegur staður til að alast upp á og vatnið þar er alveg eins gott og hér.“ Hera segist hafa lært að lesa nótur áður en hún lærði að lesa bókstafi. „Mamma, Dagný Emma Magnúsdóttir, vildi ekki að ég lærði að lesa áður en ég byrjaði í skóla, hún var hrædd um að mér myndi leiðast, þannig að hún sendi mig i tónlistamám þar sem ég lærði að lesa nótur og spila á blokk- flautu. Seinna langaði mig að læra á píanó en foreldrar mín- ir treystu sér ekki í það eftir reynsluna með blokkflautuna, það var aldrei friður á heimilinu. Mamma gaf mér því gítar og ég man vel eftir því þegar ég sat fyrir framan spegU og söng Stúlkan sem starir á hafið og þóttist vera Bubbi. Fyrsta skiptið sem ég kom fram opinberlega var í Kaplakrika þegar fjórar fimleikastúlkur dönsuðu við lag sem ég spilaði á klass- ískan gítar Lítíl stelpa að lesa ljóð fyrir rússnesltít sjómenn Að sögn Heru byrjað hún að semja Ijóð ellefu ára. „í fyrstu vom þau á íslensku en eftir að við fluttum út fór ég að semja á ensku. Ég las fyrst upp ljóð á pöbb á Nýja-Sjálandi þegar ég var fjórtán ára. Lítil stelpa að lesa ljóð fyrir rússneska sjó- menn. í framhaldi af því fór ég að spOa undir textana á kab- arettkvöldum sem gátu orðið ansi skrautleg því þar komu fram magadansmeyjar, Elvis-eftirhermur og dragdrottningar. Stundum átti ég það til að syngja Stál og hnifúr eins og bijál- æðingur á pöbbnum og þá datt allt í dúnalogn því fólk hafði ekki hugmynd um hvað var að gerast. Vinir foreldra minna vom mjög hneykslaðir á því að þeir skyldu leyfa mér að koma fram á pöbbnum en þetta var æðislegur skóli og skemmtilegur tími.“ Textamir byggja á reynslu Textamir á Not Your Type! em allir á ensku og óvenju þroskaðir fyrir svo ungt skáld. No. I’m not a riice girl no l’m not, as great as you believe. I haven’t been waitingfor mister right, I’m not that easy to decieve. ÐV-mvnd Sigurður Jökull Hera Hjartardóttir tónlistarmaöur kont til landsins uni miðjan ágúst síðastliðinn og hefur verið í vinnu sleitu- laust síðan. Hún hefur annaðhvort verið í stúdíói eða að spila á tónleikum. Hera er tilnefnd til íslensku tónlist- arverðlaunanna sem besta söngkonan og efnilegasti nýliðinn. Hera brosir feimnislega þegar hún er spurð hvemig text- amir verða til. „Æ, þeir koma bara. Þegar lagið kemur, kem- ur það í heild, lag og texti. Og stundum les ég þá ekki einu sinni yfir. Textamir byggja allir á persónulegri reynslu, stimdum er hún góð en stundum slæm. Ég byrjaði fremur ung að lenda í ýmsum dæmum og var búin að fá nóg af næs strákum. Stundum fjalla textamir um ástarsorg eða aðra lífs- reynslu sem veitir innblástur." Hera segist hafa verið fimmt- án ára þegar hún samdi titillagið á disknum. „Þá var ég búin að ákveða að ég væri ekkert hrifin af næs strákum sem vom uppfúllir af rembingsrómantík og færðu mér silfraðar gervi- rósir, ohhhh. Ég er eins og svo margar aðrar stelpur, veik fyr- ir óþekkum strákum og hef brennt mig á því, en það er líka gott því ástarsorg getur verið mjög holl og „inspírandi". Hún er besta leiðin til að fá mig til að tjá mig, ég sem mig frá leið- inlegri lífsreynslu. Lagið Chameleon Girl fjailar um tímabil í lífi mínu þegar ég var mikið að reyna að breyta mér og í uppreisn. Mig lang- aði að lita hárið á mér blátt en mamma vildi ekki leyfa mér það, þannig að ég fór til vinar míns og litaði hárið þar, svaf með litinn í hárinu og plastpoka yfir. Það var ógeðslegt þeg- ar ég vaknaði og þá reyndi ég að þvo litinn úr með uppþvotta- legi. Þannig gekk þetta lengi, hárið var gulgrænt, grátt, skær appelsínugult og rautt eins og slökkvOiðsbíll alveg eins og kameljón sem skiptir litum. Ég gerði þetta að sjálfsögðu fyr- ir strák sem ég var bálskotin í en lærði að lokum að maður á ekki að breyta sér fyrir aðra. John fjallar um hræðilega reynslu sem ég lenti í sem ung- lingur í skóla. John var samói, stór og góður strákur sem sagði alltaf svo skemmtilega halló við mig á morgnana. Hann steig á nagla og nokkrum dögum seinna var hann dáinn því foreldrar hans trúðu því ekki að hægt væri að lækna hann og lágu á bæn.“ Maybe heaven just wanted you home... Maybe god, accidentally sent us an angel on earth... „Lagið Suffer from You er byggt á gamalli ástarsorg en í I Wanna Run er ég að syngja um strák sem mig langaði til að losna við. Naughts and Crosses er sungið til fyrrverandi vin- konu sem var að reyna að sofa hjá kærastanum mínum, ég sá okkur sem tvær skákdrottningar. Sorglegasta lagið og jafii- framt það nýjasta heitir Sleepyhead og fjailar um góðan vin minn. Þremur vikum áður en ég fór frá Nýja-Sjálandi féll hann í dá og nú tæpum fjórum mánuðum síðar er hann enn í kóma og enginn veit hvað er að. Ég er að biðja hann um að vakna.“ Hlutimir gerast liratt Fyrsti diskurinn sem Hera gaf út heitir Homemade og kom út í litlu upplagi á Nýja-Sjálandi 1999. „Ég var fimmtán ára og ég vann hann með pabba, Hirti Kristinssyni. Salan gekk satt best að segja ótrúlega vel og fólk er enn að biðja um hann,“ segir Hera og hlær, „en hann er alveg búinn." Það eru þjú lög af fyrsta disknum á Not Your Type! og nú eru þau orð- in eins og ég vil hafa þau.“ Hera gaf út diskinn Not So Sweet þegar hún var sautján ára. „Ég tók hann upp sjálf, pródúseraði og gaf út en ég fékk til liðs við mig hljóðfæraleikara og seldi hann mest þar sem ég var að spila. Diskurinn barst meira að segja tO íslands í litlum skömmtiun. Baltasar Kormákur heyrði í mér í útvarp- inu einhvem tíma þegar hann var á leiö út í bakarí til að kaupa með morgunkaffinu. Það var verið að taka við mig símaviðtal frá Nýja-Sjálandi, seint um kvöld þar en morgun hér. Honum leist vel á lagið sem var spilað eftir viðtalið og kom sér í samband við ömmu mína sem útvegaði honum diskinn og í framhaldi af því spuröi hann hvort hann mætti nota lagið Itchy Palms í kvikmyndinni Hafið. Það hefur allt gerst svo hratt undanfarið að stundum er ég hálfrugluð á þessu öllu saman. Ég var svo heppin að vera ung þegar ég áttaði mig á því að mig langaði að helga líf mitt tón- list. Ég er enn sama manneskjan en bara að gera meira að því sem mér þykir skemmtilegast." -Kip
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.