Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2003, Page 4
4 FRÉTTIR LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ2003
Verð til íslenskra nautabænda
NAUTAICJÖT: Landssamband
kúabænda hefur tekið saman
upplýsingar um verð á nauta-
kjöti til bænda í Danmörku og
í samanburði við Island kemur
fram að danskir bændur fá
25% hærra vérð fyrir ung-
nautakjöt en íslenskir. Niður-
staðan kemur sambandinu
ekki á óvart en þar sést að verð
á nautakjöti á fslandi hefur
hríðlækkað undanfarin ár og
stendur í dag ekki undir kostn-
aði. Að sögn sambandsins er
Island eina landið í Evrópu þar
sem nautakjöt er selt neytend-
um án þess að kjötið sé niður-
greitt með einum eða öðrum
hætti. Landssamband kúa-
bænda segir Ijóst að fleiri og
fleiri kúabændur séu farnir að
draga úrframleiðslunni vegna
lægst í Evrópu?
hins lága afurðaverðs og hafi
margir þegar hætt framleiðslu
nautakjöts. Að mati sambands-
ins verður erfitt að tryggja ís-
lenskum neytendum hágæða
íslenskt nautakjöt um ókomna
tíð ef ekki verður gripið til ráð-
stafana til að bæta afkomu
greinarinnar, s.s. með aðkomu
opinberra aðila.
Hættulegar eftirlíkingar
ÁFENGI: Einn maður hefur lát-
ist í Finnlandi og nokkrir veikst
alvarlega eftir neyslu eftirlík-
inga af þekktum áfengisteg-
undum. I Noregi er einn maður
í öndunarvél af svipuðum or-
sökum. Um er að ræða eftirlík-
ingar af m.a. Absolut vodka og
Captain Morgan rommi. Eftirlík-
ingarnar innihalda m.a. met-
anól og etylenglykól sem eru
betur þekkt sem tréspíri og
frostlögur. Ekki er ástæða til að
óttast vöru sem seld er eftir við-
urkenndum leiðum og hægt er
að rekja beinttil framleiðanda.
Full ástæða er til að varast vöru
þar sem uppruni er óviss. Öll
vara sem seld er í vínbúðum
ÁTVR er keypt af viðurkennd-
um umboðsaðilum og fer í
gegnum strangt gæðaeftirlit.
Rjúpnaveiðibannið vekur reiði skotveiðimanna í garð Náttúrufræðistofnunar:
Sökuð um að hag-
ræða upplýsingum
Ákvörðun Sivjar Friðleifsdóttur
umhverfisráðherra að banna
rjúpnaveiðar næstu þrjú árin hefur
sætt mikilli gagnrýni skotveiði-
manna. Sigmar B. Hauksson, for-
maður Skotveiðifélags íslands, hef-
ur skrifað bréf á heimasíðu félags-
ins sem hann kallar: Heyra rjúpna-
veiðar á íslandi sögunni til?
í bréfinu er Sigmar harðorður í
garð Náttúrufræðistofnunar og
segir meðal annars: „Ekki verður
betur séð en Náttúrufræðistofnun
hafi hagrætt rannsóknargögnum til
að auðvelda umhverflsráðherra að
SIGMAR B. HAUKSSON, FORNIAÐUR SKOT-
VEIÐIFÉLAGS ÍSLANDS: Segir Náttúru-
fræðistofnun hafa hagrætt gögnum til að
auðvelda ráðherra að taka ákvörðun.
taka ákvörðun um að alfriða rjúp-
una. Flestar upplýsingar um ástand
stofnsins koma frá talningarsvæð-
um þar sem byrjað var að telja eftir
síðasta hámark, eða þegar stofninn
var í niðursveiflu.“
Vísað til viðauka
Ólafur K. Nielsen, fuglafræðingur
hjá Náttúrufræðistofnun íslands,
segir að hann telji lfldegt að Sigmar
sé að vísa til viðauka sem Náttúru-
fræðistofnun gerði við álitsgerðina
frá því í fyrra.
ÓLAFUR K. NIELSEN FUGLAFRÆÐINGUR:
Segir Sigmar skrifa (hita augnabliksins.
Honum hefði verið nær að telja upp að tíu
áður en hann birti bréfið.
FRIÐUÐ I ÞRJU AR: Akvörðun Sivjar Friðleifsdóttur umhverfisráðherra að banna rjúpnaveiðar næstu þrjú árin hefur sætt mikilli gagnrýni
skotveiðimanna. Sigmar B. Hauksson, formaður Skotveiðifélags Islands, hefur skrifað bréf á heimasíðu félagsins sem hann kallar Heyra
rjúpnaveiðar á fslandi sögunni til?
„Umhverfisráðuneytið bað um
tillögur frá Náttúrufræðistofnun
um það hvernig bregðast skyldi við
því að tillagan um sölubann á rjúpu
félli á þingi og stofnunin skilaði
viðauka sem byggður var á talning-
um frá síðasta sumri og í sjálfú sér
breyta þær talningar engu um
heildarmyndina.
f bréfinu segir meðal annars að
flestar upplýsingar um ástand
stofnsins komi frá talningarsvæð-
um þar sem byrjað var að telja eftir
síðasta hámark, eða þegar stofninn
var í niðursveiflu, og ef ég reyni að
skilja þetta verð ég að heimfæra
það yfir á viðaukann. Myndin frá
því í fyrra er fullmótuð og viðauk-
inn breytir í raun engu um hana.“
Skrifað í reiði
Ólafur segist hafa átt gott sam-
starf við Skotveiðifélagið í gegnum
tíðina og hann telji að bréfið sé
skrifað í hita augnabliksins. „Þegar
menn skrifa svona bréf eiga þeir að
geyma þau í sólarhring og lesa yfir
áður en þau eru birt. Ef menn ætla
að eiga gott samstarf þá sakar mað-
ur ekki menn um svik.“ kip&dv.is
FLOTT MÓDEL Það er margur gæðagripurinn til sýnis (Smáralind.
Flugdúndur í Smáralind
í gær hófst í Smáralind í Kópavogi
sýningin Flugdúndur, en til hennar
er efnt f tilefni af hundrað ára af-
mæli flugs í heiminum. Á sýning-
unni, sem stendur fram á sunnu-
dag, er að finna flest það sem teng-
ist flugi - þessum samgöngumáta
nútfmans - svo sem flugvélar, fall-
hlífastökksbúnað, svifflugur, flug-
dreka, mótorsvifdreka, fjarstýrð
módel og ýmsa flugsögulega gripi.
Tugir flugmódela af öllum gerðum
eru í Vetrargarðinum og raunar
víðar í Smáralind. Þá verða í Vetrar-
garðinum kynningar á klukku-
stundar fresti á léttum nótum þar
sem fjallað verður um listflug,
einkaflug, flugkennslu, flugsöguna
og sitthváð annað.
-sbs
étt og mllt (veöri. Víða dálftil rignlng eða súld
"'nu 10tHl7stlg.
Veðriðídag
Sólarlag í Sólarupprás á
kvöld morgun
Rvík 22.53
Ak. 22.59
Rvík 04.17
Ak. 03.31
Síðdegisflóð
Rvlk 17.00
Ak. 21.33
Árdegisflóð
Rv(k 04.36
Ak. 09.03
VeðriOkl. Uígm
Akureyri rigning
Reykjavík alskýjað
Bolungarvík rigning
Egilsstaðir léttskýjað
Stórhöfði skýjað
Kaupmannah. skýjað
Ósló rigning
Stokkhólmur
Þórshöfn rigning
London rigning
Barcelona léttskýjað
New York hálfskýjað
París skýjað
Winnipeg heiðskírt
12
16
11
11
13
23
16
20
11
16
30
23
22
19