Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2003, Page 16

Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2003, Page 16
16 DVHELCARBLAÐ LAUGARDAGUR 26. JÚNÍ2003 DvHelgarblað i Umsjón: Snæfríður Ingadóttir og Finnur Vilhjálmsson Netfang: snaeja@dv.is / fin@dv.is Sími: 550 5891 Erguð kona? Viðtal við dr. Arnfríði Guðmundsdóttur sem varð fyrst kvennartil að hljóta fastráðningu við guðfræðideild Háskóla íslands. Svona á að synda Helgarblaðið gefur þeim sem vilja fá eitthvað meir en afslöppun út úr sundlaugarheim- sóknunum nokkur góð ráð. ' 5 t** • . Jr /■'jl4 Betri myndir .;■<+ } A Sumir myndast alltaf JW&yt vel en aðrir eru alltaf £‘v } k eins og kartöflu- pokar á Ijós- myndum. 1 X' jfe j Ljósmyndarar DV L jjb. æm. gefa þeim góð ráð sem vilja myndast ■H betur. TS Bls.28 Bls.38 Bls.42 Leikið í hlöðunni LEIKHÚS f HLÖÐU: Leikstjórinn Skúli Gautason fyrir framan hlöðuna við Litla-Garð sem nú gegnir hlutverki leikhúss. Litli-Garður er I útjaðri Akureyrar, nánar tiltekið á leið út á Akureyrarflugvöll. Einleikurinn „Etly, alltafgóð", eftir Akureyring- inn Þorvald Þorsteinsson, sem hlaut Grímuna nú á dögunum fyrir verk sitt, „and Björk, ofcourse", verður frumsýndur í hádeginu miðvikudaginn næstkomandi. Frumsýningin ersú fyrsta affjór- um sem sýndar verða á Akureyri. Verkið er flutt afÆvari Þór Benediktssyni, nema í MA, og er í leikstjórn Skúla Gautasonar, en æfingar hafa staðiðsíðan íjúní „Elly, alltaf góð“, er drama/gaman-einleik- ur sem fjallar um mann sem á erfitt með að tjá tilfinningar sínar. Hann er því sendur heim af sálfræðingnum sínum með dúkku í farteskinu og á hann að æfa almenn tjáskipti með því að tala við hana. Varðandi fram- vindu leikverksins vilja þeir félagar ekkert segja mér en lofa því einungis að margt muni koma upp á yfirborðið þegar ungi maðurinn byrjar að eiga tjáskipti við uppblásnu dúkk- una. „Þetta er sennilega einn af þeim sem hafa haft of mikinn tíma til að hugsa,“ segir Skúli, leikstjóri og leikhúseigandi. Einleikur- inn var upphaflega skrifaður fyrir Björgvin Franz Gíslason, þá leiklistarnema, sem verk- efni í Leiklistarskóla fslands. Sýningin er haldin heima hjá leikstjóranum, á Litla- Garði, gegnt flugvellinum á Akureyri, en þar hefur Skúli nýlega breytt hlöðunni sinni í lít- ið leikhús sem tekur um 40 manns í sæti. í miðaverði er innifalin súpa og brauð frá veit- ingastaðnum Friðriki V. Óvenjulegt leikhús Blaðamaður DV leit inn á æfingu hjá þeim félögum á dögum og þar tjáði Ævar honum að verkið hefði blundað í um tvö ár. „Ég var að leika í Hárinu í fyrravor og Þorvaldur kom á eina sýninguna og vildi endilega tala við mig eftir hana. Við hittumst hjá sameiginleg- um vini okkar, Sverri Páli Erlendssyni, og eft- ir spjall saman þá bauð hann mér tvo einleiki og ég mátti gera það sem ég vildi við þá. Mér leist betur á Elly og langaði að vinna eitthvað frekar með það verk," segirÆvar, en þetta er ekki í fyrsta skipti sem drengurinn er á sviði því hann hefur getið sér orð í uppfærslum Menntaskólans á Akureyri, bæði í Hárinu og í Chicago, sem sýndur var í vetur. Einleikurinn er sýndur í mjög óvenjulegu leikhúsi, nánar tiltekið í gamaíli hlöðu sem stendur á landar- eign sem hinn þjóðkunni leikari og skemmti- kraftur Skúli Gautason keypti nýlega. „Ég hef ekkert verið á Akureyri nema á veturna hing- að til en er að vinna hérna í sumar þannig að ég fór að líta í kringum mig varðandi mögu- leika á því að setja verkið upp. Ég hringdi í Skúla og athugaði hvort hann hefði áhuga á því að vera með mér í þessu og hann sló til. Hugmyndin var að setja einleikinn upp í kaffihúsi niðri í miðbæ en eftir að hafa talað við Skúla var ákveðið að setja þetta upp í hlöðunni hans," segirÆvar, en hann telur sig hafa verið mjög heppinn með það að detta inn á þennan sýningarsal og telur hann henta leikverkinu. „Það er dálitið groddalegt en um leið er ákveðinn sjarmi yfir því sem mun ör- ugglega eiga þátt í því að laða gesti að sýning- unni og um leið skapa réttu stemninguna." Fjölskyldufyrirtæki Blaðamanni DV leik forvitni á að vita meira um þetta um margt undarlega leikhús sem nú hefur verið standsett í gamalli bragga- hlöðu norður á Akureyri. „Fýrir réttum þrem- ur árum, 23. júlí 2000, þá gerðist það að ég og kona mín, Þórhildur örvarsdóttir, vorum að skoða möguleika á því að flytja norður. Okk- ur leist vel á Litla-Garð og fengum að gista eina nótt hér. Síðan gerðist það eldsnemma þann morgun sem við vorum hérna að við fengum hringingu frá lögreglunni í Reykjavík sem tjáði okkur að húsið okkar hefði brunnið um nóttina og því var ákveðið að halda hing- að,“ segir Skúli, en hlaðan fyrir utan húsið hafði mikil áhrif á kaup þeirra hjóna. „Hlað- an heillaði mig mest og ég sá strax möguleik- ann á því að breyta henni í leikhús." Hlaðan, sem er komin til ára sinna, örugglega smíðuð upp úr stríði, er fyrir margra hluta sakir for- vitnileg og það sem er furðulegast við hana eru bílfjaðrir innan á vesturvegg hennar, veggnum sem snýr að brekkunni. Að sögn Skúla eru fjaðrirnar tilkomnar vegna vegg- framkvæmda sem bræður tveir sem bjuggu á Litla-Garði árið 1963 fóru í vegna tjóns á hús- inu í kjölfar mikiís jarðskjálfta sem reið yfir Norðurland það árið. Bræðurnir voru snögg- ir til, grófu frá veggnum, púlluðu honum upp með bflfjöðrunum og steyptu hann fastan, og enn í dag eru fjaðrirnar á sínum stað. „Fróðir menn þykjast þekkja þarna blaðfjaðrir úr Rússajeppa og fjaðrir undan litlum vörubfl, sennilega Ford,“ segir leikhúseigandi með lúmskt bros á vör. Skúli segist hafa ákveðið að reyna að halda bragganum í sinni upp- runalegu mynd. „Ég fór þá leið að friða húsið að innan. í staðinn fyrir að skipta um járn að innan og einangra það smíðaði ég nýtt utan um það og einangraði húsið þaðan," segir Skúli. Einleikurinn Elly, alltaf góð, er fyrsta leikverkið sem sett er upp i hinu nýja leik- húsi, en milli jóla og nýárs hélt hljómsveitin Mór þar tónleika í brunagaddi. Margt verður um að vera í litla leikhúsinu næstu vikurnar, auk sýninga á Elly, alltaf góð. Til Akureyrar er væntaniegur danskur leikhópur sem ætlar að setja upp sýningu þar. Skúli segist ekki vita neitt um verkið sem leikhópurinn ætlar að setja upp en þekkir ekki leikhópinn nema að góðu einu. f haust mun einnig Sigríður Eyrún Friðriksdóttir setja upp einleik í hlöðunni. Að sögn Ævars stendur til að fara með einleik- inn, Ellý, alltaf góð, í ferðalag þegar sýning- um lýkur á Akureyri. „Þetta var hugmynd sem kom upp í vinnsluferlinu og við stukkum á hana um leið. Við ætlum að gera þetta í ágúst og er stefnan tekin á Sauðárkrók, Borg- arfjörð og Reykjavík. Ég efast ekki um að þetta eigi eftir að verða mjög gaman." Fyrir frekari upplýsingar um sýninguna og þá sem að henni standa er áhugasömum bent á heimasíðu verksins; www.castor.is/elly akureyrí@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.