Dagblaðið - 27.11.1978, Page 1
úanhlaft
4. ÁRG. — MÁNUDAGUR 27. NÓVEMBER 1978 - 265. TBL.
RITSTJÓRN SÍÐUMÍJLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI11—AÐALSÍMI27022.
Eftir allan snjóakaflann:
HLYNAR 0G FER AÐ
RIGNA
Það var margt um manninn á skiðaslöðum Reykvikinga i gærdag. Hér er
svipmynd úr Hveradölum. Meira um skiða- og skautaiðkun á bls. 6—7.
„Það er strax farið að hlýna mikið.
Frostið í Reykjavik er ekki nema 3 stig
núna en var 11 stig þegar það var mest i
nótt,” sagði Páll Bergþórsson, er hann
var spurður um væntanleg veðrabrigði.
„Það byrjar líklega að snjóa í kring
um eða eftir hádegið en siðan gerir
slyddu og rigningu. Með þessu kemur
vaxandi suðaustan átt og hlýnandi.”
Páll bjóst ekki við þvi að rigningin
yrði nógu mikill til þess að upp tæki
snjóinn í Reykjavík enda yrði þá liklega
laglegt flóð.
Frostið var víða meira en i Reykjavík
í nótt. Þannig var kaldast á Hvera-
völlum, hvorki meira né minna en 22
stiga frost.
Kaldast i byggð var á Staðarhóli i
Aðaldal og á Grímstöðum á Fjöllum, 20
stiga frost.
Ekki voru hins vegar haldnar skýrslur
um hvar hlýjast var. Um klukkan níu i
morgun var komin eins stígs hiti í Vest-
mannaeyjum og á Reykjanesi. Um frost-
mark var þá á Gufuskálum.
Maria Hannesdóttir á Staðarhóli
sagði í morgun að það kæmi fyrir á
hverjum vetri að 20 stiga frost kæmi þar
norður í Aðaldal. Ekki hefði frostið
orðið svo mikið fyrr í vetur en það hefði
áreiðanlega farið niður í þetta undan-
farna vetur.
Lygnt var á Staðarhóli i nótt þannig
að María sagði að fólk hefði lítt fundið
fyrir stigunum 20. 1 morgun um
tiuleytið var kominn þar 10 stiga hiti og
fór hlýnandi.
-DS.
Flugliðar-
nirkoma
heim í dag
1 dag koma heim siðustu flug-
liðarnir sem lifðu af flugslysið
mikla á Sri Lanka. Eru það flug-
freyjurnar Jónina Sigmarsdóttir og
Þuriður Vilhjálmsdóttir og Harald
Snæhólm flugstjóri. Koma þau
með vél frá Britannia Airways kl.
17.45 en sú vél er í leigu hjá Sam-
vinnuferðum. Flugfreyjurnar tvær
voru í nótt á hóteli i London en
Harald Snæhólm var á Harley
Street Clinic. í fylgd með
flugliðunum i dag verður íslenzkur
læknir, annað hvort Katrín Fjeld-
sted, sem fór fyrir Flugleiðir til Sri
Lanka eða maður hennar
Valgarður Egilsson, sem einnig er
læknir. -ASt.
Sumarhús
við Rauða-
vatn brann
Sumarbústaður innan og ofan
við Rauðavatn brann til kaldra
kola í fyrrinótt. Var slökkviliðið
kallað á vettvang kl. 4.45 um
morguninn en þá hafði leigu-
bílstjóri er leið átti um orðið
eldsins var. Húsið var alelda er
slökkviliðsmenn komu upp að
Rauðavatni en vegna ófærðar
komust slökkviliðsmenn ekki með
bil að húsinu. Var enda lítið fyrir
þá að gera, því húsið var svo til
brunniðogfallið.
Slökkviliðsmenn urðu varir við
fótspor manna i snjónum við húsið
svo augljóst var að þar hafði fólk
verið, þó á bak og burt væri er
slökkviliðið barað.
Sumarhúsið sem brann var um
30 fermetra- að stærð og einfalt að
gerð. -ASt.
...en hann skellti sér út í og
síðan tók hann til við að synda
og bjargaði sér loks upp í bát af
sjálfsdáðum. DB-myndir Sv.
Þorm.
Ungur maður fékk sér kalt bað aðfaranótt laugardagsins i
Reykjavíkurhöfn vestur við Granda. Lögreglulið var sent á
staðinn en ekki þurftu lögreglumenn að fara í sjóinn, því
manninum leiddist sundið og hafði sig að bakkanum og var
hjálpað upp á byggju. Ekki var talið að manninum hefði
orðið meint af volkinu.
l.ögreglan reyndi að. tala
manninn lil og spnra 'honum
kaldan sundsprett....
Munaði
nærri helm-
ingá verðinu
Það borgar sig að gefa gaum að
vöruverði þegar farið er að verzla.
Neytendasíða DB „verzlaði” fyrir
lesendur sína í Glæsibæ, — eina
dýra körfu og aðra ódýra, en meö
sams konar vörum. Það munaði
næstum því helmingi á
vöruverðinu.
914 lík fund-
in í Guyana
Samninga
hljóð í
Egyptum og
ísraelum
Blekkti
presturinn
stórfé út úr
gaml-
ingjanum?
— sjá erl. f réttir
bls. í-ogll
Evrópusigur
Víkings
gegn Ystad
— en varla nógu
stór 24-23
i