Dagblaðið - 27.11.1978, Blaðsíða 20

Dagblaðið - 27.11.1978, Blaðsíða 20
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 27. NÓVEMBER 1978. 20 Feyenoord skoraði ekki úrvítaspyrnu „Ég var ekki nógu ánægðurmeð miun hlut i lciknum en þjálfari Feyenoord sá þó enga ástæðu til að kippa mér útaf. Ég lék allan leikinn við Twente i Enschede I gær. Jafntefli varð 0—0,” sagði Pétur Pétursson i örstuttu viðtali við DB i gær- kvöld. „Við vorum klaufar að vinna ekki. Fengum vitaspyrnu þegar 15 min. voru til leiksloka en Art Mansvald misnotaði vftið og Twente slapp með skrekkinn. Þetta var jafn leikur — en mér finnst ég ekki vera i nógu góðri æfingu. Þetta er strangt i úrvalsdeildinni hér i Hollandi — og maður veit ekkert hvort maður heldur sæti sinu i liðinu eða ekki. Mikil keppni um sætin,” sagði Pétur ennfremur. Roda sigraði i gær og er efst með 22 stig. Jafntefli varð hjá Ajax og PSV — ekki þó innbyrðis — og þau lið eru i 2.- 3. sæti með 20 stig. Feyenoord hefur 1 stig. „Ég Var nýbúinn að horfa á leik Lokeren i belgíska sjónvarpinu, þegar þú hringdir. Lokeren sigraði 5—1 á útivelli og Arnör Guðjohnscn lék með Lokeren. Hann skoraði ekki í leiknum en átti alveg annað mark Lokeren. Standard gerði jafntefli 0—0 i sínum leik en Anderlecht tapaði á heimavelli fyrir Antwerpen. Beveren vann 2—1 og hefur þvi tveggja stiga forustu i 1. deild i Belgíu — og hefur leikið einum leik minna en Anderlecht”, sagði Pétur að lokum. til Akraness Verið er nú að ganga frá félagskiptum tveggja leikmanna Þórs á Akureyri til íþróttabandalags Akraness. Það eru leikmennirnir kunnu i knattspyrnunni Sigurður Lárusson og Sigþór Ómars- son. Sigþór er frá Akranesi og lék i meistaraflokki í A áður en hann flutti til Akureyrar. -St.A. Sundfólk Ægis ísérflokki Sundfólk Ægis hefur mikla yfirburði i sundinu. Um helgina sigraði það í tiundu bikarkeppni Sundsambands íslands I 1. deild. Mikill yfirburðasigur og árangur þjálfara þess, Guðmundar Harðarsonar, hreint undraverður á íslenzkan mæli- kvarða með fólk sitt. Ægir hlaut 243 stig. HSK varð i öðru sæti með 141 stig, UBK i þriðja sæti með 123 stig. Ármenningar i fjórða sæti með 85 en Sundfélag Hafnarfjarðar rak lestina. Hlaut 33 stig og féll niður i 2. deild. Þrjú Íslandsmet voru sett i keppninni. Hugi Harðarson, HSK, setti íslandsmet i 200 m baksundi 2:20.3 min. Hann átti sjálfur eldra metið en tslandsmetið á þcssari vegalengd hcfur verið margbætt tvö síðustu árin — eða frá Islandsmeti Guðmundar Gislasonar, sem var 2:23.3 sek. Bjarni Björnsson og Axel Alfreðs- son hafa báðir sett met á vegalengdinni. Þá setti Sonja Hreiðarsdóttir Ægi, íslandsmet i 400 m bringusundi ó'.OO. 2 min. og sveit Ægis i 4X100 skriðsundi kvenna 4:27.3 sek. Eldra íslandsmet Sonju var 6:00.7 min. Nokkur unglingamet voru sett. Katrín Sveinsdóttir, UBK, setti tclpnamet, 12 ára og yngri, i 800 m skriðsundi 11:05.6 min. og einnig f 200 m fjórsundi á 2:49.3 mín. Þóranna Héðinsdóttir. Ægi, setti telpnamet í 100 m baksundi 1:14.3 mfn. og sigraði þar Sonju, 1:14.4 min. í fyrsta Týr, Vestmannaeyjum, sigraði Dalvik i 3. deild íslandsmótsins í handknattleik i Eyjum á laugardag. Lokatölur 29—20 eftir 18—13 i hálfleik fyrir Tý, sem er i efsta sæti i deildinni. Leikurinn var slakur en yfirburðir Eyjamanna ótvíræðir. Flest mörk Týs skoruðu Snorri Jóhannsson og Sigurlás Þorleifsson — átta mörk hvor. Hjá Dalvikingum skoruðu Albert Ágústsson 9 og Vignir Hallgrimsson 5 mest. -FÓV. fur Einarsson lyftir sér upp og sendir knöttinn yfir varnarleikmenn og i mark Ystad — eitt af sex mörkum hans i leiknum. Ólafur Jónsson og Arni Indriðason lu opnað glufu fyrir hann. DB-mynd Bjarnleifur. Fylkir skoraði tvö síðustu mörkin og jafnaði í 15-15! — eftir að HK hafði haft forustu nær allan leikinn í 1. deildinni „Það er ekki von að við sigrum, þegar við getum ekki skorað úr vitaköstum — en i sjálfu sér crum við ekkert óánægðir með jafnteflið eins og staðan er orðin,” sagði Einar Ágústsson, leikmaðurinn sterki í Fylki, eftir að HK og Fylkir gerðu jafntefli í 1. deild karla í hand- knattleik í iþróttahúsinu i Varmá i gær. Bæði lið hafa nú þrjú stig eftir fimm umferðir. Þetta var talsverður baráttuleikur og lengi vel virtist stefna í sigur HK. Liðið komst fljótt yfir, 3—1, og náði mest fjögurra marka forustu undir lok fyrri hálfleiksins 12—8. Staðan í hálfleik 12—9fyrirHK. Leikmönnunum úr Fylki tókst að jafna í 12—12 fljótlega í siðari hálfleik — en HK komst aftur tveimur mörkum yfir. Björn Blöndal og Stefán Halldórs- son skoruðu. Þá fékk Fylkir þrjú vita- köst með stuttu millibili en Einar. markvörður liðsins gerði sér lítið fyrir og varði bæði. Fyrst frá Halldóri Sigurðssyni — síðan Einari Ágústssyni — en hins vegar réð hann ekki við vita- kast Gunnars Baldurssonar, 14—13. Stefán Halldórsson komHKí 15— 13en þeir Sigurður Simonarson og Einar Ágústsson skoruðu tvö siðustu mörk leiksins fyrir Fylki. Jafntefli 15— 15. Flest mörk HK skoruðu Björn Blöndal 5 og Stefán Halldórsson 5/2. Hjá Fylki var Gunnar Baldursson markhæstur með 5/1 og næstur kom Einar Ágústsson með fjögur mörk. -HJ. Loksins skorað á Akureyri! — þegar UMFN sigraði Þór 109-85 í úrvalsdeildinni Þá kom að þvi að skoruð voru einhver stíg að ráði i úrvalsdeildinni á Akureyri — en eins og oftast áður voru það gestirnir sem skoruðu fleiri. Njarðvíkingar sigruðu Þór á laugardag i körfuknattlciknum og komust yfir hundrað stigin. Skoruðu 109 stig en Þór skoraði 85. Akureyrsku leikmennirnir byrjuðu illa. Niu sóknarlotur voru ekki nýttar og fyrr en varði mátti sjá UMFN 20 — Þór 4 á markatöflunni. Eftir sex mín. var staðan 28—12 fyrir Njarðvíkinga — og þann mun tókst Þórsurum aldrei að minnka. öruggur sigur UMFN var í höfn. Ekki bætti úr fyrir Þór aö Þröstur Guðjónsson fór út af með fimm villur í fyrri hálfleiknum — og í þeim síðari Birgir Rafnsson og Sigurgeir Haralds- son. UMFN missti tvo menn út af i síðari hálfleik með fimm villur — Jónas og Guðjón Þorsteinsson. Dómarar voru Þráinn Skúlason og Guðbrandur Sigurðsson. Þeir dæmdu illa og lítið sam- Stenmark varð annar Sænski heimsmeistarinn í alpa- greinum á skiðum, Ingemar Stenmark, varð að láta sér nægja annað sætið í fyrstu keppni heimsbikarsins i Val Senelcs á ttaliu á laugardag. Það var í svigi og sigurvegari varð Búlgarinn Pet- er Popangelov, sem aðeins er tvitugur að aldri. Eftir fyrri umferðina var Stenmark í fyrsta sæti — þó aðeins þremur sekúndubrotum á undan Búlgaranum. t síðari umferðinni tókst Stenmark hins vegar ekki vel upp — en Popangelov keyrði þá á 58.98 sek. og sigraði. Tími Stenmarks var 59.13 sek. Fyrir tveimur árum náði Popangelov góðum árangri i heimsbikarnum en lítið bar á honum á síðasta keppnistimabili. Um 200 skíðamenn frá 21 landi tóku þátt í keppninni. t gær var keppt í stór- svigi en vegna bilana á sæsíma- strengjunum til tslands getum við ekki birt fréttir af þeirri keppni í dag. Úrslit i sviginu. 1. P. Popangelov, Búlgaríu, 2. Stenmark, Svíþjóð, 3. Neureuther, V.-Þýzkal. 4. Morgenstern, Austurr. 5. Karl Troyer, ttalíu, 6. GustavoThoeni, Ítalíu, 7. PieroGros, Ítalíu, 8. Peter Nally, ttalíu, 9. P. Luescher, Sviss, 10. Bruno Nökler, ttaliu, 113.42 113.63 114.49 115.40 115.60 115.68 115.80 116.21 116.21 116.37 ræmi var i dómum þeirra. Stigaskorunin í þessum leik var hin mesta, sem verið hefur á Akureyri í úr- valsdeildinni og kunnu áhorfendur vel að meta það þó svo að heimamenn væru ekki beint hittnir — einkum framan af. Stig Þórs skoruðu Mark Christiansen 27. Eiríkur Sigurðsson 20, Jón Indriðason 10, Birgir Rafnsson 10, Karl Ólafsson 10, Ágúst Pálsson 6 og Sigurður Haraldsson 2. Þorsteinn Bjarnason, landsliðsmark- vörður í knattspyrnunni, átti beztan leik Njarðvíkinga og varð einnig stigahæstur þó svo hann væri ekki með allan leikinn. Skoraði 18 stig. Ted Bee kom næstur með 17 stig. Gunnar Þorvarðarson 16, Jónas 14, Geir Thorsteinsson 10. Guðsteinn 10, Guðjón 9, Brynjar Sig- mundsson 8 og Júlíus Margeirsson 7. Staðan i deildinni er nú þannig: KR 5 4 1 455-387 8 ÍR 6 4 2 549—512 8 Valur 6 4 2 522-529 8 UMFN 7 4 3 675-656 8 ÍS 5 14 429-446 2 Þór 7 16 553-654 2 St.A. • ''-V;- r.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.