Dagblaðið - 27.11.1978, Blaðsíða 24
24
pess»
W»«f
3t6rg'
jteBS®®**1
Chevrolet
Monte Carlo
1974
i toppstandi. 8 cyl.,
sjáUskiptur, afl-
stýri, aflhemlar,
rafmagnsrúður,
rafmagnslæsingar,
snúningsstólar,
sportfelgur og lituð
gler. Skipti mögu-
leg. (Jpplýsingar
veittar i sima
19235 (35433) eftir
kl. 5 og um
beigina.
'Akurnesingar------------
nærsveitamenn!
Vélastillingar með nýjum
tækjum.
Veitum félagsmönnum FlB
15% afslátt.
Bílatækni
Vallholti 1 - Akranesi - Simi 1477
c/o Kr. Ingólfsson — Sfmi 2196.
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 27. NÓVEMBER 1978.
Ferðalög embættis-
manna kostuðu
286.7 millj. 77
— ekki beðið um upplýsingar f rá Alþingi í bækling
fjármálaráðherra
Ulanlandsferðir íslenzkra embættis-
manna kostuðu rikissjóð 286,7
milljónir á siðasta ári. Þar af notaöi
samgönguráðuneytið 58 milljónir
rúmar, en félagsmálaráðuneytið
aðeins 4.9 milljónir. Undir samgöngu-
ráðuneytið heyrir m.a. allt flug auk
póstsogsima.
1 fjölrituðu svari fjármálaráðhcrra
við fyrirspurn Geirs Gunnarssonar á
alþingi, er getið um allar þær ferðir
sem farnar voru á vegum rikisins og
stofnana þess á síðasta ári. Plagg
þetta er á margan hátt mjög óaðgengi-
legt og hvergi nokkrar niðurstöðutölur
dregnar. Má vænta þess, að á Alþingi
verði einhverjir þingmenn til að gera
athugasemdir við þann frágang.
Þess er getið á forsíðu bæklingsins,
að upplýsingar hafi ekki borizt frá
Alþingi. Þar i er að finna upplýsingar
um nokkrar ferðir alþingismanna á
vegum nokkurra rikisstofnana, en
ekkert um ferðir á vegum alþingis, sem
hefur sjálfstæðan fjárhag.
Friðjón Sigurðsson, skrifstofustjóri
alþingis, sagði I samtali við fréttamann
blaðsins, að skrifstofa alþingis hefði
ekki verið beðin um upplýsingar i
þetta svar fjármálaráðherra.
DB spurði Friðjón hvort skrifstofa
alþingis gæti lagt þessar upplýsingar
fram. „Það tekur sinn tima að vinna
það, þeir eru nú búnir að vera nokkuð
lengi að þessu,” sagði Friðjón. „En ég
geri ekki ráð fyrir að nokkuð hefði
verið því til fyrirstöðu að þessar
upplýsingar hefðu verið gefnar. Eftir
þeim var bara ekki óskað."
Þrjú ráðuneyti fóru með yfir 40
milljónir i ferðakostnað á sl. ári.
menntamálaráðuneyti og heilbrigðis-
og tryggingaráðuneyti auk samgöngu-
ráðuneytisins, sem áður var nefnt.
Forsætisráðuneytið kostaði næst
minnst, 8.3 milljónir.
ÓV.
HÁRGREIÐSLUSTOFAN
Pirola
Njálsgötu 49
Sími 14787
•
Lagningar
Klippingar
Blástur
Opið laugardaga.
ÞETTA KOSTUÐU
FERÐALÖGIN 77
Ferðakostnaður hinna ýmsu ráðu
neyta er mjög mismunandi, enda ráðu-
neytin mjög mismunandi stór og með
misjafnlega viðtæka starfsemi. Flér er
listi yfir ferðakostnað ráðuncytanna
1977:
millj.
1. Samgönguráðuneyti..........58.0
2. Menntamálaráðuneyti........42,7
3. Heilbr.- og tryggingar.n..40.4
4. Viðskiptaráðuneyti.........38,2
5. Utanrikisráðuneyti.........25,3
6. Iðnaðarráðuneyti...........24,5
7. Dóms-og kirkjum.ráðun. ... 14.5
8. Sjávarútvegsráðuneyti.....11,9
9. Fjármálaráðuneyti.......... 9,3
10. Landbúnaðarráðuneyti...... 8.5
11. Forsætisráðuneyti.......... 8,3
12. Félagsmálaráðuneyti.........4,9
Sjömeistarasagan
eftir Halldór Laxness
Jólabókin 1978
Heillandi verk, unnið úr minningabrotum
Nóbelsskáldsins.
Himinfagur skáldskapur
Minnst er í bókinni af miklum hlýhug
margra æskuvina höfundar.
Gerið vinum yðar minningabœkur
Halldórs Laxness
í túninu heima.
Úngur ég var.
Sjömeistarasagan
Helgafell
Unuhús
við Veghúsastíg