Dagblaðið - 27.11.1978, Síða 3
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 27. NÓVEMBER 1978.
3
2V
N
Tillaga til sjávar-
útvegsráðherra
— Hugmynd um fyrirkomulag sfldveiða
í hringnót næsta haust
Sigmar Gislason, skipstjóri, Vest-
mannaevjum hringdi:
Hann leggur til að komið verði á fót
aflaverðmætakvóta í stað tonnakvóta.
Með þvi að hver bátur má aðeins
veiða síld fyrir visst aflaverðmæti en
ekki tiltekinn tonnafjölda vinnst eftir-
farandi. Mestöll síld sem fengist í
nótina kæmi að landi. Auðveldara
yrði fyrir fiskifræðinga að fylgjast með
stærð og ástandi stofnsins.
Raddir
lesenda
Hagsmunir vinnslustöðva yrðu þeir,
m.a., að þær myndu fá ódýrari sild í
flökun og niarineringu. Hagsmunir út-
gerðarinnar verða öruggt aflaverð-
mæti. styttra uthald og þ.a.l. minni
kostnaður. Hagsmunir sjómanna yrðu
mun minni vinna þvi öll síld yrði hirt.
Færri köst. öruggur aflahlutur.
Þessar aðgerðir mundu verða mun
hagkvæmari fyrir vinnslustöðvarnar
en þær sem rætt hefur verið um að
gera þ.e.a.s. minnka verðbilið á stór-
síld og millisíld því það mun ekki
koma i veg fyrir að sjómenn og
útgerðarmenn kasti millisildinni, þeir
munu þá eins og fyrr leitast við að
hirða aðeinsstórsíld.
Bréfritari leggur til að komið verði á fót aflaverðmætakvóta i stað tonnakvóta við
sildveiðarnar.
Spurníng
dagsins
Hvernig
kanntu við
færðina
íReykjavík?
(Spurt á Sendibf lastöðinni Þresti)
Hreiðar Hansen bflstjóri: Hún er fin. Ég
hef ekkert fest mig ennþá. Þetta er allt
mjög notalegt.
Glöggt er gestsaugað
Miðvikudaginn 15. II. sl. birtist i
Dagblaðinu svargrein við grein minni
frá 9. 11. sem einnig birtist í þessu
merka blaði. Dagurinn hafði litið
skorið sig úr hversdagsleikanum fyrr
en DB kom inn um bréfalúguna.
deginum var bjargað. Bjargvætturinn
var skrýtla á blaðsiðu 2 undir nafninu
„Dansleikur til fyrirmyndar.” 1 fyrstu
vil ég þakka staðfestinguna á því að
þetta sé kommaklika. a.m.k. er þvi
ekki neitað. Vissulega hefði verið
gaman að koma á barnaskemmtunina g
um daginn þvi auðheyrilega hafa
rauðsokkumar fengið þar skemmtun
við sitt hæfi. En mín fyrri grein fjallaði
um dansleikinn um kvöldið og ég
skipti mér því lítið af öllu bama-
þruglinu. Um kvöldið voru börnin
skilin eftir heima og rauðsokkurnar
frömdu athæfi sem börnin máttu ekki
sjá. Og þó, jú þarna mátti sjá börn,
bara svolítið eldri en hin. Já, aldurinn
segir ekki mikið til um þroskann því
þessi börn kvöldsins voru líkt og börn
dagsins með pela, bara eilítið sterkari
vökva í honum. Ykkur finnst skritið
að ég skuli tala um börn, en þið verðið
að athuga að fólk undir tvitugt
flokkast undir börn i áfengislöggjöf-
inni. Merkilegt að þessi skemmtun
Raddir
lesenda
skyldi fá vinveitingaleyfi með enga
dyravörzlu.
„Miðstöð R." minnist þess kannski
ekki að hafa keypt áfengi fyrir rúm
600 þúsund króna og engu skilað
aftur! Hvert skyldi það hafa farið?
„Miðstöð R." minnist kannski heldur
ekki komu lögreglunnar í húsið i þeim
erindisgjörðum að styðja út síðustu
gestina klukkustund eftir að dans
leiknum lauk. Var kannski slökkt á
„Miðstöð R." þá! Þess má einnig geta
að þegar greinarhöfundur sótti staðinn
tók aðeins 5—15 minútur að rýma
húsið án handalögmála og afskipta
lögreglunnar.
Ég get ekki enn skilið hvers vegna
Æskulýðsráð gaf leyfi til þessarar
skemmtunar. Var það kannski hugsað
sem styrktarball fyrir „Ríkið”? Það
lækkar skattana. Gaman væri að fá
svar við þeint spurningum sem ég lagði
fyrir Æskulýðsráð í síðasta bréfi.
Einnig væri gott að fá álit starfs-
manna hússins þetta kvöld á
ástandinu og þvi sem gerðist. Að
lokum vil ég segja að ég nýt nægrar
ástúðar heima fyrir, þannig að ég kýs
að halda nafni mínu leyndu þrátt fyrir
freistandi boð.
Miðstöð fvrrverandi fastagesta
Tónabajar
HeimiHs-
læknir
svarar
Raddir lesenda taka við
skilaboðum tíl umsjónar-
manns þáttarins „Heim-
ilislæknir svarar" í síma
27022, kl. 13-15 alla
virka daga.
MARQIR riALDA AÐ
LIÁTALARAR
SCU AÐEINS FYRIR
ATVINNLJMENN
'm
• ••
en auðvitað geta allir þeir sem vilja vandaða og nákvæma hátalara,
notið þess að hlusta á AR hátalara í stofunni heima hjá sér.
Það eru góð meðmæli að atvinnumenn eins og Judi Collins, Miles
Davis og Herbert von Karajan skuli velja sér AR til einkanota, því þeir
vilja aðeins það besta, hin þjálfaða heyrn þeirra krefst þess.
AR hátalarar eru á góðu verði - gæðin getur þú verið viss um -
VELJIÐ AR HÁTALARA. fiekking
feynsla
Þjónust
FALKIN N
SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670
SENDUM
BÆKLINGA
Gunnlaugur Hansen bllstjóri: Hún er
mjög slæm og það hefur komið fyrir að
ég hafi fest mig. Mér er mjög illa við
snjó sem atvinnubilstjóra.
Sigurður Jónsson bilstjóri: Bara ágæt-
lega meðan frostið er. Það hefur ekki
orðiöafþvíennþá aðégfesiimig.
Hjörtur Erlendsson bllstjóri: Mér cr
mjög illa við snjó, það er svo erfitt að
keyra.
Steindór Björnsson bilstjóri: Ágætlega.
Þá er meira aö gera i kringum bilana við
að kippa þeim i gang og hlaöa þá.
Wivi Hassing simamæn Ég kann ekki
við hana. Mér er bölvanlega við snjó.
Að visu er meira aö gera hjá okkur en
allt gengur óeðlilega seint.