Dagblaðið - 27.11.1978, Qupperneq 5
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 27. NÓVEMBER 1978.
5
Æf ingadeild Kennaraháskólans:
Nemendur, foreldrar og
kennarar taka höndum saman
Hvort þior smíðar vru liður i
— við að gera skólann manneskjulegri
Kennarar leiðbeindu nemendum við föndurgerð og föndrið mun siðan prýða veggi skólans.
í smiðastofunni rákumst við á nokkra unga sveina er unnu ötullega við að smíða sér sverð.
fegrunarherferð skólans skal ósagt látið.
Áhuginn levnir sér ekki því fint skal það verða.
„Tildrög þessa máls voru þau að
nemendur gerðu i fyrra ályktun um
hvort ekki væri hægt að gera skólann
dálitið skemmtilegri i friminútun-
um,” sagði Stella Guðmundsdóttir,
einn af kennurum i æfingadeild Kenn-
araháskóla íslands er DB hafði sam-
band við hana. Núna um helgina hafa
staðið yfir miklar lagfæringar á hús-
næði skólans og hafa þar lagt hönd á
plóginn nemendur, foreldrar og kenn-
arar.
„Ekkert gerðist í þessu máli i fyrra,”
sagði Stella, „en núna í haust var hald-
inn kennarafundur þar sem umgengn-
in í skólanum var tekin fyrir. Þar var
það álit látið í ljós að til að fá betri um-
gengni i skólanum yrðum við að fá
krakkana i lið með okkur. i framhaldi
af þessum fundi var svo boðað til al-
menns fundar með foreldrum. Þeir
tóku strax vel í þessar hugmyndir
okkar og skrifuðu sig á lista. og siðan
var verkefnum úthlutað."
Stella sagði að þessi vinha miðaði öll
að þvi að gera skólann manneskjulegri
og þar sem skrúfað hefði verið fyrir
fjárveitingu til skólans hefði orðið að
fara þessa leið. Hún sagði að foreldrar
hefðu lagt fram mikið fé og efni auk
vinnunnar. Hafizt var handa við þessa
vinnu á föstudagskvöld ogsíðan unnið
alla helgina. Veggir voru málaðir, inn-
réttaðir básar, húsgögn smiðuð, plötur
undir teikningar hengdar á veggi,
unnið að margs konar föndurgerð
o.m.fl. Þarna lögðust allir á eitt, nem-
endur, foreldrar og kennarar, og áhug-
inn skein úr hverju andliti. Sannarlega
lofsvert framtak hjá æfingadeild
Kennaraháskólans.
■ GAJ
Tveir af yngstu þátttakendunum I
fegrunarherferðinni fylgjast af áhuga
með kennara sínum.
ENDURSKINS-
MERKI ERU
NAUÐSYNLEC
FYRIR ALLA
UMFERÐARRÁÐ
, BUUJIO
ersmáaugiýsinga■
blaðið
SLAPPAÐUAF KANNAÐU
á Kanaríeyjum um jólin. Næsta ferð er 8. des. og
síðan alla föstudaga fram til vors. Gisting á okkar
eftirsóttu gististöðum, svo sem Koka Corona
Roja og Blanca, Santa Fe og fl. stöðum.
Austurlönd því nú er tækifæri til að fara í hóp-
ferð með islenzkum fararstjóra til fjariægari
Austurianda, Thailands og Filippseyja.
SKREPPTU
til London í eina viku og sjáðu nýjustu kvik-
myndirnar og tízku heimsins. Þangað er flug alla
laugardaga.
V/LJ/RÐU VESTUR
þá bjóðum við sól og sjó á MIAMI ásamt enda-
lausum ferðamöguleikum, s.s. Disneyland o.fl.
OG EFÞÚ GETUR BEÐIÐ
þá leggur lystiskipið MS. FUNCHAL úr höfn í Reykjavík 12. ágúst nk. og siglir til
Þórshafnar, Osló, Kaupmannahafnar, Amsterdam, Edinborgar og síðan heim á leið.
Pantið strax því plássum er óðum að fækka vegna mikillar eftirspurnar.
SUNNA
BANKASTRÆTI10- SÍMI29322