Dagblaðið - 27.11.1978, Page 8
8
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 27. NÓVEMBER 1978.
DANSHOSIN UNDIR SMÁ-
SJÁ LÖGREGLUNNAR
— þaufaranúí
bann hvert
af öðru
Dansstaðirnir eru nú undir smásjánni
hjá lögreglunni. i gærkvöldi var veit-
ingastaðurinn Hollywood i banni.
Staðurinn fékk aðeink leyfi til að hafa
opið til kl. 11.30 þar sem of margir voru
inni á staðnum er lögreglan taldi út þar
fyrir hálfunt mánuði. Um sömu helgi
var talið út úr Óðali og reyndust einnig
of margir þar og fer staðurinn sennilega I
bann um næstu hejgi. Þá var talið út úr
Sigtúni í gærkvöldi og reyndust þar of
margir eins og á hinum stöðunum. Þá
mun Þórscafé hafa tekið út sitt bann um
síðustu helgi en talið var út úr húsinu
fyrir þremur vikum og reyndust ol'
margir gestir í húsinu. Virðist þannig
sem um sé að ræða herferð lögreglunnar
gegn danshúsunum um þessar ntundir.
- GAJ
»
Taliö út úr einu veitingahúsi
borgarinnar. Slíkar talningar
lögrcglunnar hafa veriö
tlftar að undanförnu og nú taka húsin út
refsingu sina.
þriðjudags- og föstudagskvöld til kl.10
á meöan málið er ífrekari athugun.
Við væntum þess að þessi
opnunartími verði ykkur að gagni.
BORGARHÚSGÖGN
HREYFILSHÚSINU VIÐ GRENSÁSVEG - SÍMAR 85944 OG 86070
Hafsteinn Egilsson á Astrabar, Hótel
Sögu, sigraði I slðustu keppni, long-
drinks-keppni, með drykk sem hann
nefnir Fullt hús. DB-mynd Bjarnleifur
Keppa
um bezta
þurra
hana-
siélið
Barþjónar landsins ætla að notfæra
sér næsta „þurran dag”, miðvikudags-
kvöldið næstkomandi, til að reyna með
sér I keppni um bezta þurra kokkteilinn.
Barþjónaklúbbur íslands sér um fram-
kvæmdina í Þórskaffi.
Keppnin að þessu sinni verður með
öðru sniði en vant er. Keppnin verður
um kvöldið og húsið opið almenningi.
Borðhald hefst kl. 19 en að þvi loknu
hefst keppnin. Þá fer fram tízkusýning
og Halli og Laddi munu skemmta sam-
komugestum.