Dagblaðið - 27.11.1978, Síða 35
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 27. NÓVEMBER 1978.__
Æviminningar Betty Ford komnar út
ALDREIVERIÐ EINS ANÆGÐ
Betty Ford viröist vera að mestu
búin að ná sér upp úr drykkju og lyfja-
töku í óhófi. Hún hefur líka yngzt upp
við andlitslyftinguna, sem hún fékk
sér á dögunum. Eftir nteðferð á sjúkra-
húsi segist hún vera áhyggjulaus eins
og fuglinn fljúgandi. Og hún Ijómaði
af gleði er hún á dögunum áritaði
æviminningar sínar fyrir fólk. The
Tinies of my Life heitir sú merka bók.
Versta tímabil æfi sinnar sagði hún
fréttamönnum hafa verið það er til
stóð að Nixon færi frá og Ford tæki
við. „Ég gat ekki horfzt i augu við
þetta," sagði hún.
Bezta timann segir hún hins vegar
vera núna, þegar hún er orðin sextug.
Núna loksins sé hún orðin sátt við
lifið. Það var hún ekki á rneðan
Gerald Ford dvaldi langdvölum að
heiman vegna pólitíkurinnar og hún
hirðistein meðbörnin.
Einntanakenndin hrakti hana í
faðm bakkusar og út i pilluát. Laust
eflir sextugsafmælið lýsti Susanna,
dóttir Ford hjónanna því vTtropinber
lega að fjölskyldan væri óttaslegin
vegna notkunar Bettyjar á tauga-
lyfjum og víni.
Hinn stutti timi sem Betty dvaldi i
Hvíta húsinu varð nógu langur til þess
að hún vann sér hylli allrar amerisku
þjóðarinnar. Fyrst og fremst fyrir það
hversu hrein og bein hún var og hikaði
ekki við að ræða mál eins og það að
brjóstið var tekið af henni,
opinberlega. Timinn i hvita húsinu
varð henni góður, þvi Gerald dvaldi þá
meira heima við en hann hafði gert.
Margir gerðu sér vonir um að hann
færi aftur i framboð en fleiri voru þeir
sem óskuðu eftir því að Betty færi sjálf
i framboð í stað manns síns.
En Ford náði ekki kosningu og
Betty reyndist erfitt að fara frá Hvita
húsinu. Vonbrigði manns hennar
höfðu djúpstæð áhrif á hana og hún
varð aftur mikið ein og flaskan og
pilluglasið urðu huggunin. Susanna
varð fyrst til þess að sjá að við svo bú-
ið mátti ekki standa og krafðist hún
þess að móðir hennar gerði eitthvað
til úrbóta. í fyrstu mátti Betty ekki
heyra á það minnzt að eitthvað amaði
að sér. En seinna, á sameiginlegum
fundi fjölskyldunnar, viðurkenndi
Betty að hún væri farin að þjást af
minnisleyfi og að hún hrasaði stöku
sinnumágangi.
Og hún var drifin á taugahæli á
strönd Kaliforníu og meðferð hennar
Svona var Betty fyrír aðgerðina.
Hún yngdist ýkjulaust um 20 ár við andlitslyftinguna.
Útveggjasteinn Þakpappi Eldhúsinnréttingar Veggfóður
Milliveggjaplötur Múrnet Plaströr & fittings Veggstrigi
Spónaplötur Rappnet Gluggaplast Gólfflísar
Grindaefni Skrúfur Álpappír Veggflísar
Plasteinangrun Þakrennur Garöastál Lím
Glerullareinangrun Hreinlætistæki Lamir & skrár Gólfdúkur
Steinullareinangrun Blöndunartæki Rafmagnsverkfæri Korkflísar
Glerullarhólkar Viöarþiljur Málningarvörur Saumur
Þakjárn Baðskápar Verkfæri
Organista - tónlistarstarf
Organista vantar við Ólafsvíkurkirkju frá 1. janúar n.k.
— Æskilegt að viðkomandi taki að sér skólastjórn og
kennslu í Tónlistarskóla Ólafsvíkur.
Upplýsingar gefur formaður sóknarnefndar í síma
54313 eða sóknarprestur í síma 93-6107.
Sóknarnefnd
ALLT UNDIR EINU ÞAKI
húsió
BYGGINGARVORUDEILD
JÓN LOFTSSON HF.
HRINGBRAUT121
tókst það vel að læknar útskrifuðu
liana og sögðu hana alheila.
Núna drekkur hún ekki lengur og
neitar meira að segja að taka lyf við
stöðugum hálsverk sem hún þjáist af. í
samkvæminu sem haldið var til að
fagna nýju bókinni drakk hún
einungis gosdrykki, en leit lika betur
út en hún hafði nokkru sinni gert.
Fyrir ntánuði fór hún i plastíska
skurðaðgerð til þess að fjarlægja
hrukkur og poka úr andlitinu. Eins og
henni var likt skýrði hún frá þessu
opinberlega. „Sumir voru ekkert allt
of hrifnir.” segir hún um viðbrögð
fólks. „Fánnst að ég ætlaði að verða
einhver puntudúkka með þessu."
Fæstir sögðu þó nokkuð eftir að
aðgerðinni var lokið enda eru slíkar
aðgerðir orðnar næsta algengar þar
vestra.
Núna búa Ford hjónin í Kaliforniu.
Gerald er enn á sifelldu flakki að halda
ræður og við golfleiki. Ekki er talið
óliklegt að hann fari í framboð til for-
setakosninganna 1980. Og Betty hefur
lýst því yfir að ef til þess komi niuni
húnstyðja mannsinn.
En hún hcfur nýlega sagt frétta-
mönnum að hún viti ekki ennþá hvort
af framboðinu verður. Einnig sagðist
hún vera hamingjusamari en nokkru
sinni i 15 ár og tryði þvi að enn væri
það bezta eftir. Hún trúir þvi að bókin
hennar eigi eftir að seljast í enn meira
upplagi en æfiminningar manns
hennar sem eiga að koma út næsta
sumar. -DS.
Hinn frægi lýtalæknir Ma/ahcri með Betty undir hnifnum.
VIÐ ST/B<KUM
OGBREYTUM
bjódum við flestar byggingavörur á
sama stað í nýinnréttuðu húsnæði á 1.
og 2. hæð, samtals 600 m2.
Komið og skoðið. — Það er hagkvœmt að verzla
allt á sama stað.