Dagblaðið - 04.12.1978, Page 3
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 4. DESEMBER 1978.
Sauðárkrókur:
Beðið eftir útibústjóranum
Spurning
dagsíns
Einn að norðan skrifar:
í Búnaðarbankanum á Sauðárkróki
virðist það látið viðgangast að banka-
stjórinn þar reki allumfangsmikla
einkastarfsemi í sínum fasta vinnu-
tíma í bankanum. Mun það eigi fátítt
að viðskiptavinir bankans, sem erindi
eiga við bankastjórann þurfi að biða
tímum saman vegna viðskiptavina
sem erindi eiga við sama mann
varðandi einkareksturinn. Það sem
hér er átt við, er að hann mun hafa á
hendi umboðsstörf á Sauðárkróki
fyrir Sjóvátryggingafélag íslands. Ekki
skal því haldið fram hér, að hann mis-
noti þá aðstöðu sem hann hefur þarna,
en Ijóst er að skammt er orðið milli
hans eigin hagsmuna og hagsmuna
bankans, t.d. varðandi útlán vegna
bílakaupa. En óskað er svara við eftir-
farandispurningum:
1. Hvaða tengsl eru milli Búnaðar-
bankans og Sjóvá?
2. Hefur bankastjórinn leyfi bankans
til þess að reka Sjóváumboðið á
þennan hátt?
3. Heimila reglur um aukastörf
bankastjóra og annarra embættis-
manna þetta?
4. Er starfsemi Sjóvá víðar um land
með þessum hætti?
DB leitaði til útibústjóra Búnaðar-
bankans á Sauðárkróki og bar efni
bréfsins og spurningarnar undir hann.
Hann taldi ekki ástæðu til þess að
svara bréfi manns, sem ekki vildi
skrifa undir fullu nafni. Þá taldi hann
rétt að ef einhver viðskiptavinur bank-
ans væri óánægður með þjónustuna
þá væri eðlilegra að leita til hans beint
heldur en í gegnum Dagblaðið.
Heimffls-
iæknir
svarar
Ttaddir lesenda taka við'
skilaboðum til umsjónar-
manns þáttarins „Heim-
ilislœknir svarar" í síma
27022, kl. 13-15 alla
virka daga.
LELEG ÞJÓNUSTA LEIGU-
MIÐLUNAR
María Sveinsdóttir hringdi:
Ég vil koma á framfæri óánægju
minni með leigumiðlun hér í bæ. Ég
lét skrá mig í Leigumiðluninni Húsa-
skjól, sem var til húsa að Hverfisgötu,
en er nú flutt á Vesturgötu 3. Þegar ég
lét skrá mig þar og borgaði tiu þúsund
kr. lofuðu starfsmenn leigumiðlunar-
innar að hringja í mig.
Nú hef ég verið þrjá mánuði á skrá
og aldrei hefur verið hringt til mín og
ég var heldur ekki látin vita að leigu-
miðlunin var flutt. Þegar ég var búin
að hringja ótal sinnum í leigumiðlun-
ina án árangurs, gerði ég mér ferð á
Hverfisgötuna, en þá kom í Ijós að
hún var flutt þaðan en ekki upplýs-
ingar um hvert hún flutti.
Ég fékk siðan upplýsingar um það i
gegum þjónustu símans að leigumiðl-
unin væri flutt að Vesturgötu 3. Ég
fór þangað og þar stóð á miða að opið
væri frá 1—6. Ég var þar kl. 2 en þá
var lokað. Síðan hef ég oft komið
þangað en alltaf er lokað.
Ekki ber árangur að hringja. Ég hef
nú fengið húsnæði i gegnum DB. Ég
veit um fleiri sem eru óánægðir með
þjónustu þessarar leigumiðlunar, því
þar er aldrei neinn við.
Dagblaöió reyndi að hafa samband
viö leigumiðlunina Húsaskjól til þess
að bera efni bréfsins undir starfsmenn
þar. Það reyndist árangurslaust þar
sem ekki var svarað i sima.
Hringið
í síma
27022
milli kL
13 og 15
Áfengis-
varnarráð
verði lagt
niður
— og þess ístað stutt
við AA samtökin
ogSÁÁ
K.S. skrifan
Ég skora á hina ungu og glæsilegu
þingmenn úr öllum flokkum, að bera
fram þá tillögu á Alþingi, aö Áfengis-
varnarráð verði lagt niður. Við viljum
öll að rikið spari og ég fæ ekki séð að
Áfengisvrrnarráð g?ri gagn. Með því
að leggja það niður má spara milljónir
eða milljónatugi.
Í ráðinu eru menn sem skilja ekki
vandann vegna ofstækis sem blindar
augu þeirra. Vafalaust vilja þeir vel en
ráðin eru úrelt. Vilji ríkið hins vegar
leggja fram fé til áfengisvarna er nær
að styðja við bakið á AA samtökunum
og SÁÁ. Þar er drykkjufólki hjálpað
og bjargað.
Hver hefur heyrt dæmi þess að
templarar byðu drykkjumenn vel-
komna í stúkur?
r
HOOVER MEÐ 1000 W MÓTOR,
ELEKTRÓNÍSK SOGSTILLING!
Meðlagið helmingur
framfærslukostnaðar
Anna Reynisdóttir hringdi:
Nýlega var þvi haldið fram i grein í
DB að barnsmeðlag föður væri aðeins
fjórðungur framfærslukostnaðar
barns. Þessu mótmæli ég, því ef svo
væri,væri framfærslukostnaður barns
á mánuði 98.148 krónur og það sér
hver kona, að ekki er rétt.
Þá segir og að meðlagið dugi ekki
fyrir gæzlu barnsins. Ef barnið er i
einkagæzlu fær einstæð móðir endur-
greiðslu kr. 20.700 á mánuði, þá eru
eftir 23.550 kr. og dugir meðlagið fyrir
því. Ég tel að meðlagið frá föður nægi
fyrir helmingi framfærslukostnaðar
barnsins.
Það má ræða þann möguleika að
meðlag minnki ef konur gifta sig.aftur
og þá i sæmileg efni. Það má þó ekki
verða til þess að tengslin milli föður og
barns minnki. Þau tengsl má ekki
rjúfa.
/ hvert sinti sent þú notar “HOOVER CONGO“ verðurþérljósar,
hve val þitt á ryksugu var rétt. Hún er falleg og hefur alla þá kosti
sem ryksugu má prýða. Sjálfvirkt snúruinndrag. Gefur merki
þegar skipta þarf um poka. Stór hjól og m. m.fl. Auk þess býr
“CONGO“ yfir nokkrum sérstökum kostum sem ekki finnast
samankomnir hjá neinni annarri ryksugu á sambcerilegu verði.
Ifyrsta lagi er sogstyrknum stjómað elektrónískt, svo hcefir hvort
sem er þykkasta teppi eða viðkvcemasta lampaskermi. í öðru lagi
er “CONGO“ búin sérstakri “HOOVER-pokalosun", þú þarft
aldrei að snerta fullan pokann við tcemingu, hreinlegt ogþœgilegt.
íþriðja lagi fylgir “HOOVER-tcekjaberinn“, hann ersettur ofan
á ryksuguna svo öll hjálpartceki séu við hendina rneðan unnið er.
Hann má svo hengja upp í skáp.
HOOVER er heimilishjálp
FÁLKIN N*
SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670
Meö ,JtOOVEK CONGO“
getur þú samtimis uttrtið
erfiðustu verkin jafnt og þau
viðkvcemustu, eins og t.d. að
hreinsa viðkvœman lampa-
skerm. Þú ákveður sogstyrk-
inn með þvt að stilla hnapp-
inn sem stýrir mótornum
elektróniskt.
✓
Hvað borðarðu
á jólunum?
Vilhjálmur Guðmundsson leigubilstjóri:
islenzkan mat. Alltaf hangikjöt og eitt-
hvað í sambandi við svín. Nei, ég borða
ekki rjúpur, einfaldlega af þvi að ég hef
aldrei vanizt þcim.
Guðmundur Adólfsson málari: Rjúpur
eru alltaf vinsælar hjá mér. Svo er það
hamborgarhryggur og skilyrðislaust
hangikjöt á jóladag.
Kjartan Gunnarsson lyfsali: Rjúpur, það
hef ég gert lengi. Með þeim hef ég rauð-
kál og slíkt. Svo hef ég hangikjöt á jóla-
dag.
Ástbjörg Haraldsdóttir nemi: Ham-
borgarhrygg á aðfangadagskvöld . og
hangikjöt á jóladag.
Jón Gunnlaugsson: Ég borða oft rjúpur.
Og svo hangikjöt á jóladag. Ég er aftur
ekkert fyrir svinakjöt.
Ásmundur Danielsson flugvélstjóri:
Hangikjöt. Og gjarnan rjúpur. Nei, ég
veiði þær ekki heldur kaupi í búðum.