Dagblaðið - 04.12.1978, Blaðsíða 23

Dagblaðið - 04.12.1978, Blaðsíða 23
DAGBbAÐIÐ. MÁNUDAGUR 4. DESEMBER 1978. 27 >ttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir íþróttir D íslenzka landsliðið varð í 3ja sæti í Frakklandi — tapaði fyrir A-liði Frakklands en vann stórsigur á Kínverjum ísland hafnaöi í þriöja sæti í fimmliða keppninni I Frakklandi. Þrír sigrar, tvö töp — tap á föstudagskvöldið gegn gest- gjöfunum, Frökkum 18—15, en sigur í siöasta ieiknum gegn Kinverjum, 35— 24. Frakkar höfðu lengst af undirtökin i viðureign Islendinga og Frakka. Þeir komust mest yfir 4 mörk í fyrri hálfleik, 10—6 en staðan í leikhléi var 10—8. tslendingar voru einum fleiri í upphafi siðari hálfleiks en það dugði skammt. Frakkar skoruðu úr sinni fyrstu sókn, komust í 11—8, siðan rann sóknarlota íslenzka liðsins út i sandinn og Frakkar brunuðu upp og fengu víti. Ólafur Bene- diktsson, markvörður var rekinn af velli, og Frakkar komust I 12—8. í stað þess að nýta það að vera manni yfir var islenzka liðið fjórum mörkum undir og auk þess að missa mann útaf. tsland náði að minnka muninn í 16—14, en sigurinn var Frakka, 18—15. tsland mis- notaði þrjú vítaköst. Víkingamir í ís- lenzka liðinu skoruðu 14 af 15 mörkum liðsins. Páll Björgvinsson skoraði 6, Viggó Sigurðsson 3, Árni Indriðason og Sigurður Gunnarsson 2 hvor og Ólafur Jónsson 1 mark. Auk Vikinganna skoraði Þorbjörn Guðmundsson, Val eitt mark. Þeirerhvíldu gegn Frökkum voru Bjarni Guðmundsson, Hörður Harðarson og Kristján Sigmundsson. Siðasti leikur tslands var gegn Kínverjum. Uppselt var, áhorfendur voru 4 þúsund og flestir til að sjá Kinverja, en þeir leika i handknattleik mjög frábrugðið það því er gerist í Evrópu, sýna alls konar uppátæki. Staðan í leikhléi var 12—12 en Jóhann Ingi Gunnarsson, þjálfari liðsins hefur heldur betur lesið yfir sínum mönnum því í síðari hálfleik var algjör einstefna. Stórsigur, 35—24. Þorbjörn Guðmunds- son skoraði fiest marka tslands 9. 5 víti. Árni Indriðason 6, Ólafur Jónsson, Páll Björgvinsson og Viggó Sigurðsson 4 mörk hver. Hörður Harðarson 3, Steindór Gunnarsson 2, Hannes Leifs- son, Stefán Gunnarsson og Bjarni Guðmundsson 1 mark hver. Þeir Sigurður Gunnarsson, Þorbjörn Jensson og Jens Einarsson hvíldu. Pólverjar sigruðu í mótinu, unnu stór- sigur á Frökkum í úrslitaleik mótsins, 34—18 eftir 13—5 í leikhlé. Pólverjar komust i 7—1 eftir 11 mínútna leik þrátt fyrir snjalla markvörzlu Frakkans Varinot. Pólverjar unnu mjög nauman sigur á íslandi, 23—22. Pólverjar höfnuðu því í 1. sæti, Frakkland A í 2. sæti, ísland í 3. sæti, Kína í 4. sæti, Frakkland B i 5. sæti og lestina rak Túnis. „Ég tel ekkert vafamál að íslenzka liðið er sterkara en hið franska. Frakkar náðu mjög góðum leik gegn okkur, og við létum dómarana pirra okkur en er leikið er á heimavelli andstæðingsins má alltaf búast við slíku. Þá var það afdrifa- ríkt að við misnotuðum þrjú víti,” sagði Jóhann Ingi Gunnarsson, þjálfari islenzka liðsins eftir ferðina til Frakklands. „Kjarni íslenzka landsliðsins er leikur á Spáni kemur úr þessum hóp. Ég reikna með að þurfa að taka einhverja inn og vona að Geir Hallsteinsson gefi kost á sér. Það tel ég ákafiega mikilvægt. Það var ákafiega slæmt að geta ekki stillt upp sterkasta landsliði okkar gegn Dönum hér í Reykjavik 18. og 19. desember. en þá verða Víkingarnir í Svíþjóð. Hins vegar munu þeir Axel Axelsson og Ólafur H. Jónsson leika með gegn Dönum, og eins jafnvel Gunnar Einars- son, er leikur nú með Árhus KFUM. „Ég er ánægður með árangurinn í Frakklandi í sjálfu sér. Leikur íslenzka liðsins gegn Pólverjum var mjög góður. við áttum að sigra Pólverjana að minu mati en markvörður þeirra beinln.is bjargaði liðinu frá tapi. En það vantar enn festu. Þrátt fyrir það er ég bjart- sýnn. Ef hægt er að ná þessum árangri án æfinga hvað þá með samæfingum,” sagði Jóhann Ingi Gunnarsson enn- fremur. H Þrátt fýrir að Sigurður Krístjánsson ÍR sé í öruggu skotfæri og knötturínn færi Ijúflega ofan i körfuna nægði það ÍR-ing- um ekki I leik þeirra við Val á laugardag- inn. Síðustu mínúturnar sigu Valsmenn fram úr og sigruðu. DB-mynd Bjarnleifur VALUR SEIG FRAMURILOKIN í LEIK HINNA STERKU VARNA sigraði ÍR 82-75 í Hagaskóla í gær í úrvalsdeildinni Valsmenn eru komnir á fullu I barátt- una um efsta sæti i úrvalsdeildinni í körfuboltanum og nú eru þeir einir liða auk KR-inga, sem aðeins hafa tapaði fjórum stigum. Eftir leik þeirra við ÍR I gær eru hinir síðarnefndu aftur á móti með sex stig töpuð ásamt Njarðvfk- ingum. Sigur Vals varð þó ekki öruggur fyrr en á sfðustu mínútunum og segja má að leikirnir i úrvalsdeildinni geti faríð hvernig sem er og ekkert lið hefur veru- lega yfirburði yfir önnur. Leikurinn í Hagaskólanum á laugar- daginn var þófkenndur til að byrja með en síðan sigu ÍR-ingar fram úr um miðjan fyrri hálfieik og var þá staðan 21—14. Ekki mikið skorað enda var þetta leikur hinna sterku vama. Síðar jafnaði IR aftur en við lok hálfieiksins voru Valsarar aftur komnir yfir með 39 stig gegn 34. Sama baráttan hélzt út allan siðari hálfieikinn. Leikar stóðu 53 gegn 53 og á elleftu mínútu, 57 stig gegn 57 en siðan komst Valur i 66—57. Þeir breyttu stöð- unni í 71 stig gegn 72 og voru þar með komnir einu stigi yfir og aðeins þrjár mínútureftir. Þessar siðustu mínútur voru úrslita- mínúturnar. Völsurum tókst að gera ell- efu stig gegn aðeins þrem stigum lR- inga. Það sem réði úrslitum var að ÍR- ingar hittu ekki úr sínum færum og Valsmenn fengu færi á að bruna upp og skora. Þar var þáttur Hafsteins Haf- steinssonar stór og auk þess átti hann góðan leik að þessu sinni. Stórskytta þeirra Valsmanna var lítt áberandi að þessu sinni enda fékk hann fijótlega fjórar villur og var þá tekinn út af. Fimmta villan kom síðan fijótlega eftir að hann kom inn á i byrjun siðari hálf- leiks. Þórir gerði aðeins fjögur stig að þessu sinni. Fremur óvenjulegt. Tim „Janus Guðlaugsson heldur til Belglu á morgun, þriðjudag, og verður vikutfma hjá Standard Liege. Hann langar til að kynnast æfingum hjá atvinnumannaliði og mun auk þess leika með varaliði Standard. Það er ekki þar með sagt að hann gerízt atvinnumaður hjá félaginu — en hann hefur þó áhuga á að vera i at- vinnumennsku um tfma. Ef honum llzt á aöstæður I Liege — og þeim á hann — er Dwyer átti að líkindum sinn bezta leik hér á landi til þess. Sérstaklega var frammistaða hans í vörninni athyglis- * verð. Annars var vörn þeirra Vals- manna mjög góð eins og áður sagði. Tim gerði 27 stig. Einnig áttu þeir Kristján Ágústsson og Ríkarður Hrafnkelsson góðan leik og einnig Hafsteinn. Kristján gerði 19 stig og Ríkarður 16. ÍR-liðið átti góðan leik á laugardaginn þó svo ekki tækist þeim að vinna. Vörn- in var góð og oft á tiðum bregður fyrir skemmtilega hreyfanlegri sókn. Paul Stewart var langbeztur og gerði 31 stig ekki að vita hvað gerist. En það er auðvitað mál Janusar,” sagði Álbert Guðmundsson, þegar DB ræddi við hann i morgun. „Janus kom til mfn og sagði mér frá áhuga sínum. Ég talaði þá við Petit, framkvæmdastjóra Standard, en við erum góðvinir frá þvf við lékum i París 1948 — og ég veit að hann er heiðar- þrátt fyrir að hans var gætt af Tim Dwyer. Tim fékk að visu fjórar villur strax i byrjun síðari hálfleiks og þá fimmtu alveg í lok leiksins. Ekki bar mikið á Jóni Jörundssyni að þessu sinni enda var hans vandlega gætt í sókninni og skoraði hann lítið. Kolbeinn Kristins- son og Kristinn Jörundsson áttu báðir góðan leik og gerðu 14 og 12 stig. Liklega er það breiddin, sem helzt háir ÍR-ingum. Ekki er nægilegt að hafa gott fimm manna lið til að komast klakklaust í gegnum heilt mót, það þurfa fieiri að koma til. - ÓG legur og góður maður. F.g vil ekki annaó en það bezta fyrir Janus, sem er frábær iþróttamaður og góður piltur — og þess vegna kom ég honum á framfæri við Petit. Hann verður f Liege f viku og kem- ur heim aftur á mánudag. Þá kemur væntanlega á daginn hver niðurstaða þessa máls verður,” sagði Albert ennfremur. JANUS TIL STANDARD Axel og Ólaf ur leika gegn Dönum Þeir Axel Axelsson og Ólafur H. Jónsson munu leika með Islenzka lands- liðinu gegn Dönum hér f desember. Þeir koma heim sama daginn og leikiö verður og samkvæmt viðtali við landsliðsþjálfar- ann Jóhann Inga Gunnarsson hér i DB mun hann jafnvel kalla Gunnar Einars- son heim, en Gunnar leikur mcð Árhus KFUM f Danmörku. ísland verður án Vfkinganna gegn Dönum, en sex þeirra léku í Frakklandi, Páll Björgvinsson, Árni Indriðason, Viggó Sigurðsson, Sigurður Gunnars- son, Ólafur Jónsson og Kristján Sig- mundsson. Auk þeirra valdi Jóhann Ingi Ólaf Einarsson en hann gat ekki gefið kost á sér. Vikingur leikur siðarí leik sinn við Ystad einmitt um þær mundir er lcikirnir gegn Dönum fara fram. Vals- mennirnir munu leika með gegn Dönum en Valur leikur sfðarí leik sinn við rúm- ensku meistarana 14. desember f Rúmenfu. Bandaríkin sigruðuáHM fgolfi — en ísland f46. sæti Bandarikin — Andy North og John Mahaffey — sigruðu með yfirburðum í heimsbikarnum i golfi á Hawaii i gær. Léku á 564 höggum og John Mahaffey var bezti keppandinn á mótinu. Lék á 281 höggi — sjö höggum undir pari vallarins. North lék á 283 höggum. Kanada varð i öðru sæti með 577 högg. Dave Barr lék á 67—69—75—78, og Dan Halldorson á 70—72—73 og 73. I þriðja sæti voru Filipseyjar með 581 högg og Ástralfa f fjórða sæti mcð 574 högg. Þátttökuþjóðir voru 48. íslenzku keppendunum, Björgvini Þorsteinssyni og Ragnari Ólafssyni, gekk illa. Island nr. 46 eða f þriðja neðsta sæti með 660 högg. Finnar léku á 672 og Júgóslavar á 703 höggum. Ragnar lék samtals á 320 höggúm, 87—76—77 og 80, en Björgvin á 340 höggum. 85—87—88 og 80 höggum. Af árangri annarra þjóða má nefna Danmörk 603, Per Grcve 300 högg, og Herluf Hansen 303. Svíþjóð 587 högg. Gunnar Múller 287 og lék síðasta hringinn á 69 og Hans Hedjcrson 300 högg. Noregur 640. Tore Sviland 315 högg og Erik Donnestad 325. England lék á 577 höggum, Skotland 579, Japan 586, Spánn 580, Mexikó 585, Sviss 647 og írland 586. Fyrsta tap hjá Hofweier — Dankersen og Göppingen sigruðu „Við vorum nokkuð lengi að ná okkur á strik hjá Dankersen gegn Rheinhauscn á laugardag i Bundeslígunni. Það gekk Iftið framan af. Staðan 10—9 fyrir Rheinhausen f hálflcik. Jafnt sfðan 12— 12 og 13—13 en Dankersen skoraði næstu fjögur mörk, 17—13, og þar með var sigurinn í höfn, 20—15. Göppingcn sigraði Grambke 24—17 á heimavelli. Gunnar Einarsson lék mcð Göppingen á ný. Skoraði eitt mark og Þorbergur Aðalsteinsson skoraði einnig eitt mark fyrir Göppingen — Björgvin Björgvins- son tvö fyrir Grambke,” sagði Axel Axelsson, þegar DB ræddi við hann i morgun. Úrslit í öðrum ieikjum urðu þcssi: H úttcnbcrg — Leverkusen 18— 16 Gummcrsbaeh — Hofweier 15— 10 Milbcrtshofcn — Rintheim 22—16 Grosswallstadt — Kiel 15—13 Gensungcn— Nettelstedt 15—17 Spennan á toppnum jókst. Hofweier tapaði sínum fyrsta leik. Mörk Danker- sen skoruðu Axel 8/5, Waltke 3, Meyer 3, Ólafur H. Jónsson 2, Grund 2, Kramer 2, van Oepen og Bcckcr — en í leiknum við Rheinhausen meiddist Beckerilla.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.