Dagblaðið - 04.12.1978, Blaðsíða 20

Dagblaðið - 04.12.1978, Blaðsíða 20
20 ✓ Margirgrétu við minningarathöfnina — þegar minnzt var Moscone borgarstjóra og Milk borgarfulltrúa við ráðhúsið DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 4. DESEMBER 1978. 1 Frá Hallgrimi Björgólfssyni frétta- rítara DB i San Francisco: Það var undarlegt andrúmsloftið á Market st., San Francisco, þann 27. nóv. sl. þegar S.F. þúar gengu l'rá Castro st. að Borgarhöllinni til að votta virðingu, sorg og undrun sína eftir að borgarstjórinn George Moscone og borgarfulltrúi Harvey Milk voru skotnir til bana fyrr um daginn. Sá sem játað hefur að hafa framið þetta ódæði er Dan White fyrr- verandi borgarfulltrúi er hafði þann 10. nóv. beðizt' lausnar frá starfi, sökum þess að hann gæti ekki fram- fleytt fjölskyldu sinni af laununt borgarfulltrúa sem er $ 9.600 yfir árið. En 15. nóv. sá hann sig um hönd ogvildistarfiðaftur. Lagalegar flækjur töfðu málið en Moscone sagði honum að hann myndi setja hann inn i starfið á ný-ef hann fengi stuðning frá fólki frá því borgar- svæði sem hann var kosinn i. Nokkrir dagar liðu og fólk frá svæði Dan White kom fyrir utan Borgarhöllina og mótmælti að hann yrði settur i starfið á ný. Óstaðfestar fréttir hernia að, að kvöldi þann 26. nóv. hafi út- varpsstöð hér i borg kom-zt á snoðir um að Moscone hafi sagt að þrir af umsækjendunt um starfið, þar á nieðal Dan White, fengju ekki starfið. Hún hljóðaði upp á að banna ætti kynvillingum að kenna i skólum. Morðinginn Dan White hefur fengizt við ýmsa hluti um dagana. Hans opinberi ferill byrjaði hér í San Francisco árið 1969 þegar hann gekk i lögreglu borgarinnar. En fljótlega hætti hann þtar, til að fara í bakpoka- ferðalag um Bandarikin. Ári seinna gekk hann í lögregluna á ný og var þar næstu 2—3 árin, fór síðan i slökkvilið San Francisco og var þar þangað til hann var kosinn í borgarráð núna i september. í fljótu bragði litur ferill hans vel út. Þegar hann var i lögreglunni mun tann aldrei hafa hleypt af byssu sinni. ilökkvilið borgarinnar ætlaði i sömu úku og morðin voru framin, að veita Vhite orðu fyrir dugnað við að bjarga Hringdi stöðin í White og spurðu hann hvað honum fyndist. Hann mun hafa orðið fjúkandi vondur og skellt simanum á. White var pólitískur and- stæðingur borgarstjórans og Harvey Milk borgarfulltrúa. í síðustu kosningum tapaði White fylgi en hann var hlynntur svonefndri tillöeu nr. 6. V GÓÐ GJÖF TIL VINA ERLENDIS EJzta sérkort, sem tH er af SeHjarnarnessvæðinu. Útgefandi Rotaryklúbbur SeHjarnarness. Verð kr. 3500.-. örfá eintök eftir. Fæstí Bókasafni Seitjarn- arness í Mýrar- húsaskóia oghjá verzl. Úlfarsfelli, Hagamel 67. < fólki út úr brennandi háhýsi en það skeði fyrr á þessu ári. Talið er að ca. 25. þús. manns hafi farið í sorgar- gönguna að Borgarhöllinni með logandi kerti. Það var ekki óalgengt að sjá fólk tárfella því allir hér í borg eru sammála um að San Francisco hafi misst tvogóða forystumenn. Á tröppum Borgarhallarinnar var fólk saman komið i kringum blóm og kerti sem almenningur hafði sett á tröppurnar. Fólk hafði, strax og fréttin barst, komið að Borgarhöllinni og staðið fyrir utan til að biða eftir skýringu sem ekki fékkst. Fólk stóð allt siðdegið og spurði hvert annað: Af hverju? Kl. 8 um kvöldið byrjaði gangan og fór hún álika langa leið og er frá Lækjartorgi upp að Slökkvist. v/öskjuhlið í Reykjavik. Gangan var hægfara og dramatísk og héldu flest- allirákertum. Atburðir síðasta hálfa mánuðinn hafa haft mikil áhrif á borgarbúa þar sem að atburðirnir i Guyana eru mjög tengdir San Francisco. Það má greini- lega finna að borgarbúar eru mjög hugsi og slegnir þessa dagana og er borgin ekki sú sama áhyggjulausa San Francisco og hún yfirleitt er. Þegar gangan kom niður að Borgarhöllinni var þar saman komið mikið af fólki. Þvi næst héldu nokkrir vinir hinna látnu minningarræður og siðan var 1. min. þögn i virðingarskyni við þá látnu. Moscone borgarstjóri var 49 ára gamall. Hann lætur eftir sig konu og 4 börn. Hann var kosinn borgarstjóri fyrir þremur árum. Hann þykir hafa gengt störfum borgarstjóra með ágætum, nema hann var bendlaður við að þiggja fjármagn frá Hughes Airwest sem er flugfélag Howard Hughes heitins en það félag hefur verið að reyna að fá betri aðstöðu við flugvöllinn í San Francisco. Skoðana- könnun sem var gerð nokkru áður en Moscone var myrtur sýndi að ekki væri liklegt að hann yrði endurkjör- inn. Harvey Milk var 48 ára gamall og var fyrsta opinberlega kynvillta manneskjan sem kosin var í embætti i San. Francisco. Meginmarkmið hans var að fá mannréttindi kynvillts fólks viðurkennd. I þeim málefnum vann hann sigur þegar tillaga var felld um að því fólki væri bannað að kenna í almenningsskólum. Hann var vel liðinn af almenningi, þó átti hann mesta fylgið frá sinum líkum. Áður en hann var kosinn á þing rak hann litla ljósmyndabúð sem er á Castro street (aðalgata , kynvilltra karla i San Francisco). Daginn sem hann var myrtur, sá ég á sjónvarpi viðtal við nokkra úr þeirra hópi, þar sem þeir bókstaflega grétu, við það að tala um látinn félaga sinn, því Milk var persónulegur vinur margra þeirra.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.