Dagblaðið - 04.12.1978, Blaðsíða 6

Dagblaðið - 04.12.1978, Blaðsíða 6
6 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 4. DESEMBER 1978. Straffhót- unin dró úr aðsókn og helgin varð óvenjuróleg Þó svo að mánaðamót hafi verið nú um helgina voru lögreglumenn viðast hvar á landinu sammála um að mjiig rólegt hefði verið um helgina. Hvergi var um að ræða ölvun i meira lagi þó svo að dansleikir hafi verið i flestum kaupstöðum og kauptúnum landsins. Lögreglumenn áttu þvi náðuga helgi, lausir við skarkala og læti sem 'oft vill fylgja er menn bregða undir sig betri fætinum og skella sór á dansleiki. 1 Reykjavík var óvenju fátt á sumum danshúsunum enda höfðu kvisast um það sögur fyrir helgina að mörg danshúsin yrðu i straffi og húsin lokuð kl. 11,30. Hefur það vissulega átt sinn þátt í þessari óvenju rólegu helgi, alla vega hér á höfuðborgar- svæðinu. -ELA. Banaslys á Egilsstöðum: FIMM BARNA MÓDIR BEK> BANA — er fólksbíll og vörubíll skullu saman — einnig valt jeppi á sama vegi Það sviplega slys varð á Egils- stöðum nú fyrir helgina, eftir hádegi á föstudag, að fólksbíll og vörubíll skuliu saman með þeim afleiðingum að 39 ára gömul kona Kristín Áskels- dóttir, Bjarkarhlið 5. Egilsstöðum beið bana. Kristín ók bílnumsem var:ifCitroen gerð, en maður hennar sem sat í fram- sæti slapp með skrámur, að lokinni athugun á sjúkrahúsi fékk hann að fara heim til sín. Kristín mun hafa látizt samstundis, en hún mun hafa hlotið slæmt höfuð- högg. Kristín var fimm barna móðir en börn hennar eru á aldrinum 5—18 ára. Slysið mun hafa orðið með þeirn hætti að ökumaður vörubilsins sem ók austur Egiisstaðanes hafi ætlað að hemla eða aka framúr. Mjög mikil hálka var á veginum sem hallar litil- lega niður til vinstri. Mun vörubíllinn hafa runnið til við gatnamót flugvallrrvegarins, en þar kom fólksbillinn á móti með þeim afleiðingum að árekstur varð. Fólks- billinn gjöreyðilagðist og vörubillinn munvera óökuhæfur. Ökumann vörubílsins sakaði ekki. Vegur þessi var oliuborinn i sumar og mikil hálka á honum. Stuttu eftir þetta sviplega slys, vait jeppi með fjórum ungmennum á þessum sama vegi. Ekki urðu slys á mönnum en bíllinn stórskemmdist. Er því óhætt að beina þvi til ökumanna að fara gætilega þegar um svona mikla hálku er að ræða á veginum. -ELA. Mikill eldur í bergiðju Klepps- spítala Mikið tjón varð er eldur kom upp í bergiðju Kleppsspítala aðfaranótt laugardagsins um kl. 2.00 Þegar slökkviliðið kom á staðinn logaði glatt út um glugga á norður- og suðurhlið byggingarinnar og upp úr þakinu. Slökkviliðið réðst strax gegn eldinum með tveimur háþrýstislöng- um og kom bráðlega í ljós að eldurinn var í fölsku lofti, varð því að rjúfa þakið til að kömast að honum. Töluvert erfitt var að komast að eldinum þar sem mikill reykur seinkaði starfinu, þó var lokið við að slökkva eldinn um kl. 3,30. Miklar skemmdir eru á byggingunni bæði utan húss og innan, en verður reynt að koma upp nýrri vinnu- aðstöðu fyrir vistmenn hið bráðasta á vestari enda byggingarinnar sem bezt slapp úr eldsvoðanum. -ELA. 385 dagaráári: Ameríkanar ekki krafð- ir um endurgreiðslu Ekkert hefur verið gengið eftir þvi af hálfu Flugmálastjórnar, að banda- rísk stjórnvöld borgi náms- og dvaiar- kostnað verkfræðinganna tveggja, sem sagt var frá i DB á laugardaginn. Það var upphaflega sett sem skilyrði af hálfu samgönguráðuneytisins, að bandarísk stjórnvöld borguðu allan kostnað. Samgönguráðuneytið hefur málið til athugunar, en getur væntanlega litið gert úr því sem komið er, nema e.t.v. að minna Flugmálastjórn á reikninginn sem Amerikanarnir eiga að borga. ÓV. Grima reykkafarans fellur þétt að öndunarfærum hans. Sjá má greinilega nýja útbúnaðinn á grímunni, hljóðnemann sem hann talar í og frá honum er snúra i heyrnartækið sem kafarinn hér á myndinni á eftir að festa við eyra sér. DB-myndir Sveinn Þormóðsson. Talsamband við menn á kaf i í reyk — Slökkviliðið fær ný og góð tæki ' Slökkviliði Reykjavikur hafa nýlega áskotnast þörf og góð tæki. Tækin gera það kleift að haft sé talsamband við reykkafara liðsins, sem hafa það hættulega starf með höndum að vaða inn i brennandi hús, sem kunna að vera full af reyk og eru engum mönnum fær inngöngu, sem ekki hafa til þess góð öndunartæki auk æfingar og reynslu við starfið. 1 eldsvoða getur það skipt sköpum um mannslíf hversu fljótir reykkafararnir eru að komast inn í hið brennandi hús. Að þeir geti talað við þá sem úti eru er einnig afar mikilvægt fyrir slökkvistarfið i heild. Þegar reykkafararnir hafa lokið sinu fyrsta hlutverki, sem er að kanna hvort einhver er inni, geta þeir snúið sér að því að finna hvar eldsupptökin eru, lýst húsaskipan og fleiru. Talsamband milli þeirra og félaga þeirra úti fyrir er því ómetanlegt á mörgum sviðum. Hin nýju tæki eru af fullkomnustu gerð, sem nú er fáanleg, en verð þeirra ætti að skila sér í björgun mannslífa og fleiru er að slökkvistarfi lýtur. -ASt. 1 þessum brúsum sem reykkafarinn ber á baki sér felst öryggi hans. Ef þeir sködduðust, þá er hann er að störfum, héngi lif hans á bláþræði Sjálfstæðiskonur þinga um vinnumarkaðinn og fjölskylduna: GÓÐ REYNSLA AF SVEIGJ- ANLEGUM VINNUTÍMA ÚTI- VINNANDIKVENNA Landssamband sjálfstæðiskvenna og Hvöt efndu til ráðstefnu laugardaginn 18. nóv. sl. um Vinnumarkaðinn og fjöl- skylduna. Ráðstefnan stóð frá kl. 9,30 f.h. til kl. 18,30 e.h. Þrír meginumræðuþættir voru á ráðstefnunni, voru það i fyrsta lagi, sveigjanlegur vinnutimi, vinnuálag- yfirvinna. Er vinnuþrælkun á íslandi? og fjölskyldan og fyrirvinnan. Um sveigjanlegan vinnutima, kom það fram hjá sjálfstæðiskonum að reynsla þeirra sem reynt hafa sveigjan- legan vinnutima sé mjög góð og mætti gefa þessu máli meiri gaum hér á landi. Einnig var bent á að vinnutiminn tak- markaðist viö almennan dagvinnutima. Var bent á fimnt atriði í því sambandi. Um fjölskylduna og fyrirvinnuna, var einnig rætt og kom þar fram að fjöl- skyldan væri að komast i þrot vegna ósveigjanleika vinnumarkaðarins gagn- vart þörfum fjölskyldunnar. Vinnu- markaðurinn verður í auknum mæli að laga sig að þörfum fjölskyldunnar. Félag sjálfstæðiskvenna vildi jafn- framt benda á vanda ungs fólks, sem þarf að sinna bæði uppeldishlutverki og koma undir sig fótunum efnahagslega. Aukið rými á dagvistunarheimilum og hagstæðari húsnæðislán eru hér þung á metunum. Sjálfstæðiskonur héldu fund sinn í sjálfstæðishúsinu Valhöll og voru all- margir fulltrúar boðnir frá hinum ýmsu félagssamtökum. -ELA. Trade and Industry um bókina Viðskipti og þjónusta: FYLLIR UPPIEYÐ- URNAR UM ÍSLAND í nýjasta hefti brezka tímaritsins Trade and Industry, sem gefið er út i stóru upplagi af brezka viðskiptaráðu- neytinu, er sagt frá íslenzku uppsláttar- bókinni Viðskipti og þjónusta sem fyrir- tækið Árblik hf. gefur út. Er þar lokið lofsorði á bókina sem sérlega fyllandi og vandað uppsláttarrit. Segir blaðið að þrátt fyrir að Bretar hafi flutt vörur til Íslands fyrir 39 milljónir punda, hafi brezkir útflytjendur ekki fyrr haft aðgang að góðum upplýsingum um fyrirtæki, stofnanir, o.fl. á Islandi fyrren nú. Sérstaka hrifningu vekur enski text- inn og nokkurs konar orðasafn um algengustu orð i íslenzkum fyrirtækja- heitum, jafnframt fjöldi skráninga, sem er um tíu þúsund. Birtir blaðið mynd af þessari 870 siðana bók, sem bundin er í svipuðu bandi og simaskrá, enda ætluð til að vera við höndina en ekki upp i hillu. Bókin er seld bæði í Bandaríkjun- um og í Evrópu. -G.S.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.