Dagblaðið - 04.12.1978, Blaðsíða 24
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 4. DESEMBER 1978.
Vetur konungur tók völdin, 36
leikjum f restað á Bretlandi!
—Arsenal sigraði Liverpool í stórleiknum í Lundúnaborg
Vetur konungur réd rikjum á Bret-
landseyjum á laugardag. 36 leikjum
frestað á Englandi og Skotlandi og þar
á meðal öllum leikjunum i skozku
úrvalsdeildinni. Snjór, is, frost gerðu
það að verkum að viða var ekki hægt
að leika — og slæmt hefur það verið
þvi fresta varð leikjunum á Goodison
Park og Old Trafford — þeim völlum,
sem eru hvað bezt útbúnir til að mæta
slikum veðurskilyrðum og þar eru
grasteppin upphituð. Allt kom samt
fyrir ekki — ekki hægt að leika I
Lancashire. Mun skárra á Suður-
Englandi og þar voru fimm leikir háðir
il.deUd.
Aðeins einn stórleikur í 1. deild.
Arsenal-Liverpool á Highbury í
Lundúnum og þar voru áhorfendur
yfir 51 þúsund. Liverpool-liðið byrjaði
vel og virtist ætla að yfirspila Arsenal
en heppnin var ekki með því í marktil-
raununum. Kenny Dalglish átti skot í
þverslá Arsenalmarksins á sjöttu
mínútu — en svo breyttist leikurinn
Arsenal í hag á 31,min. Frank Staple-
ton komst í markfæri — misheppn-
aðist J)ó spyrnan og knötturinn
skoppaöi í átt að marki Liverpool. Ray
Clemence varði en missti knöttinn frá
sér og Graeme Souness kom á fullri
ferð. Ætlaði að spyrna frá en tókst
ekki betur en svo að hann spyrnti
knettinum beint i mark Liverpool. Slík
var frásögn fréttamanna á leiknum en
eftir leikinn sagðist David Price, fram-
vörður hjá Arsenal, hafa stýrt knett-
inum i markið — og aðrir Arsenal-
ieikmenn studdu hann I þeim fram-
burði.
I síðari hálfieiknum reyndi Liver-
pool mjög að jafna — en allt kom fyrir
ekki. t mark Arsenal vildi knötturinn
ekki, þrátt fyrir ótviræða yfirburði
Evrópumeistaranna. Talsverð harka
— þrír leikmenn Arsenal bókaðir m.a.
írarnir Liam Brady og David O'Leary
og Souness hjá Liverpool. Furðulegt
tak, sem Arsenal hefur á Liverpool.
Liðið hefur aðeins tapað einum heima-
leik gegn Liverpool siðustu þrettán
árin.
23 leikir
á Engiandi
En litum á úrslit í þeim leikjum, sem
háðir voru áður en lengra er haldið.
I.deild
Arsenal-Liverpool 1-0
Bristol City-Derby 1-0
Ipswich-Leeds 2—3
QPR-Bolton 1-3
Southampton-Birmingham 1-0
2. deild
Brighton-Orient 2-0
C. Palace-Newcastle 1-0
Fulham-Notts Co. 1-1
Millwall-Cardiff 2-0
Stoke-Leicester 0-0
Sunderland-Bristol Rov. 5-0
West Ham-Cambridge 5-0
3. deild
Brentford-Walsall 1-0
Exeter-Southend 0-0
Gillingham-Carlisle 0-0
Oxford-Rotherham 1-0
Swansea-Sheff. Wed. 4-2
Watford-Mansfield 1—1
4. deild
Doncaster-Rochdale 1-0
Huddersfield-Aldershot 0-0
Newport-Darlington 2-1
Northampton-Portsmouth 0-2
Wimbledon-Halifax 2-1
Þrátt fyrir tapið — annað tap Liver-
pool á leiktímabilinu — heldur liðiöen
tveggja stiga forustu i 1. deildinni.
Hefur þó nú tapað jafnmörgum
stigum og nágrannaliðið Everton.
Leeds, sem náð hefur mjög góðum
árangri siðan Jimmy Adamson tók við
Peter Taylor, nr. 11 hji Tottenham, skorar sigurmark liðs sins á laugarda:
eftir að Paul Bradshaw, markvörður Úlfanna, hafði varið vitaspymu frá honun..
Um leið og Taylor spyrati knettinum i markið lenti hann á markverðinum — og
Bradshaw var fluttur á sjúkrahús illa meiddur á fingri. Það var eftir 36 min. leik.
Ken Hibbitt fór i markið og fékk ekki á sig mark i leiknum! — en Bill Rafferty
kom inn sem varamaður. Á myndinni að ofan Uggur Bradshaw á markUnunni en
nr. S er Bob Hazell, hinn sterki miðvörður Úlfanna — einn þeirra svertingja, sem
nú eru mjög i sviðsljósinu á Englandi.
stjórninni, fékk óskabyrjun i leiknum
gegn Ipswich. Ray Hankin skoraði
eftir aðeins 85 sek. Ipswich tókst að
jafna með furðulegu marki. Kevin
Beattie, miðvörðurinn sterki hjá
Ipswich, tók aukaspymu rétt við
miðlínu. Spymti knettinum í átt að
marki Leeds. Boltinn fór yfir alla
varnar- og sóknarmenn i vitateigum
og mjög á óvart lét David Harway,
markvörður Leeds, knöttinn einnig
sigla yfir sig og í markið. Óvenjulegt
hjá landsliðsmarkverði að fá slíkt
mark á sig — af um fimmtiu metra
færi.
Leeds náði fijótt forustu aftur með
marki Carl Harris og i byrjun síðari
hálfleiks kom Trevor Cherry Leeds I
3—1, eftir homspymu. Ipswich-liðið
gafst ekki upp og tókst að minnka
muninn í 2—3, þegar John Wark
skoraði úr vítaspymu eftir að fyrirliði
Ipswich, Mick Mills, hafði verið
felldur innan vitateigs. Fleiri urðu
mörkin ekki — og það lá alltaf í
loftinu að Leeds mundi vinna.
Unnu einum færri
Litið skeði lengi vel í leik Bristol
City og Derby en þegar talsvert var
liðiö á síðari hálfieikinn rak dómarinn
framvörð Bristol City, Trevor
Tainton, af leikvelli. Staðan var þá
0—0 og Derby virtist nú hafa mögu-
leika á að sigra. Það varð þó ekki.
Bristolliðið skoraði og hlaut bæði
stigin.
trinn snjalli hjá Arsenal, Liam Brady,
var bókaður á laugardag og það fer nú
að styttast i að hann fari i leikbann i
ensku deildakeppninni. Er i leikbanni i
Evrópukeppninni.
Bolton lék QPR sundur og saman i
vesturbæ Lundúnaborgar í fyrri hálf-
leik á laugardag. Alan Gowling
skoraði fyrsta markið eftir sendingu
Roy Greaves. Frank Worthington
kom Bolton í 2—0 eftir undirbúning
Willie Morgan, skozka landsliðs-
mannsins, sem lenti í málaferlunum
við Tommy Docherty — en Morgan
var, leikmajur hjá Man.Utd. þegar
Docherty,ygf,ítjófi þar. Worthington
skoraöi ,þriðja "ritark Bolton með
þrumufieyg utan vitateigs. Fallegasta
mark leiksins og staðan í hálfieik 3—0
fyrir Bolton — eða sú sama og þegar
Bolton lék aðeins sunnar í Lundúnum
við Chelsea. Tapaði samt þeim leik
4—3. Minnugir þess léku leikmenn
Bolton sterkan varnarleik i síðari hálf-
leik og unnu öruggan sigur. Arabinn
Rachid Harkouk skoraði eina mark
QPR í siðari hálfieiknum.
Tarantini meiddist
Enn sigur á ógæfuhliðina hjá
Birmingham — tap á suðurströndinni
gegn Southampton og argentíski
heimsmeistarinn Tarantini borinn af
velli eftir 18 minútur, meiddur.
Dýrlingamir léku alltaf betur og
klaufar að vinna ekki með meiri mun.
Eina mark leiksins skoraði Phil Boyer
á 47. mín. Holmes tók þá homspymu
og knötturinn hafði snert höfuð
tveggja vamarleikmanna áður en
hann féll fyrir fætur Boyer tvo metra
frá marki. Hann gat ekki misnotað
slikt tækifæri og fimmta mark hans á
leiktimabilinu var staðreynd. Þrjú
þeirra skoruð gegn Birmingham.
I 2. deild hefur Crystal Palace eins
stigs forustu eftir sigur á Newcastle í
skemmtilegum og fjörugum leik í
Lundúnum á laugardag. Mike Elwiss
skoraði eina mark leiksins tveimur
min. fyrir hálfieik. Stoke tókst ekki að
sigra Leicester á heimavelli en leik-
menn West Ham sendu knöttinn
fimm sinnum i mark Cambridge.
Fyrst Alan Taylor á 3ju mín. en siðan
varð löng bið í það næsta. Pop Robson
skoraði á 69. min. Á siðustu fjórum
minútunum skoraði West Ham
þrivegis. Fyrst Alan Cusbisley, þá
Billy Bonds og að lokum Robson.
Sunderland-liðið er komið í mikinn
ham. Skoraði fimm mörk gegn Bristol
Rovers. Wayne Entwistle, sem
Sunderland fékk á síðasta leiktímabili
frá Bury, skoraði þrjú markanna —
Bob Lee og Gary Rowell hin tvö.
Sunderland er nú í fjórða sæti, aðeins
þremur stigum á eftir efsta liðinu.
Vítaspyrna
misnotuð
Brighton vann öruggan sigur á
Orient með mörkum Brian Horton,
vitaspyrna, og Peter Sayer. Horton
misnotaði einnig vítaspymu í leiknum.
Peter Ward, miðherjinn snjalli, lék
með á ný i Brighton-liðinu. 1 leik botn-
liðanna vann Millwall öruggan sigur.
Mitchell skoraði fyrra markið — en
hið síðara var sjálfsmark velska
landsliðsmannsins Phil Dwyer hjá
Cardiff.
í 3. deild er Watford efst með 27
stig. Swansea hefur 26 stig og Shrews-
bury 24. Watford náði aðeins jafntefli
á heimavelli gegn Mansfield, einu af
neðstu liðunum i 3. deild. Goodwin
skoraði fyrir Mansfield og það var ekki
fyrr en langt var liðið á leikinn að Ray
Train jafnaði. John Toshack skoraði
tvö af mörkum Swansea gegn Sheff.
Wed, — jafntefii 2—2 í hálfieik — en
Phil Boersma og Jerome Charles,
sonur Mel Charles, sem lengi lék með
Arsenal, hin tvö.
Ferguson rekinn
1 4. deild hefur Wimbledon nú
fjögurra stiga forustu, 29 stig. Ports-
mouth og Reading hafa 25 stig og
Barnsley 24 stig. Wimbledon — í
suðurjarði Lundúnaborgar — átti í
basli með Halifax á laugardag, en
Halifax er langneðst i deildinni.
George Kirby, sem þjálfað hefur
Akurnesinga með góðum árangri,
virðist því eitthvað vera að rétta Hali-
fax við þó seint gangi. Annar fyrrum
Akranes-þjálfari Mike Ferguson var
rekinn frá Rochdale i 4. deild i siðustu
viku. Á laugardag tapaði Rochdale
fyrir Doncaster og er nú að leita sér að
nýjum stjóra.
•hsím.
Staðan ernúþannig.
2. deild
Liverpool 18 13 3 2 43-8 29
Everton 17 10 7 0 24—9 27
WBA 16 9 5 2 31—14 23
Nott. For. 16 7 9 0 19-9 23
Arsenal 17 8 6 3 28-17 22
Coventry 17 7 6 4 24-23 20
Man. Utd. 17 7 6 4 24-27 20
Tottenham 17 7 6 4 21-26 20
Leeds 18 7 5 6 35-24 19
A. Villa 17 6 6 5 22-16 18
Bristol City 18 7 4 7 21-21 18
Derby 18 7 3 8 24—34 17
Man. City 16 5 6 5 24-20 16
Norwich 16 4 7 5 28-28 15
Southampton 18 4 7 7 18-21 15
Ipswich 18 6 2 10 20—27 14
Middlesbro 17 5 3 9 21-23 13
QPR 17 3 6 8 13-22 12
Bolton 18 4 4 10 22-36 12
Wolves 17 4 1 12 13-32 9
Birmingham 18 2 4 12 17-30 8
Chelsea 17 2 4 11 19—35 8
2. deUd
C.Palace 18 9 7 2 30-15 25
Stoke ' 18 9 6 3 25-17 24
WestHam 18 9 5 4 35-17 23
Sunderland inr 18 9 4 5 29-23 22
.Fulhain,. v 18 8 5 5 24-19 21
Notts. Co. 18 8 5 5 25-30 21
Brighton 18 9 2 7 29-22 20
Bumley 17 7 6 4 29-25 20
Wrexham 17 6 7 4 22-13 19
Bristol Rov. 17 8 3 6 29-31 19
Newcastle 18 7 5 6 17-20 19
Charlton 17 6 6 5 29-22 18
Luton 17 7 3 7 33-21 17
Leicester 18 4 8 6 15-17 16
Cambridge 18 4 8 6 17-21 16
Oldham 17 6 4 7 22-28 16
Orient 18 6 3 9 20—23 15
Sheff. Utd. 17 4 4 9 20-26 12
Preston 17 4 4 9 24-34 12
Blackbum 17 3 5 9 20—32 11
Cardiff 17 2 7 8 20—39 11
MillwaU 18 3 2 12 14-33 9