Dagblaðið - 04.12.1978, Blaðsíða 44

Dagblaðið - 04.12.1978, Blaðsíða 44
Brennuvargs leitað — hann er trúlega skorínn á höndum, — taliö víst að kveikt hafi verið í að Kleppi Það þykir alveg Ijöst að brotizt hafi verið inn i vinnusaiina við Kleppsspítala, skömmu áður en elds varð þar vart, sem olii gffurlegum skemmdum á húsinu og stöðvar f ramleiðsiu 'uum óákveðinn tíma. Er innbrotjð sett i samband við veikjuna i húsinu. Lögreglumenn komu að brotnum glugga á húsinu, fjarri þeim stað, þar sem eldsupptökin urðu. Rúðan brotnaði því ekki af eldi. í gluggakarmi og á veggnum fyrir neðan glugg- ann vom blóðslettur og er talið víst að sá er braut gluggann og fór inn hafi skoriö sig við tiltækið. Enn hefur leit að maiini með skurðarsár ekki borið árangur, hvorki á Klepps- spítala né i slysadeild. Málið er í rannsókn. Sjá og f rétt á bls. 6i ^St. Við brotnu rúðuna langt frá eldinum. Lögreglumenn skoða blóðslettur á veggnum. DB-mynd Sveinn Þorm. Jólasveinninn í umferöinni I dag hefst jólagetraunin meö hinni fyrstu af átta þrautum. Hverri teikningu fyigja þrjú umferðarmerki og á eitt þeirra við í hvert sinn. Þessi umferðarmerki eru dönsk þannig að ef til vill kannast ekki allir við þau. En myndirnar á þeim eru lýsandi og auðvelt að gera sér í hugarlund hvað þau tákna. Þetta er alls ekki svo erfitt og öll Jjölskyldan getur tekið þátt í að leysa vandann. Þegar þið hafið rétta svarið klippið þá út seðilinn og geymið þar til allar áttaþrautirnar eru komnar. Seinnafáið þið að vita hvað margir aðrir leystu þrautina. Jólasveinamir hafa aldrei þótt góðir bílstjórar enda voru þeir komnir nokkuð til ára sinna er bllar komu á markaðinn. Þeir félagamir eru í vandrœðum með að koma jólagjöfunum til byggða þar sem þeir eru heldur illa upplýstir í umferðarmerkjum. Lesendum gefst kostur á að leysa átta þrautir með jólasveinunum og birtast þessar þrautir I blöðunum ncestu 8 daga. Leysið allarþrautirnar áður en þið póstleggið lausnirnar. ' , .....— J frjálst, óháð dagblað MÁNUDAGUR 4. DES. 1978. Skólavörðustígur 14: Mestallt kaupverðið í skattinn — „Kaupandi borinn röngum sökum” segir lögmaðurhans „Verði samningum rift, verður á það fallizt af umbjóðanda mínum af því að hann vorkennir seljanda og skilur þá hagsmuni hans að missa ekki mest allt kaupverðið í skattinn,” sagði Guðjón Steingrímsson, hrl., sem er lögmaður kaupanda hússins að Skólavörðustíg 14. Lögmaður kaupanda segir umbjóð- anda sinn hafa verið borinn röngum sök- um í kæru út af viðskiptum sem DB hefur greint frá. Meðal annars kveður hann kaupverðið ranglega tilgreint. Það hafi ekki verið tæpar 50 milljónir heldur 82 milljónir króna. Þá hafi þess ekki verið getið, að selj- andi gerðist hlutahafi i fyrirtækinu Stjörnunni hf. að einum fimmta hluta. Átti hann að verða stjórnarformaður og starfsmaður þess. Ekki hafi verið hægt að skuldbinda félagið án samþykkis hans. Loks hafi matið á húsinu til sölu verið vægast sagt vefengjanlegt. Reynt verður í dag að ná sáttum og samkomu- lagi. - BS Þorvaldur Garðar lík- lega f orseti efri deildar — með stuðningi stjórnarliða „Þorvaldur Garðar hefur áður staðið sig með sóma í forsetastól,” sagði einn þingmaður Alþýðubandalagsins í morg- un. Allt bendir til þess, að sjálfstæðis- maðurinn Þorvaldur Garðar Kristjáns- son verði kjörinn forseti efri deildar al þingis í dag í stað Braga Sigurjónssonar (A), sem hefur sagt af sér. Alþýðuflokks- og alþýðubandalags- menn i deildinni munu ætla að styðja Þorvald. Þá er ekki gert ráð fyrir miklu andófi framsóknarmanna, þótt þeir hafi vonazt til að þeirra maður, Jón Helga- son, tæki við stöðunni. Alþýðuflokksmönnum stóð til boða að velja annan mann í stað Braga, en þeir höfnuðu því. Vildi enginn þeirra „draga úr mótmælum Braga” við verð- bólgufrumvarpinu eða verða „samein- ingartákn ríkisstjórnarinnar”. eins og Bragi komst að orði, þegar hann sagði af sér. „Ég hef aldrei litið svo á, að forseti þingdeildar sé sameiningartákn, hvorki stjórnar né stjórnarandstöðu," sagði Þorvaldur Garðar i morgun i viðtali við DB. Hann kvaðst að öðru leyti ekki geta tjáð sig um málið á þessu stigi. • HH

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.