Dagblaðið - 04.12.1978, Side 16

Dagblaðið - 04.12.1978, Side 16
16 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 4. DESEMBER 1978. Steindór Ölafsson, hótelstjóri og Sveinn Sæmundsson blaðafulltrúi Flugleiða skála I jólaglöggi. Að baki standa Guðmundur Thorarensen þjónn og Snorri Bogason matsveinn. DB-mynd Bjarnleifur Frumkvöðlar jólaglöggsins á íslandi: HEFÐÁ HÓTELESJU „Við byrjuðum með þetta fyrir þrem árum og það er okkur auðvitað ekkert launungarmál, að þessu hefur verið ákaflega vel tekið. Ég var sjálfur á ferða- lagi i Danmörku og kynnist þessum sið þar og ákvað að bjóða upp á glöggið hér heima. Við íslendingar ætlum að taka þessum jólasið vel, ef marka má viðtök- urnar,” sagði Steindór Ólafsson, hótel- stjóri á Hótel Esju á fundi með frétta- mönnum þar sem boðið var upp á jóla- glögg. Fyrir þá, sem ekki vita er jóla- glögg hitað rauðvín með kanel og rúsínum út i og er stór þáttur í jólagleði manna i Evrópu, sérstaklega á Norður- löndunum. Með glögginu eru bornar fram piparkökur. Fleiri veitingastaðir hafa fylgt i kjölfar hótelsins með veitingu jóla- glöggs, en á Hótel Esju verður það veitt i hádeginu og á kvöldin fram til jóla. Þá leikur Jónas Þórir jólalög á bíó-orgel i matartimum á laugardögum og sunnudögum. -HP. Og blaðamönnum var boðið til borðs til að bragða á jólaglögginu. Ný bók: MANNTAUÐ Á ÍSLANDI1801 Manntal á Islandi 1801 nefnist bók sem Ættfræðifélagið hefur gefið út og notið til þess aðstoðar Þjóðskjalasafn íslands og einnig fjárstyrks úr rikissjóði og þjóðhátíðarsjóði. Manntalið 1801 erelzta manntal sem til er á öllu landinu, annað en manntalið 1703, sem Hagstofa Islands gaf út á sínum tíma. Manntalið 1801 er ekki aðeins mikilvæg heimild fyrir þá sem mann- fræði stunda, heldur veitir hún einnig margvíslegar hagfræðilegar og félags- legar upplýsingar um þjóðina fyrir 180 árum. Manntalið er 492 bls. Júníus Kristjánsson skjalavörður hefur búið bókina til prentunar en prentsmiðjan Hólar hefur prentað bókina og bundið. Ættfræðifélagið ætlar að halda útgáfu manntalsins áfram og er gert ráð fyrir þrem bindum. -ELA. Félag refa- og minka- veiðimanna stof nað Félag refa- og minkaveiðimanna á íslandi var stofnað 19. nóvember sl. Markmið félagsins eru í sex liðum; að sameina þá menn sem eiga sömu hags- munaaðgætatilaðstanda vörðumrétt þeirra, að halda ref ogvilliminkialgjöru lágmarki um allt land, því þessi dýr eru miklir skaðvaldar bæði sauðfé og fugla- og fiskalífi, að viðhalda ræktun og þjálfun á góðum veiðihundum til refa og minkaveiða, að stuðla að fækkun veiði- bjöllu og annars álika vargfugls, að stuöla að hækkun verðlauna fyrir unn- inn ref og mink og að þau fylgi kaupvísi- tölu eöa verðlagi i einhverri mynd, að beita sér'fyrir þvi að hreppsfélög geti leitað til félagsins um aðstoð við eyðingu áðurnefndra dýrategunda. Formaður félagsins er Hörður Sævar Hauksson er aðrir i stjórn Oddur örvar Magnússon og Helgi Backmann. Heimilisfang félagsins er að Garðvík 13 Borgarnesi og sími 7582 og þeir sem vilja gerast félagar geta haft samband við ein- hvern stjórnarmanna. r Framtiðarþróunin í fyrri grein gerði ég grein fyrir í stórum dráttum hvernig efnisheimur- inn hefur þróast i núverandi mynd. Visindamenn láta ekki staðar numið eftir að hafa leyst fortíðina. Framtíðarþróun heimsins hefur valdið þeim heilabrotum um áratuga skeið og ekki að árangurslausu þvi segja má að aðeins tvær kenningar komi nú til greina i þessa átt, studdar svo hald- bærum rökum að aðrar leiðir hverfa þar i skuggann. Önnur þessara kenn- inga er sérstaklega sannfærandi þar sem hún fellur undir náttúrulögmálið og afstæðiskenningu Einstein, en þar er breytileikinn allsráðandi, krefjandi og kallar á að öll sköpun hverfi aftur til uppruna síns. Samkvæmt henni þá mun heimurinn dragast saman eftir að ákveðinni þenslu er náð og þar með eiga vetrarbrautirnar að snúa við á ákveðnu stigi og leita aftur til miðju- staðar síns, þjappa sér þar saman i einn ógnar eldhnött með tilheyrandi sprengingum og hitamyndun þar sem efnið mun þá leysast upp að nýju i Kjallarinn SigurðurJónsson grundvallarfrumefni sitt, vetni, og samfara vaxandi hita hlaða sig orku til nýrrar þenslu. Samkvæmt þessu þá er hvorki um upphaf né endi að ræða, heimurinn þenst út og dregst saman endalaust. Það má líkja honum við innöndun og útöndun. Komið hafa fram tilgátur um að til sé annar efnisheimur aðskilinn okkar heimi sem dragist saman meðan þessi heimur þenst út. Slíkir heimar gætu allt eins verið fleiri en tveir. Samkvæmt útreikningum á heildar- efnismassa hins þekkta efnisheims, þá vantar örlítið uppá að þessi kenning standist stærðfræðilega, en það bendir allt til þess að ennþá séu til staðar óþekktir efnismassar innan hans, af þeirri stærðargráðu sem á vantar til að hún hljóti almenna viðurkenningu. Hin kenningin hljóðar á þá leið að heimurinn haldi stöðugt áfram að þenjast út. Stærðfræðilega stefnir þróunin í þá átt meðan hinn kritiski lágmarksmassi finnst ekki. Samkvæmt því ætti heimurinn að hafa átt sér upphaf og upphafi hlýtur að fylgja endir, en slikt er vísindamönnum alger ráðgáta að útskýra. Þessi kenning leiðir þar með ekki til neinnar niður- V r Friður og friðrof Ólafur Jóhann SjgurSason: VIRKIOG VÖTN. M6I og menning. Reykjavtk 1978.127 bls. Þessi nýja ljóðabók Ólafs Jóhanns sver sig í ætt við eldri Ijóð hans sem vænta má. Að þeim beindist slík at- hygli með bókmenntaverðlaunum Norðurlandaráðs um árið að þarflaust er að lýsa þeim einu sinni enn. Inntak Ijóða Ólafs er vegsömun kyrrláts sam- býlis manns og umhverfis, hylling al- þýðlegs húmanisma. Þetta er heimur á hvörfum enda tregi og angurværð yfir mynd hans i Ijóðum skáldsins, sbr t.a.m. Máltið á engjum í þessari bók, einkar næmlegt og látlaust kvæði. Andspænis þessum heimi, jafn- vægum og traustum, þar sem fólkið hefur lært nægjusemi og þrautseigju í sambúð við náttúruna, stendur önnur veröld. Það er samtíðin, gráðug, óheil, glamursfull og vélráð. Skáldið skelfist hið menningarlega rof sem orðið hefur og óttast að þau verðmæti sem standa hug hans næst verði fyrir borð borin. Týra í glugga Þessari afstöðu, sem að sjálfsögðu er íhaldssöm eins og allt það sem eink- um miðast við siðferðislegar undir- stöður, lýsir Ólafur hvarvetna í ljóðum sínum. Sem dæmi má taka Athvarf i Virkjum og vötnum. Gestur- inn kemur „frá athvarfsleysi i borg og harðlæstum dyrum” og leitar að lág- reistum burstabæ með týru í glugga: Ólafur Jóhann Sigurðsson rithöfundur. Hann nemur staðar sem finni hann ylinn þar inni umfaðma sig og kærlcikann til sin streyma, sem kenni hann öryggishlifa I illskiftaveröld og upprunans friður liði um hrakið brjóst. minning, ó minning... Nú skelfur skammdegishiminn og skeyti stálguðsins splundrast án afláts I fjarska. En hvað «r orðið um athvarf draumóramanns, lágreistan bæ með logandi týru i glugga, landinu samgróinn, sterkari öllum veðrum, — er hann brotinn, hruninn, horfinn um eilífð í myrkur? Bók menntir Glamurfurstar og hrossagaukur Á þennan tregastreng slær Ólafur af listfengi sem áður. En tvennt virðist mér einkenna nýju ljóðin sérstaklega. Annars vegar er eins og boðskapur þeirra eða boðunarvilji höfundar hafi sótt i fyrirrúm þar sem áður mátti segja að hann hafi samsamazt list- rænni gerð Ijóðsins, táknmáli þess. Nú lætur skáldið uppi með berari orðum það menningarlega viðhorf sem það vill koma á framfæri. Þetta hefur stundum verið orðað svo að skáld segi hug sinn fremur en að sýna hann, og þá er list Ijóðsins hætt. I annan stað kemur óbeit Ólafs á neyzluþjóðfélag- inu nú glöggar fram en áður, öllum öfugsnúningi samfélagsins eins og það horfir við. Andstæður þess og hins friðsæla náttúrulega lifs teflir Ólafur saman með einfaldari hætti. Kveðið við dengaling: í dag er engin hætta á því, dengalingur minn, að grammófónsins glamurfurstar glepji huga þinn, vciði þig og villi, töfri þig og trylli, beizli þig við baulið sitt, brelli þig og véli: þú ert að hlusta á hrossagauk með hörpu i sinu stáli! Kjörbúðar- varningur Annar kafli bókarinnar er einkum heimsósómi af ýmsu tagi. Hér er að finna tvö Ijóð i langlokustíl, með óreglulega hrynjandi, og þvi að formi til ólík obbanum af Ijóðum Ólafs. Annað þessara Ijóða, Úr naustum, er sagt tilbrigði við kvæði eftir Thorkild Björnvig. Skáldið ávarpar höfrungana og varar þá við mannskepnunni: „Treystið ekki dreyrugri og valdóðri tegund minni!" Enda er „hún reiðubú- in að svíkjahvern eiðstaf, / rifta hverj- um sáttmála himins og jarðar / fyrir -ASt. i

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.