Dagblaðið - 04.12.1978, Side 22

Dagblaðið - 04.12.1978, Side 22
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 4. DESEMBER 1978. Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Árni Njálsson tekur við FH — og Bjarni Sigurðsson, unglingalandsliðs- markvörður ÍBK, væntanlega til ísaf jarðar Árni Njálsson, hinn göðkunni þjálfari, hefur verið ráðinn þjálfari FH nxsta sumar. Hann tekur viö af Þóri Jóns- syni er þjálfað hefur FH tvö síðustu árin. FH fcll niður í 2. deild i haust. Ljóst er að FH mun verða án Janusar Guðlaugssonar i sumar. Erlend félög í Belgiu og Frakklandi hafa sýnt Janusi áhuga en nánast engar líkur eru á að Janus fari til Tony Knapp í Noregi. Eftir' þvi sem bezt er vitað mun FH halda leik- mönnum sínum en þó mun Ólafur Dani- valsson hafa mætt á æfingu hjá Viking i síðustu viku. Bjarni Sigurðsson, unglingalandsliðs- maður Keflvíkinga mun væntanlega leika með Isfirðingum í sumar. Hann er ættaður af ísafirði, en sem kunnugt er munu Keflvíkingar hafa yfir að ráða tveimur landsliðsmarkvörðum, þeim nöfnum Þorsteini Bjarnasyni og Ólafssyni. Baráttan um sæti i markinu hjá ÍBK muh því verða hörð. Skagamönnum hefur bætzt verulegur liðsauki. Sigþór Ómarsson, er síðustu tvö árin hefur leikið með Þór, Akureyri, hefur snúið aftur til Akraness. Með honum fer Sigurður Lárusson. Þá hefur Völsungurinn Kristján B. Olgeirsson einnig ákveðið að ganga í raðir Skaga manna í sumar. Og Kristinn Björnsson mun verða áfram uppi á Skaga, þrátt fyrir að hann hafi mætt í tvær æfingar hjá KR. Annar leikmaður er æft hefur með KR er ísfirðingurinn Jón Oddsson. H Halls. KR-stúlkurn- arsigruðu FH! KR-stúlkurnar komu heldur betur á óvart i 1. deild Islandsmótsins í Laugar- dalshöll í gær. Sigruðu FH 13—11. Fyrsti tapleikur FH í mótinu. Fram er efst með 10 stig en FH hcfur 9 eftir 5 umferðir. KR náði fljótt góðum tökum á leikn- um. Komst í 4—1 og Hansina Melsteð, landsliðskonan í KR, var erfið FH- stúlkunum. Þessi þriggja marka munur hélzt út fyrri hálfleikinn. Staðan í leikhléi 7—4 fyrir KR. í síðari hálfleikn- um byrjaði KR mjög vel. Komst í 10—4, siðan 12—6 og öruggur sigur var í höfn en lokakaflann tókst FH mjög að minnka muninn. Mörk KR skoruðu Hansína 7/4, Ama Garðarsdóttir 3, Ellý Guðjohnsen, Hjördis Sigurjónsdóttir og Anna Lína Sigurðardóttir. Mörk FH Svanhvít Magnúsdóttir 4, Sigrún Sigurðardóttir 3, Katrin Danivalsdóttir 3/2, Brynja Guömundsdóttir. -HJ. Tíu unglinga- met í sundinu og ÍA sigraði í 2. deild Akurnesingar sigruðu i 2. deild Bikar- keppni SSÍ um helgina eftir geysilega spennandi stigakeppni. B-sveit Ægis hafði forustu fram á siðustu einstaklings- grein. Úrslit ÍA 195 stig. B-sveit Ægis 185.5 stig. ÍBK 152 stig. KR 55 stig og HSK B-sveit 39.5 stig. Ingólfur Gissurarson, Akranesi, setti fjögur piltamet, 15—16 ára og árangur hans i 200 m bringusundi mjög góður, 2:34.7 min. Hann hafði áður sett met i þeirri grein, 2:36.5 min. Millitími i 400 m. Þar setti Ingólfur met 5:20.2 mín. og einnig i 200 m fjörsundi 2:22.4 mín. Eðvarð Eðvarðsson, ÍBK, 11 ára, setti sex sveitamet i keppninni. Mikið efni. 100 m skriðsund 1:113 min. 200 m skriðsund 2:33.8 (áður 2:37.1 mín. millitfmi 1800 m) 400 m skriðsund 5:26.8 min. 800 m skriðsund 10:57.4 min. og 200 m baksund 2:48.2. Stjórn KSÍ, aftari röð frá vinstri: Gunnar Sigurðsson, Jón Ólafur Jónsson, Bergþór I Fremri röð: Friðjón B. Friðjónsson, Jens Sumarliðason, Ellert B. Schram, formaður, Jónsson, Hilmar Svavarsson, Gylfi Þórðarson, Jóhann Ólafsson, Karl Guðmunds- Árni Þorgrimsson og Helgi Daníelsson. son, Aðalbjörn Bjömsson og Rafn Hjaltalin. | DB-mynd Bjarnleifur ÁrsþingKSI 50 milljón króna velta en 1.5 milljón halli — Ellert B. Schram endurkjörinn f ormaður Ellert B. Schram var endurkjörinn formaður Knattspyrnusambands íslands á ársþingi KSÍ sem haldið var að Hótel Loftleiðum um helgina. Það kom fram, að í fyrsta sinn í mörg ár var haili á KSt, um 1.5 milljón króna en velta KSt á sið- asta ári var um 50 milljónir króna. Þingið var með rólegasta móti, þeir er ganga áttu úr stjórn KSt voru allir endurkjörnir. Þá var vísað til stjórnartil- lögu um átta liða úrvalsdeild. t tillögu milliþinganefndar var lagt til, að átta liða úrvalsdeild með tvöfaldri umferð yrði komið á 1980. í 1. deild yrðu átta lið, númer 8, 9 og 10 úr 10 liða 1. deild féllu niður. í 2. deild yrðu 8 lið og önnur lið lékju i 3. deild. Þessari tillögu var vísað til stjórnar og 10 liða deild stendur þvi óhögguð. Samþykkt var á þinginu að félaga- skipti milli landa mættu ekki fara fram meðan leiktimabil hér á landi stendur yfir, og að leikmaður er hygðist fara í at- vinnumennsku skuli tilkynna þá ákvörðun sína til félags síns. Þá kom fram á þingi KSt að reynt er að semja um landsleik við Skota, og standa vonir til að svo takist. ísland leikur i sumar sjö landsleiki i knatt- spyrnu. t mai við Sviss ytra, þá í Reykja- vík við V-Þýzkaland. Siðan verður leikið aftur við Sviss i Reykjavík en báðir leik: irnir við Sviss eru liðir i Evrópukeppni landsliða. 1. ágúst verður leikið við Finna i Reykjavík, siðan tveir landsleikir i Reykjavik meðstuttu millibili. Þann 5. september við Hollendinga, silfurliðið frá HM, og við A-Þjóðverja 12. septem- ber. Síðasti landsleikurinn í sumar verður i Póllandi, þann 10. október. Að auki er stefnt að keppnisferð til Banda- ríkjanna og Bermúda i lok október, leiknir landsleikir en ferðin fyrst og fremst hugsuð sem umbun landsliðs- mönnum til handa. Nánar verður greint frá þingi KSÍ i DB á morgun. H Halls. Stenmark reiður Ingemar Stenmark sigraði i stórsvigi í heims-seríunni í Fulpmes á föstudag — og var mjög ánægður með sigur sinn. í gær var hann hins vegar reiður. Þá var kcppt í svigi — parallel — I San Vigilio di Arebba á ítatiu. Þar vann Stenmark Peter Nally auðveldlega — en dómar- arnir tilkynntu Stenmark að hann hefði verið á rangri braut. Sá sænski var á suðupunkti, þegar þeir kepptu á ný, og varð um tveimur sekúndum á eftir Nally I mark. Sigurvegari í keppninni varð Leonard Stock, Austurriki. Sigraði ianda sinn Klaus Heidegger i úrslitum. Feyenoord sigraði á tveimur mörkum Péturs r — og Asgeir Sigurvinsson skoraði sigurmark Standard „Það var ánægjuleg tilflnning að sjá knöttinn hafna i marki Nac Breda — eíki einu sinni, heldur tvisvar. Þar með voru fyrstu mörk mín hjá Feyenoord staðreynd og við sigruðum 2—1. Það voru allir mjög ánægðir að ég skyldi skora. Gifurlegur fögnuður um 20 þúsund áhorfenda — félagar mínir i liðinu fögnuðu mér innilega og forráða- menn Feyenoord eftir leikinn,” sagði Pétur Pétursson, miðherjinn ungi frá Akranesi, þegar DB ræddi við hann í morgun. Pétur var að vonum mjög ánægður með sinn hlut í leiknum — og i hoilenzku blöðunum í morgun var ekki um annan knattspyrnumann meira skrifað. Nac náöi forustu eftir aöeins 20 sek. i leiknum. Pétri tókst aö jafna á 55. mín. Gefið var fyrir mark Nac — hinn miðherjinn hjá Feyenoord skallaði til Péturs, sem þegar skallaði i markið. Sigurmark Feyenoord skoraði Pétur sjö mín. fyrir leikslok. Hár bolti kom inn í vitateig Nac og fór framhjá tveimor varnarmönnum. Pétur komst á milli þeirra og markvarðar Nac og renndi knettinum i netið. Gífurlegur fögnuður á hinum mikla leikvangi Feyenoord í Rotterdam — Pétur var hetja liðsins. Þetta var spennandi og tvisýnn leikur og vel leikinn. Úrslit i leikjunum i Hollandi i gær urðu þessi: AZ '67-Haag 7—1 Deventer-NecNijmegen 2—0 PSV-Maastricht 0—0 Roda-Twente 0—0 Ajax-Volendam 7—3 Haarlem-Sparta 0—0 Feyenoord-NacBreda 2—1 Vitesse Arnheim-Zwolle 3— 1 Venlo-Ultrech 1—2 Staða efstu liða er nú þannig. Roda 15 9 5 I 29—11 23 Ajax 15 10 2 3 41 — 13 22 PSV 15 9 3 3 29-10 21 Alkmaar’67 15 9 2 4 51—25 20 Feyenoord 15 6 7 2 20—8 19 „Ásgeir Sigurvinsson skoraði sigur- mark Standard úr vítaspyrnu í I. deildinni i Belgíu i gær. Ég sá leik Lokeren og Antwerpen i sjónvarpinu og Arnór Guðjohnsen stóð sig prýðilega. Jafntefli varð 2—2 og Arnór átti alveg fyrra mark Lokeren, sem Lubanski, Pólverjinn frægi, skoraði — og i síðara marki Lokeren renndi Arnór knettinum til þess, sem skoraði,” sagði Pétur Pétursson ennfremur.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.