Dagblaðið - 19.11.1979, Side 20
20
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 19. NÓVEMBER 1979.
FÓLK
ÁSGEIR
TÓMASSON1
Hhití af andstæðingum Horts. Hann varO að leggja á minnið stöðu 640
taflmanna og éður en leiknum lauk hafði hann leikið 687leiki.
Er Hort nœsti heims-
meistari í blindskák?
Kjarabót annar
ekki eftirspum
Vlastimil Hort er ekki með öllu
ókunnur í heimsmetabókum. Árið
1977 stóð Dagblaðið fyrir fjöltefli
hans i Valhúsaskóla á Seltjarnamesi.
Þar tefldi Hort gegn 550 skákmönn-'
um á einum sólarhring. Hann lagði
477 andstæðinga, tapaði tíu skákum:
og rúmum tveimur kílóum af þyngd
sinni. Alls er talið að Hort hafi jiurft
að ganga fjörutiu kílómetra leið á
sólarhringnum sem fjölteflið stóf
yfir.
Fyrir þetta afrek hlaut tékknesk
stórmeistarinn fjóra heimsmeistara-
titla. Enginn hafði áður teflt við jafn
marga andstæðinga. Hver skák tók
aðeins tvær minútur og fjórtán sek-
úndur, sem er heimsmet í svo fjöl-
mennu tafli. í þriðja lagi tefldi Hort
við 201 mann í fyrstu lotu, sem einnig
er heimsmet, og síðast en ekki sízt
háði hann einvígi við 0,25 prósent
heillar þjóðar.
Fjölteflisheimsmeti Horts var
hnekkt fyrr á þessu ári. Þar var að
verki svissneski skákmaðurinn,
Werner Hug sem tefldi við 560'
manns.
Söngsvertin KJarabót 6 sviði. Fré vinstri eru Stefén Jónsson gitarieikari,
Margrét ömóHsdóttir söngkona, Þórkatia Aðaisteinsdóttir söngkona,
Eirikur Eiiertsson söngvari, Bragi Sigurðsson grtarleikarí og söngvarí,
Fanney Jónsdóttir söngkona, Ámi Jóhannsson bassalelkari, Magna Guð-
mundsdóttir fíðiuieikari og söngkona og Kristjén Ingi Einarsson grtarieik-
ari og söngvari.
DB-mynd Atii Rúnar.
Affœðingardeildinni
á fjalir Þjóðleikhússins
— Óperan Orfeus og Euridice eftir
17. aldar tónskáldið Gluck sker sig
frá 19. aldar óperum að því leyti að
þar er ekki um neinar scrstakar
stjörnuaríur að ræða en hlutur ein-
söngvara, kórs og listdansara mjög
jafn, segir Sigríður Ella Magnús-
dóttir, en hún fer með annað titilhlut-
verkið i jólaóperu Þjóðleikhússins.
— Óperuformið sem slikt var
kotnið í megnustu ógöngur sakir tild-
urs og óhóflegs útflúrs þegar Gluck
reisti það aftur til vegs og virðingar.
Tónlistin í Orfeus og Euridice er
mjög falleg og óperan i heild mikið
augnayndi. Enda er hún á fastri verk-
efnaskrá allra helztu óperuhúsa
heims.
Sjálf hefur söngkonan haft ólíku
en engu að síður erfiðu hlutverki að
sinna að undanförnu, þvi að þann 7.
nóvember fæddust henni tveir stæltir
synir sem vógu. rúmlega 14 merkur
hvor.
— Þeir gerðu óneitanlega strik i
reikninginn hjá mér, segir Sigríður.
— Ég þurfti að liggja meira og minna
á spíiala tvo síðustu mánuðina og
varð að aflýsa öllu tónleikahaldi. Og
ég var áreiðanlega digrasta konan
sem nokkru sinni hefur stundað sund
í Vesturbæjarlauginni!
— Tvíburarnir voru teknir með
keisaraskurði og fæddust með
mínútu millibili. Þeir eru ekki ein-,
eggja og afar ólíkir, bæði að útliti og.
skaphöfn. Þeir komu líka seinna í
heiminn en við hjónin höfðum reikn-
að með svo að pabbi þeirra varð að
snúa heim til Englands skömmu eftir
fæðinguna vegna tónleikahalds. Sjálf
hef égaflýst öllum mínum verkefnum
fram á næsta vor til að geta sinnt |
þeim utan hlutverksins í Orfeus og
Euridice. En þar ntunar miklu að ég
hef sungið það áður og ég er satt að'
segja að hugsa um að skella mér á
fyrstu æfinguna á mánudaginn.
Hinn nýbakaði tvíburafaðir er
brezki baritónsöngvarinn Simon
Vaughan og eiga þau hjón tæplega
eins og hálfs árs dóttur fyrir.
-JÞ
Sigrrður Ella Magnúsdóttir söng-
kona með strékana sina, þé
Magnús Kariog Vilhjálm Pátur.
DB-mynd BjamieHur.
»
Tékkneski stórmeistarinn Vlastimil
Hort fæst þessa dagana við þá grein
skáklistarinnar sem talin er langerfið-
ust, blindskák. Þýzka tímaritið Der
Spiegel sagði nýlega frá þvi að Hort
hygðist slá heimsmetið í blindskák og
æfði sig markvisst að því að ná þeim
áfanga.
Hort háði nýlega blindskák við
tuttugu manns. Meistarinn var lok-
aður inni í glerbúri með autt skák-
borð fyrir framan sig. Er and-
stæðingarnir léku var honum tilkynnt
þáð í hljóðnema. Leikar fóru þannig
að Tékkinn vann níu skákir og tapaði
aðeins fjórum. Þar með hafði hann
slegið þýzkt met bandaríska skák-
mannsins Harry Nelson Pillsbury,
sem tefldi blindskák við 21 mann árið
1902. Pillsbury vann aðeins þrjár
skákir og tapaði sjö.
En betur má ef duga skal. Heims-
meistarinn í blindskák, Miguel Naj-
dorf frá Argentinu, tefldi árið 1947
við 45 skákmenn og vann hvorki
meira né minna en 39 þeirra. Met
þetta var sett í Póllandi.
Hort ætlar að fikra sig áfram að
heimsmetinu og hyggst næst spreyta
sig gegn þrjátiu andstæðingum.,
Þannig heldur hann áfram þar til
markinu er náð.
Söngsveitin Kjarabót á annríkt um
þessar mundir, svo annríkt að hún
tekur ekki að sér fleiri verkefni fram
að jólum nema eitthvað sérstakt
komi upp á. Kristján lngi Einarsson,
einn níu liðsmanna Kjarabótar, sagði
i samtali við DB að þegar væri byrjað
að skipuleggja starfið eftir áramót.
„Við ætlum að heimsækja alla
menntaskólana í byrjun næsta árs,”
sagði Kristján. „Einnig hefur Menn-
ingar- og frajðslusamband alþýðu
ráðið okkur til að koma fram á
vinnustöðum. Þegar það er frá talið
leikum við einnig á almennum mark-
aði.”
Kjarabót býður upp á tvenns konar
efnisskrá. Á vinnustöðum flytur hún
tónlist við kassagítarundirleik en
annars staðar tekur hún rafmagnið í
þjónustu sína. Að sögn Kristjáns er
flokkurinn búinn að koma sér upp
góðum hljóðfærakosti og söngkerfí.
Hort sat krkaður inni í glerbúri með
autt skékborð fyrir framan sig og
tefídi biindskék við tuttugu
manns.
Allur hagnaður af leik Kjarabótar
rennur til þess að betrumbæta tækin.
Kjarabót kom mikið við sögu á
Heimavarnarliðsplötunni Eitt verð ég
aðsegja þér.
Kristján sagði að lokum að Kjara-
bót frábæði sér að koma nokkuð ná-
lægt yfirstandandi kosningabaráttu.
Siðast er kosið var kom flokkurinn
ekki fram á vegum neinna stjórn-
málaflokka.
Þeir sem áhuga hafa á að fá Kjara-
bót á skemmtanir eftir áramótin fá
allar upplýsingar i símum 22876 og
43188.
FÓLK
„Tábrjóturinn”
eftir Tsjaikovský
fleira ,
F0LK
Rudolf Nureyev, ballettdansarinn
heimsfrægi, varð fyrir því óhappi í
fyrstu viku nóvember að tábrjóta sig
á sviðinu. Hann er líklega kunnasti
karldansari heims og tvímælalaust
einn hinn bezti.
Nureyev leitaði hælis sem póli-
tiskur flóttamaður er hann var á ferð
með Kirov-ballettinum frá Leningrad
fyrir fáum árum.
Þegar áðurgreint óhapp varð, var
hann að dansa í Hnotubrjótnum eftir
Tsjaikovski. Ekki fylgir sögunni,
hvort táin brotnaði í kaflanum með
rússneska dansinum eða i lokadans-
inum, Blómavalsinum alkunna.
Full alvara
þrátt jyrir
skyggniö
Helztu hvatamenn að framboði
Péturs Thorsteinson sendiherra til
forsetakjörs hafa nú gengið á fund
forystumanna í stjórnmálaflokkun-
um, Benedikts Gröndals, Geirs Hall-
grímssonar, Lúðviks Jósepssonar og
Ólafs Jóhannessonar. Vildu þeir með
þessu gera það ljóst, að þeim væri al-
vara í því að hvetja Pétur til frani-
boðsins og eins mun erindið líka
hafa verið að hlusta eftir hugsanleg-
um stuðningi.
Eins og vænta mátti var fátt um
stuðningsloforð í hádegishita al-
þingiskosninganna. Ljóst er þó, að
full alvara býr að baki áskorunar á
sendiherrann að gefa kost á sér í
framboðið.
,,Ég legg það ekki á stuðningsfólk
mitt að hugsa um fleiri kosningar en
þær næstu eins og skyggnið er í póli-
tíkinni,” sagði Albert Guðmundsson
er hann heyrði þetta.
Jónas
enn í
heims-
pressuna
Jónas Kristjánsson ritstjóri sat
fund með forstjóra TASS-fréttastof-
unnar, Vladimir Gonsiaroff, og rit-
stjóra Pravda, Nikolaj Progiogin, í
Feneyjum um mánaðamótin siðustu.
Þarna voru reyndar margir rit-
stjórar samankomnir i boði Cine-
stofnunarinnar í höll hennar á eyj-
unni San Giorgio Maggiore skammt
undan Piazza San Marco. Meðal
þeirra rná nefna Giuseppe Boffa,
l’Unita, Tryggve Ramberg, Aften-
posten, Gustav von Platen, Svenska
Dagbladet, og Mort Rosenblum,
International Herald Tribune, auk
fjölda annarra.
Eina erindið sem siðastnefnda
blaðið birti útdrátt úr var erindi
Jónasar Kristjánssonar um „Fjöl-
miðlun milli Vésturlanda og þriðja
heimsins”.
Ekkifylgis-
leysið þar
Ekki hafði Tómas Þorvaldsson,
stjórnarformaður í Sölusambandi
íslenzkra fiskframleiðenda, fyrr látið
orð um það falla, að hann ætlaði að
draga sig í hlé frá formennskunni en
maður gekk undir manns hönd að
biðja hann að sitja áfram.
Hefur hann mikið traust félaga
sinna. Ekki hcfur Tómas horfið frá
fyrirætlan sinni svo vitað sé en ekkert
gerist fyrr en á aðalfundinum sem
verður að líkindum í júni næstkom-
andi.