Dagblaðið - 19.11.1979, Blaðsíða 23
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 19. NÓVEMBER 1979.
f
Iþróttir
Iþróttir
23
Iþróttir
íþróttir
6
KR-ingar léku eins og
þeir sem valdið hafa
—gersigrudu ÍR-ingana í Hagaskólanum ígær 102-69
„Við tókum ÍR-ingana á góðri vörn í
fyrri hálfleiknum en í þeim síðari var
um uppgjöf að ræða hjá þeim,” sagði
þjálfari KR-inganna, Gunnar Gunnars-
son, eftir að menn hans höfðu burstað
ÍR 102—69 i Hagaskólanum í gærdag.
„Baráttan var númer eitt, tvö og þrjú
hjá okkur í þessum leik og allir mínir I
menn áttu góðan leik. Allir strákarnir
geta komið inn á hvenær sem er og gert
góða hluti eins og sást bezt í þessum
leik.” Varla ofmælt hjá Gunnari því
KR-ingarnir áttu hreint út sagt stór-
kostlegan leik allir sem einn og ÍR átti
aldrei möguleika gegn þeim. Leiki KR
svipað þessu það sem eftir er mótsins
þarf vart að gera því skóna hvaða lið
vinnur það.
Hagaskólinn var troðfullur af stuðn-
ingsmönnum liðanna þegar leikurinn
hófst. KR náði strax forystunni í leikn-
um og lét hana aldrei af hendi það sem
eftir var. ÍR-ingarnir virtust eiga erfitt
með að ftnna svar gegn svæðisvörn KR
sem tókst frábærlega vel. Munurinn
jókst hægt og bítandi og tölur eins og
14—8, 31—22 og loks hálfleikstölurnar
49—30 eru táknrænar fyrir þróunina í
leiknum. Baráttan var geysilega góð
hjá KR í fyrri hálfleiknum og reyndar
út allan leikinn. ÍR-ingarnir virtust
gefast upp við mótlætið og innáskipt-
ingarnar virtust oft vera nokkuð undar-
legar. Voru sjaldnast nema þrír af
sterkustu mönnum ÍR inná í einu. Slíkt
er*íl(ki-hægt að Jeyfa sér gegn vestur-
og höfðu algera yf irburði
bæjarveldinu KR og það fengu IR-ing-'
arnir illilega að reyna. KR-ingar áttu
nær öll fráköst bæði í vörn og sókn og
munaði þar miklu að Mark Christensen
náði sér aldrei á strik í leiknum.
Hafi ÍR-ingar gert sér vonir um að
minnka muninn i síðari hálfleiknum
hurfu þær eins og dögg fyrir sólu strax í
upphafi hans. Engan bilbug var á KR
að finna og leikmenn börðust eins og
ljón — enginn þó eins og Ágúst Líndal
sem varla hefur leikið betur um ævina.
Munurinn komst í 23 stig, 55—32 strax
í upphafi hálfleiksins og öll barátta ÍR
var brotin á bak aftur.
ÍR tókst reyndar að minnka muninn
örlítið um tíma en það stóð ekki lengi.
Um miðjan hálfleikinn hvíldu þeir
báðir Jón Sigurðsson og Marvin Jack-
son og komu ekki inn á fyrr en tvær
mínútur rúmar voru til leiksloka. Þeir
sem komu í þeirra stað höfðu i fullu tré
við ÍR og munurinn hélzt nær óbreytt-
ur. Þegar tvær mínútur voru eftir var
staðan 91—68 KR i vil og lokakaflinn
var einhver sá glæsilegasti sem undirrit-
aður hefur orðið vitni að. KR-ingar
stálu knettinum hvað eftir annað af lR
og brunuðu í hraðaupphlaup. Stigin
hrönnuðust upp og þegar blásið var til
merkis um leikslok var munurinn
orðinn 33 stigl, 102—69. Stórglæsi-
legur sigur KR.
Það er ákaflega erfitt og e.t.v.
ósanngjarnt að gera upp á milli leik-
manna KR. Allir áttu góðan dag en
Öruggur sigur
Vals yfir FH
—FH hef ur tapað tveimur fyrstu
leikjunum í 1. deild kvenna
Valsstúlkurnar sigruðu kynsystur
sínar úr FH úr Hafnarfirði í 1. deild
íslandsmótsins í handknattleik á
laugardaginn í Laugardalshöll með 21
marki gegn 17 mörkum FH. Staðan í
hálfleik var 11—9 fyrir Val.
Kristjana Aradóttir skorar fyrsta
mark leiksins, 1—0 FH í vil. Harpa
Guðmundsdóttir, Val, jafnaði fljótlega
i 1—1, Elín Kristinsdóttir kom Vals-
stúlkum í 2—1. Sólveig Birgisdóttir
jafnaði svo fyrir FH, 2—2. Leikurinn
var mjög jafn í fyrri hálfleiknum.
Markamunur var aldrei meiri en eitt til
Núsigraði
Ágúst
Kópavogshlaup Frjálsíþrótta-
sambands Islands var háð á laugardag-
inn. Keppendur 26 í karla- og kvenna-
flokki. í karlaflokki voru hlaupnir 7
km og nú sigraði Ágúst Ásgeirsson, ÍR,
í einvígi við félaga sinn, Gunnar Pál
Jóakimsson. Þeir komu langfyrstir í
mark en höfðu hlutverkaskipti frá
Öskjuhlíðarhlaupinu á dögunum.
Ágúst sigraði á 28:16,0 mín. Gunnar
Páll hljóp á 28:20,0 mín. Þriðji varð
Ágúst Gunnarsson, UBK, á 29:11,0
mín. Styttri vegalengd var í kvenna-
flokki. Þar sigraði Thelma Björnsdótt-
ir, UBK, á 15:22,0 mín. Guðrún Karls-
dóttir, UBK, varð önnur á 15:40,0 mín.
tvö mörk. Eins og fyrr segir var staðan
i hálfleik 11—9 fyrir Val. Stúlkurnar
frá Hlíðarenda komu mun ákveðnari
til leiks í þeim seinni. Harpa skoraði
fyrsta markið i síðari hálfleiknum —
var staðan þá orðin 12—9 fyrir Val.
Fáum mínútum seinna fengu Valsstúlk-
urnar víti. Hildur Einarsdóttir, mark-
maður FH, gerði sér lítið fyrir og varði
vítakast Ernu Lúðvíksdóttur, Val.
Smám saman seig Valur fram úr FH.
Um miðjan seinni hálfleikinn var
staðan 17—11 fyrir Val. Kristjana Ara-
dóttir skoraði fjórða mark sitt í leikn-
um og kom hún FH stelpum í 17—12.
Mínútu síðar kom hún þeim í 17—13.
Kristín Ólafsdóttir skoraði siðasta
mark Valskvenna í þessum leik, 21 —
14. Þegar ftmm mínútur voru til leiks-
loka misnotaði Harpa Guðmundsdóttir
víti — skaut hún í stöng. Katrin Dani-
valsdóttir skoraði siðasta mark FH i
leik .þessum, 21 —17, en það nægði
þeim ekki að þessu sinni. Greinilegt er
að FH stúlkurnar eru ekki þær sömu og
í fyrra.
Mörk Vals skoruðu Erna Lúðvíks-
dóttir 6/1, Ágústa Dúa Jónsdóttir 5,
Harpa Guðmundsdóttir 5, Elín Krist,-
jánsdóttir 2, Kristín Ólafsdóttir 2 og
Björg Guðmundsdóttir 2.
Mörk FH skoruðu Kristjana Ara-
dóttir 7/2, Katrín Danivalsdóttir og
Ellý Erlingsdóttir 3 hvor, Svanhvit
Magnúsdóttir 2 og Sólveig Birgisdóttir
ogMargrét Brandsdóttir 1 hvor.
- HJ
Valur-FH 21-17 (11-9)
Ulandunóttt i 1. ddd kvwra. Vakir - FH 21 -17 (11 -í), Laugardalahöl 17. nóvambar.
Baztu latkmarm (ha»ta alnkunn 10) Agúata Dúa JAnadAMr, Val, 7, Kriatiana AradAttk. FH, 7.
Ema LúðvfkadAttir. Val. 8, Harpa GuAmundadAttk, VaL 6, Ein KriatkiadAttk, Val, S.
Valur Björg Quðmundadöttk, Ema Lúðvfksdöttk, Harpa Quðmundsdóttk, Eln Kristinsdóttk,
Hanna Rúna Jöhannadóttk, Agústa Dúa Jónadóttk, Quðbjðrg Ekiaradöttk, KHstfn Ólafsdöttk
og Þudður Hjartardöttk.
FH: Hldur Elnarsdötdrir, Katrin Danivalsdöttk, Sigriður ÚHsdöttir, Kristjana Aradöttk, ENý
Eriingsdöttk, Svanhvft Magnúsdöttk, Hafcfts Svsinsdöttk, Margrét Brandadöttk og Sötvaig
vart verður hjá því komizt að minnast á
þá Jón Sigurðsson og Ágúst Lindal.
Þeir voru hreinustu púðurtunnur -í
leiknum og kraftur þeirra og hraði setti
ÍR margsinnis út af laginu. Ágúst hefur
til þessa ekki verið talinn á meðal stór-
stjarna körfuknattleiksins en sannaði
það i gær að hann er á góðum degi í
landsliðsflokki. Um þátt Jónsernógað
segja eitt. Stórkostlegt. Hann er kóng-
urinn i islenzkum körfuknattleik. Þá
má ekki gleyma Birgi Guðbjörnssyni,
sem skoraði mjög fallegar körfur, og
svo þeim Garðari, Geir og Árna, sem
allir áttu mjög góðan dag. Þá kom
Gunnar Jóakimsson inná undir lokin
og skoraði 8 stig á skömmum tíma.
Allir leikmenn KR skoruðu stig í þess-
um leik og baráttan í liðinu var einstök
og varnarleikurinn er aðall þess. KR
hefur fengið langfæst stig á sig af öllum
úrvalsdeildarfélögunum og ekki að
ástæðulausu. Varnarleikur liðsins er
frábær oft á tíðum og ekki fyrir hvern
sem er að komast þar í gegn. Marvin
Jackson var óvenju rólegur að þessu
sinni en hafði nokkuð góðar gætur á
Christensen í leiknum.
Hjá ÍR bar í rauninni enginn af.
Liðið náði sér aldrei á strik og vonir
liðsins féllu með undarlegum skipting-
um. Það var helzt Kristinn Jörundsson
sem stóð uppúr í fyrri hálfleiknum en í
þeim síðari tók litli bróðir, Jón
Jörundsson, upp merki ættarinnar og
átti stórleik. Mark fór í gang í síðari
hálfleiknum en dugði ekki til. Kolbeinn
átti ágæta kafla en aðrir voru hreint
ekki með á nótunum.
Dómarar voru þeir Kristbjörn Al-
bertsson og Guðbrandur Sigurðsson og
dæmdu prýðilega þótt ekki hafi leik-
menn alltaf verið á eitt sáttir.
Stig KR: Jón Sigurðsson 23, Ágúst
Líndal 19, Geir Þorsteinsson 12, Mar-
vin Jackson 10, Garðar Jóhannsson 10,
Árni Guðmundsson 8, Gunnar
Jóakimsson 8, Birgir Guðbjörnsson 8,
Þröstur Guðmundsson 2 og Eiríkur
Jóhannesson 2.
Stig ÍR: Jón Jörundsson 18, Mark
Christensen 17, Kristinn Jörundsson
14, Kolbeinn Kristinsson 8, Erlendur
Markússon 6, Guðmundur Guðmunds-
son 4 og Stefán Kristjánsson 2.
- SSv.
Jón Sígurósson er hér á fullri ferö i leiknum gegn ÍR og aóstaða Kolbeins Kristins-
sonar er e.Lv. táknræn fyrir frammistöðu tR f leiknum. DB-mynd Bjarnleifur.
Frakkar sigruðu Tékka
Frakkar sigruðu Tékka 2—1 í lands-
leik sem fram fór í París á laugardag.
Leikurinn var liður í 5. riðli Evrópu-
keppni landsliða í knattspyrnu en
þrátt fyrir sigurinn eiga Frakkar sára-
litla möguleika á að tryggja sér sæti í
úrslitunum í Róm á næsta ári. Tékkar
þurfa aðeins jafntefli við Luxemborg í
siðasta leik sínum og vcrður varla
skotaskuld úr því.
Fyrri hálfleikurinn einkenndist af
miklum yfirburðum Frakka en ekki
tókst þeim að gera mark. Það var vara-
maðurinn Eric Pecout sem skoraði
fyrra mark Frakkanna á 67. mínútu og
aðeins átta mín. síðar bætti Gilles
Rampillon öðru marki við. Tékkarnir
lögðu ekki árar i bát og á 80. minútu
minnkaði Jan Kozak muninn með
skemmtilegu marki af löngu færi.
Tékkurium.tókst ekki að jafna metin
þó þeir gerðu harða hríð að ntarki
Frakkanna undir lokin en tapið kemur
varla að sök. Frakkland: Dropsy,
Battiston, Specht, Lopez, Bossis, Petit,
Moizan, Rampillon, Zimako,
Lacombe, Amisse. Tékkóslóakia:
Hruska, Barmos, Jurkemic, Ondrus,
Geogh, Stambachr, Kozak, Panenka,
Gajdusek, Vizek og Kroupa, sem lck
hér á Melavellinum með Zbrojovka
Brnogegn Keflavik.
Staðan í riðlinum:
Frakkland 6 4 11 13—7 9
Tékkóslóvakía 5 4 0 1 13—4 8
Svíþjóð 6 12 3 9—13 4
Luxemborg 5 0 14 2—13 I
Nr. 7650
Litir: Drappað
og dökkblútt
Verð kr.
31.300
Finnskar
kuldaúlpur
Nr. 7140
Litir: Drappað,
dökkblátt
og vínrautt
Verð
kr. 34.650,-
Sendum
í
póstkröfu
um
allt
land
LONDON
DÖMUDEILD
AUSTURSTRÆTI - SÍM/14260