Dagblaðið - 19.11.1979, Page 27
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 19. NÓVEMBER 1979.
27
Hamborgenn
íefstasætinu
þrátt fyrir
jafntefli
Kevin Keegan og félagar hans hjá
Hamburger halda enn forystunni i v-
þýzku Bundeslígunni þótt liðið hafi
aðeins náð jafntefli gegn Fortuna
Dusseldorf á útivelli um helgina.
Bayern Munchen skauzt upp i þriðja
sætið með sigri á útivelli yfir TSV
Munchen 1860 en úrslitin í Þýzkalandi
urðu sem hér segir um helgina:
Köln—Kaiserslautern 2—0
Braunschweig — Leverkusen 3—1
Stuttgart — Schalke 04 0—0
Dusseldorf — Hamborg 1—1
Munchen 1860—Bayern 1—2
Uerdingen — Hertha 3—1
Bochum — Frankfurt 1—0
Dortmund — Gladbach 1—1
Bremen — Duisburg 2—1
Það var markakóngurinn Dieter
Muller sem skoraði bæði mörk Kölnar
gegn Kaiserslautern og Kölnarliðið
getur búizt við enn fleiri mörkum á
næstunni þar sem liðið fær Tony
Woodcock í sínar raðir eftir helgina.
Staða efstu liða i Þýzkalandi er nú
þessi:
Hamborg 13 7 4 2 28- 12 18
Dortmund 13 8 2 3 25- 18 18
Bayern 13 7 3 3 24- 14 17
Frankfurt 13 8 0 5 25- -15 16
Köln 13 6 4 3 28- 20 16
Schalke04 13 5 5 3 22- 14 15
Gladbach 13 5 5 3 25- 20 15
Stuttgart 13 6 3 4 22- 19 15
JU v g rp
E/N STÆRSTA LEIKFANGA VERSLUN
Á NORÐURLÖNDUM
SIMAR
11135 og 14201 LAUGAVEG 18A
fleiri eiga eftir að fylgja verði ekki
breyting á leik liðsins.
Framarar hófu leikinn á laugardag
dálítið kynduglega. Stúdentar skoruðu
fyrstu körfuna en Fram jafnaði 2—2
með kostulegri körfu. Leikmenn ÍS
hlupu allir i sóknina í stað þess að
verjast og Johnson skoraði auðveld-
lega. Næstu II stig komu einnig frá
Fram og staðan var orðin I3—2 eftir
rúmlega þrjár og hálfa minútu. Þessi
munur hélzt lengi framan af nokkuð
óbreyttur en undir lok fyrri hálfleiksins
komst nokkuð los á hina ungu framara
og forskotið var ekki nema 6 stig í hálf-
leik — 54—46.
Framarar hófu seinni hálfleikinn vel
og komust I0 stigum yfir og siðan í
78—67. ÍS gafst ekki upp og skoraði
næstu þrjár körfur og breytti stöðunni í
78—73. Stúdentarnir virtust til alls lík-
legir og stuðningsmenn þeirra fögnuðu
er „3 sekúndur” voru dæmdar i einn
sóknarmanna Fram. John Johnson
skoraði um leið og flautað var og
brotið var á honum að auki. Annar
dómarinn, Gunnar Valgeirsson,
dæmdi „3 sekúndur” en hinn, Jón Otti
Ólafsson, dæmdi körfu Johnson gilda
og skyldi hann fá vítaskot að auki.
Nokkur rekistefna varð af þessu en
dómur Jóns Otta stóð. Karfa Johnson
gild og hann skoraði einnig úr vitinu.
Munurinn var orðinn 8 stig aftur og
leikmenn ÍS virtust brotna niður við
mótlætið. Mest varð forysta Frant 15
stig, 90—75, er 6 og hálf min. voru til
leiksloka. Liðin skiptust síðan á unt að
skora þar til blásið var til ntcrkis um
leikslok og Fram vann örugglega,
104— 92. Sætur sigur sem ætti að gcl'a
nýliðunum byr undir báða vængi.
Johnson var yfirburðantaður i liðinu
að þessu sinni og hittni hans var ntcð
ólíkindum góð — einkum frantan af.
T.d. brenndi hann aðeins 4 skotum af
allan fyrri hálfleikinn. Aðrir leikmenn
Frant voru afar jal'nir en þcir Sínton og
Björn Magnússon mjög stcrkir i vörn-
inni. Simon virkaði hins vegar ol't
nokkuð kærulaus i sóknarlciknum.
hver svo sent skýringin kann að vera.
Hjá IS bar ntcst á Sntock enda
skoraði hann 42 stig. Hins vcgar áui
Itann ótal skot cr ntisheppnuðust.
JóttHéðinsson og Gisli áttu ágætan lcik
svo og Albcrt og Bjarni Gunnar.
Öðrum voru nokkuð mislagðar
hcndur.
Stig Fram: John Johnson 7I. Simon
Ólafsson I5, Þorvaldur Gcirsson S,
Björn Jónsson 4, Björn Magnússon 4
og Hilntar Gunnarsson 2.
Stig ÍS: Trcnt Sntock 44. Jón
Hcðinsson I5, Gisli Gislason I4, Bjarni
Gunnar Svcinsson II, Albcrl Guð
ntundsson 4. Gunnar Halldórsson 2 og
Ólafur Thoroddscn 2.
- SS\.
GJAFAVÖRUR
i MIKLU ÚRVALI
LIFANDI BRÚÐA
SEM B0RÐAR o.fl.
Fisher-Price — Fjarstýrðir bílar
Playmobil
JLlvu rpau^L^
er _ _
POSTSENDUM Laugavegi 18A — Símar 1135 og 14201
„Strákarnir voru allir stórkostlegir
og ég hefði aldrei skorað þessi 71 stig
án dyggilegrar aðstoðar þeirra,” sagði
framarinn John Johnson er framarar
höfðu lagt stúdenta að velli 104—92 og
þar með unnið sinn fyrsta sigur í úr-
valsdeildinni. „Ég hef verið að reyna
að skapa heilsteypt og hugsandi lið og
ég held að okkur sé loks að takast að
sýna hvað í okkur býr. Við höfum verið
óheppnir í mótinu til þessa. Við vorum
yfir gegn KR og ÍR í hálfleik en töp-
uðum báðum leikjunum.” Og hann
hélt fram: „Vissulega var ég orðinn
þreyttur í þessum leik undir lokin en
sigurinn var bara sætari fyrir vikið. Ég
er enn þeirrar skoðunar að við getum
unnið deildina í vetur. Við höfum að
vísu tapað fjórum leikjum í fyrstu um-
ferðinni en við getum auðveldlega
unnið mótið. Það er skoðun mín að
sigurliðið í deildinni í vetur tapi 5 leikj-
um. Það þýðir að við megum aðeins
tapa einum leik til viðbótar og við
töpum ekki fleirum, þú mátt hafa það
eftir mér.”
Vissulega dálítil kokhreysti þetta en
leikur Fram á laugardag gefur vissulega
góð fyrirheit. Þótt Johnson hafi skorað
sjálfur hvorki meira néminna en 71 stig
átti liðið í heildina góðan leik. Leik-
menn börðust vel og hvöttu hver annan
og tókst að halda forskoti sinu og vel
það í stað þess að glutra öllu niður eins
og í fyrri leikjum. Framliðið er skipað
mjög ungum leikmönnum og margir
þeirra eru mjög efnilegir.
Auðvitað má ekki lita framhjá þeirri
staðreynd að stúdentarnir léku á tíðum
eins og 5 einstaklingar, en ekki eins og
liðsheild. Leikmönnum varð sundur-
orða og slíkt kann ekki góðri lukku að
stýra. Þar ofan á bættist að Smock var
oft á tíðum óþarflega eigingjarn og fór
það greinilega í taugar sumra leik-
manna liðsins. Stúdentarnir hófu tíma-
bilið mjög vel með sigri yfir KR en
síðan hafa fylgt 4 töp í kjölfarið og
Framarinn John Johnson var ger-
samlega óstöðvandi gegn IS og setti
nýtt stigamet er hann skoraði 71 stig.i
leiknum.
BiLABRAUTIR
BRÚÐUHÚS
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Johnson var stórkostlegur!
—skoraði 71 stig og setti stigamet í104-92 sigri Fram yf ir ÍS