Dagblaðið - 30.11.1979, Blaðsíða 21

Dagblaðið - 30.11.1979, Blaðsíða 21
Vabmenn og Víkingar verða f srjðsljósiou í Evrópukeppninni f handknattleik um helgina. Valur leikur f meistarakeppninni viö enska liðið Brentwood og ætti ekki að verða skotaskuld að sigra það. Vfkingur leikur i Gautaborg við Heim, eitt öflugasta Uð Sviþjóðar. Það getur orðið erfiður leikur fyrír bikarmeistara Vfkings. Sl. miðvikudag sýndu Valsmenn og Vlkingar að þeir eru vel undir leikina búnir — það var hörkuleikur f LaugardalshöUinni mUU þessara Uða. Myndin að ofan er frá þeim leik. Leikmaðurínn ungj f Val, Brynjar Harðarsson reynir markaskot. Kom knettin- um yfir Árna Indríðason og Steinar Birgisson en knötturínn fór ekki rétta boðleið. Framhjá. Til vinstri eru Þorbergur Aðalsteinsson, Vfking, og Bjarni Guðmundsson en tU hægri er Gunnar Lúðvfksson á Ununni. DB-mynd Bjarnleifur. ... erskemmtileg jólagjöf • • g X; . • Hjá okkurfástfalleg gjafakort fM Nýjar ítalskar töskur í glæsilegu úrvali Sendum i póstkröfu Skólavöröustíg 7 — Sími 15814 TOSKU-OG mm HANZKABÚEHN mSmMgmz ÍR-Valur leika í Laugardalshöll Leikur ÍR og Vals i úrvalsdeildinni i körfuknatt- leik, sem vera átti i Hagaskóla á sunnudag, hefur verið færður fram um einn dag. Hann verður háður á morgun kl. 14.00 f Laugardalshöflinni — ekki í Hagaskóla. Körfuknattleiksmenn grfpa nú hvert tækifæri sem gefst til að koma leikjum sínum i Laugardalshöll og tækifæri gafst til að leika þar á morgun, þegar íslandsmeistarar Fram hættu við þátttöku f Evrópukeppni kvenna í handknatt- leiknum. Yorath íbann Fyrirliði Tottenham, Terry Yorath, var f gær settur i 3ja leikja bann. Var kominn með 20 refsistig og Yorath, sem einnig er fyrirliði landsliðs Wales, mun því ekki leika með Tottenham á laugardag gegn Man. Utd. á White Hart Lane f Lundúnum. Burnley keypti f gær Billy Hamilton frá Queens Park Rangers og borgaði 55 þúsund sterlingspund fyrir leikmanninn. Frank Worthington, landsliðs- miðherji Englands hér á árum áður, hefur skrifað undir samning við Birmingham, sem greiddi Bolton 140 þúsund sterlingspund fyrir Worthington. Fjórir Pólverjar settirfleikbann Pólska knattspyrnusambandið setti fjóra lands- liðsmenn i leikbann í gær — tvo i sex mánaða bann og tvo í þriggja mánaða bann, vegna ummæla, sem þeir létu falla við blaðamenn í Hollandi á dögunum, þegar Holland og Pólland léku þar Evrópuleik sinn. Fyrirliði pólska landsliðsins, Boniek, var settur i sex mánaða leikbann, svo og annar pólskur landsliðs- maður. Þá fengu þeir Lato og Szymanowski þriggja mánaða leikbann. Þessir þrír eru kunnustu leikmenn Pólverja, sem nú leika með pólskum liðum. Þeir fá ekki að yfirgefa Pólland meðan á lcikbanninu stendur. Ekki var skýrt frá því f fréttum hvaða um- mæli voru höfð eftir leikmönnunum i blöðum. Þau leika saman Dregið hefur verið til annarrar umferðar í ensku bikarkeppninni og varð niðurstaðan þessi. Rétt er að geta þess að í 3ju umferð hefja liðin úr 1. og 2. deild kcppni. Blackburn Rovers — Stafford Rangers Bury — York City Chester — Barnsley Chesham United — Merthyr Tydfil Carlisle — Sheff. Wednesday Colchester — Bournemouth Croydon — Millwall Darlington — Bradford City Doncaster Rovers — Mansfield Town Wimbledon — Portsmouth Grimsby Town — Sheffield United Hereford United — Aldershot Rotherham United — Altrincham Norwich Victoria — Wigan Reading — Barking Southend United — Harlow Town Torquay United — Swindon Town Tranmere Rovers — Rochdale Walsall — Halifax Town Yeovil — Slough Stones f ékk áhuga- mannaréttindi á ný Bandaríski hástökkvarinn Dwight Stones, sem fyrir nokkrum árum átti heimsmetið f háslökki, fékk I gær áhugamannaréttindi sin á ný. Það var banda- ríska frjálsiþróttasambandið, sem létti banni af Stones og einnig frjálsíþróttakonunni kunnu, Kathy Smith. Alþjóðasambandið á eftir að fjalla um málið. Fyrir þremur árum var Stones sviptur áhuga- mannaréttindum sinum, þegar hann fékk 34 þúsund dollara fyrir leik I sjónvarpsþætti „Stjörnur iþróttanna’’ og skilaði ekki peningunum til banda- ríska frjálsiþróttasambandsins. Það gerðu nær allir áhugamenn, sem komu fram í þessum sjónvarps- þáttum. Staðan í 1. deiid- inniíBelgíu Staðan í 1. deildinni í Belgíu éftir ' leikina sl. sunnudag er nú þannig: Lokeren 15 H 2 !U$id 38- -10 24 FC Brugge 15 10 2 'J'ý‘ 32- -10 22 Standard 15 8 4 3 39- -19 20 Molenbeek 15 7 6 2 20- -13 20 Anderlecht 15 8 2 5 31- -17 18 Beerschot 15 6 6 3 18- -16 18 Lierse 15 8 1 6 27- -21 17 CS Brugge 15 7 3 5 28- -23 17 Beveren 15 5 7 3 17- -16 17 Waregem 15 4 8 3 17- -14 16 Antwerpen 15 4 6 5 16- -14 14 Berchem 15 2 8 5 18- -24 12 FC Liege 15 4 4 7 18- -24 12 Waterschei 15 2 6 7 15- -26 10 Winterslag 15 3 4 8 11- -38 10 Beringen 15 3 3 9 15- -22 9 Charleroi 15 3 2 10 8- -30 8 Hasselt 15 2 2 11 11- -42 6 Wehnert enn á ferðinni — tví-nefbraut Pickel Minden 26/rt 1979. TV Grosswallstadt ætlar að takast nokkuð auðveldlega að verja meistara- titilinn í ár. Liðið trónar nú eitt og yfir- gefið á toppi bundeslígunnar. Ekkert lið virðist vera nógu sterkt til að fylgja Grosswallstadt eftir. Þetta gerir keppn- ina reyndar nokkuð spennulitla en ekki er þó hægt að ganga framhjá þeirri staðreynd, að Grosswallstadt er eitt allra bezta félagslið I Evrópu I dag — ef ekki það bezta. Um siðustu helgi lék Grosswallstadt sér að Hofweier eins og köttur að mús. Á sama tíma tapaði Milbertshofen i Huttenberg og þar með jókst bilið verulega á milli þessara tveggja efstu liða dcildarinnar. Staða TVG Bremen er heldur slæm um þessar mundir. Sérstaklega hafa útispilarar liðsins brugðizt að undan- förnu. Næst neðsta sæti og aðeins tveir sigrar í níu leikjum hefur valdið nokkr- um óróleika innan herbúða Bremen- manna. Ofan á allt bætist svo efa- semdir um ágæti þjálfarans. Undirrit- aður hefur þó trú á því að lið. Bremen eigi eftir að yfirstíga þessa erfiðleika. Það hefur góða leikmenn í sínum röðum. Þrátt fyrir tap liðsins í Gumm- ersbach lék Bremen nokkuð vel og litill munur á liðunum í lokin, 20—18, og reyndar allan leikinn. Aðeins heima- völlur og leikreynsla færðu Gummers- bach bæði stigin i leiknum. YjÁ^ur en lengra er haldið skulnm við lita á ufslit leikja frá síðustu helgi. Gummersbach — TVG Bremen 20—18 21—14 18—13 17—16 23—13 26—16 16—14 Nettelstedt — Flensburg Kiel — Dankersen Hiittenberg — Milbertshofen Grosswallstadt — Hofweier Tusem Essen — Birkenau Dietzenbach — Göppingen GW Dankersen náði jafntefli gegn Milbertshofen í fyrri viku, 14—14 urðu úrslit í leiknum, sem háður var í Múnchen. Þessi árangur Dankersen kveikti vonarneista um að liðinu mundi takast að krækja í sinn fyrsta útisigur í Kiel. GWD lék nokkuð vel, skapaði sér næg tækifæri, sem því miður voru illa nýtt. Sjálfsagt hafa taugarnar spilað þar nokkra rullu því nokkrir leikmanna GWD voru að leika sinn fyrsta leik í „ljónagryfjunni” í Kiel, fyrir framan sjö þúsund áhorfendur, sem ekki eru feimnir við að láta í sér heyra. En hvað sem því líður þá vann Kiel réttilega þó svo 18—13 sigur hafi verið of stór miðað við gang leiksins. Mörk Kiel: Timko 6/4, Ehardt 4/1, Graper 2, Wiemann 2, Bauer, Made- mann og Knop 1 hver. Mörk Danker- sen: Axel 6/2, Seehase 2, Becker 2, Krebs 2 og Franke 1. Eins og búast mátti við vann Nettel- stedt Flensburg nokkuð auðveldlega. Eftir fyrri hálfleikinn voru úrslitin ráð- in en þá stóð 12—4 fyrir Nettelstedt. Liðið lék án þeirra P. Pickel og H. Keller, sem báðir eru meiddir. Pickel er tví-nefbrotinn og stokkbólginn í and- liti. Ástæðan er sú að í leik Nettelstedt gegn Dietzenbach í síðustu viku, þar sem Nettelstedt varð að lúta í lægra haldi, 16—12, lenti þeim saman Pickel og Herbert Wehnert, fyrirliða Dietzen- bach. Wehnert gerði sér litið fyrir og sló Pickel á ruddalegan hátt í andhtið, sem hafði þær afleiðingar fyrir Pickel, sem á undan er lýst. Wehnert þessi er fyrrverandi landsliðsmaður Vestur- Þýzkalands og eitthvert mesta rudda- menni, sem þekktist í vestur-þýzkum handknattleik. Hann er fljótur að æs- ast og hefur þá sjaldan vald á gerðum sínum — slær mótherja viljandi í and- lit, hrækir á þá eða rekur hnéð á við- kvæma staði ef svo ber undir. Mörk Nettelstedt: Waltke 5, Schif- schid 3, Miljak 3, Kölling 3, Waldheim 3, Lasarevic 2/1, Kania og Grund 1 hvor. Markhæstir hjá Flensburg voru Hoffmann 4/1, Hasen 3 og Boysen 3/2. Eins og fyrr var getið tapaði Bremen í Gummersbach 20—18 eftir að staðan var 11 —10 í hálfleik. Á tímabili var staðan 16—15 fyrir Gummersbach og Grambke fékk þá þrisvar möguleika á að jafna en tvö stangarskot og röng sending leiddu til þess að Gummers- bach tryggði sér sigur. Mörk Gummersbach: Dammann 5, Fey 5/3, Westebbe 3, Wunderlich 3, Brand 2, Korkowski 2. Mörk Bremen: Brettschneider 5, Björgvin Björgvins- son 3, Herjes 3/1 Mastowski 3, Gunnar Einarsson, Pries, Gross og Swenbar eitt hver. Nýliðar Tussem Essen hafa staðið sig mjög vel á þessu fyrsta leiktimabili félagsins í bundeslígunni. Vel stutt af 5000 áhorfendum vann Essen Birkenau 26—16. Van der Heusen 6, Schmitz 5 og Eickermann 4 voru aðalmenn Essen eins og oft áður. Markhæstu leikmenn í bundeslíg- unni eru nú að loknum 10 umferðum: 77 71 56 50 49 49 48. 48 46 1. Timko, Kiel, 2. Ehret, Hofweier, 3. Don, Híittenberg, 4. Axel, Dankersén, 5. Horvat, Milbertshofen, 6. Wunderlich, Gummersbach 7. Spatz, Birkenau, 8. Eickermann, Essen, 9. Miljak, Nettelstedt, Friðrik Þorbjörnsson, fyrirliði KR, sagði. „Það verður sko ekkert gefið eftir og leikið á fullu allan leikinn. Við höfum tapað i tveimur síðustu leikjun- um og það er meira en við þolum. Nú viljum viðsigral”. Jóhann Ingi Gunnarsson, landsliðs- þjálfari, verður við hljóðnemann í Laugardalshöll, þegar Fram og KR leika og skýrir áhorfendum frá því helzta sem gerist í leiknum. Á sunnudag kl. 14.00 leika Týr og Þróttur í 2. deild karla í Vestmanna- eyjum. Keflavík og Dalvík leika í íþróttahúsinu í Njarðvík í 3. deild karla kl. 15.00 ásunnudag. Enski knattspymuheimurinn nötraði fgær: Liam Brady fer frá Arsenal I vor. „Fer frá Arsenal í vor til liðs á meginlandinu” —sagði Liam Brady og Arsenal fær ekki nema 500 þúsund sterlingspund fyrir hann er fæddur í Dublin á írlandi og hefur leikið 20 landsleiki fyrir írland. Hann lék eitt sinn hér á Melavellinum með „Þegar samningur minn rennur út í vor við Arsenal mun ég fara frá félaginu til liðs á meginlandi Evrópu. Ég geri það til að verða betri knatt- spymumaður — ekki vegna pening- anna,” sagði Liam Brady, irski lands- liðsmaðurinn kunni hjá Arsenal, í brezka útvarpinu I gær. Hann er nú al- mennt talinn bezti leikmaðurínn i ensku knattspyrnunni. Mikið fjaðrafok varð í brezkum fjölmiðlum vegna þessarar yfirlýsingar Brady og sama hvar borið var niður við að hlusta á enskar útvarpsstöðvar í gær — Brady-málið var alls staðar á dag- skrá. Þess vegna kom verulega á óvart í morgun, að ekkert viðtal var við Brady í Tímanum. Greinilegt að Bretar eru nú á góðri leið með að missa alla sína beztu menn til liða á meginlandi Evrópu, Keegan i Hamborg, Cunning- ham í Madrid, Woodcock í Köln. Að sögn brezka útvarpsins fær Arsenal ekki nema 500 þúsund sterlingspund i sinn hlut fyrir Brady samkvæmt nýrri reglugerð Knatt- spyrnusambands Evrópu, UEFA Ef Brady færi frá Arsenal til einhvers ensks liðs mundi Arsenal fá að minnsta kosti tvær milljónir sterlingspunda fyrir hann. Vitað er, að Bayern Múnchen hefur mjög fylgzt með Liam Brady síðustu mánuði og eru miklar líkur taldar á því, að þessi snjalli íri verðir leikmaður hjá þessu frægasta knattspyrnufélagi Vestur-Þýzkalands næsta leiktímbil. Liam Brady er aðeins 23ja ára og hefur verið hjá Arsenal í átta ár. Hann írska unglingalandsliðinu og greinilegt var þá að þar fór mikið knattspyrnu- mannsefni. Það sýndi þessi kornungi leikmaður þá á hörðum Melavellinum. „Ég fer frá Arsenal til að verða betri leikmaður — ekki vegna peninganna,” sagði Brady í gær en þegar til kemur verður hlutur hans gríðarmikill sam- kvæmt hinni nýju reglugerð UEFA. Brady verður þá i hópi tekjuhæstu leikmannaheims. viku lék Heim við Vikingarna á útivelli og varð jafntefli í mjög fjörugum og tvisýnum leik. Greinilegt að Heim leikur betur eftir því sem mótherjarnir eru sterkari. Hvað um það þá ætti leik- ur Heim og Víkings á sunnudag að verða hörkuleikur. Síðari leikur lið- anna verður svo í Laugardalshöll sunnudaginn 9. desember. Leikir í l.deild FH og lR leika í 1. deild karla í í- þróttahúsinu í Hafnarfirði kl. 14.00 á Staðan að 10 umferðum loknum er nú þessi: Grosswallstadt 10 9 1 0 193- 136 19 Milbertshofen 10 6 1 3 156- 153 13 Tusem Essen 10 5 2 3 172- 157 12 Nettelstedt 10 6 0 4 159- ■156 12 Húttenberg 10 6 0 4 177- 180 12 Gummersbach 9 5 1 3 158- ■137 11 Dietzenbach 8 5 0 3 113- ■114 10 Göppingen 10 4 1 5 166- 165 9 Dankersen 10 4 1 5 155- •167 9 Hofweier 10 4 0 6 181- ■173 8 Kiel 10 4 0 6 182- •177 8 Birkenau 10 3 0 7 166- 190 6 Bremen 9 2 1 6 140- ■155 5 Flensburg 10 1 0 9 144- •202 2 Kær kveðja, Axel Axelsson. DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 1979. DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 1979. Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Þýzld landsliðsmaóurinn Dieter Waltke vippar knettinum yfir markvörð Flensburg Masuhr. Tveir Evrópuleikir og víða fjör innanlands! — Mikiö um að vera á handknattleikssviðinu um helginu „Ég óttast ekki úrsliti I leiknum við Heim ef Vikingsliðið nær upp sama varnarleik og gegn Val á miðvikudaginn,” sagði Eysteinn Helgason, formaður handknatt- leiksdeildar Vikings, þegar Vikingur hélt til Gautaborgar í gær í Evrópuleikinn gegn sænska liðinu Heim frá Gautaborg. Það verður mikið um að vera á handknattleikssviðinu um helgina — tveir Evrópuleikir, en sá þriðji, sem fyrirhugaður var, felldur niður þar sem stúlkurnar í Fram hafa hætt frekari þátttöku í Evrópu- keppljinni vegna gifurlegs kostnaðar. Handholfapi inktar Lfrá V-Þýzlc ImHI alandi \ Þá VÉéftur leikið í 1. deild karla og kvenna. Þá veröa einnig leikir i öðrum deildum. íslandsmeistarar Vals héldu til Lundúna i gær og leika við ensku meistarana Brentwood á laugardag í Evrópukeppni meistaraliða. Sá leikur er nánast formsatriði — enskir eru mjög slakir í handknattleik. Enska liðið komst reyndar í 2. umferð vegna þess að Evrópusambandið dæmdi færeyska liðið Kyndil úr leik. Það mál var á sínum tíma rakið hér í blaðinu. Valsmenn taka áreiðanlega enska liðið í karphúsið svona til að hefna fyrir þá óbilgirni sem það sýndi Færeyingum. Aftur á móti lenda bikarmeistarar Víkings í mjög erfiðum leik í Gauta- borg á sunnudag í Evrópukeppni bikar- hafa. Mótherji Víkings er sænska liðið, Heim, sem um langt árabil hefur verið í hópi beztu handknattleiksfélaga Sví- þjóðar. Heim byrjaði keppnistímabilið ekki vel en hefur sýnt mikinn styrkleika á sænskan mælikvarða í siðustu leikjunum. Fyrir nokkru sigraði Heim efsta liðið í Allsvenskan Lugi örugglega í Gautaborg. Við það komust Vikingarna — Víkingarnir í Svíþjóð — í efsta sætið í Allsvenskan. í síðustu morgun, laugardag. FH-ingar eru ákveðnir í að bæta þar tveimur sdgum í stigasafn sitt. Liðið hefur unnið alla leiki sína í 1. deildinni hingað til. Strax á eftir leika FH og Haukar í 1. deild kvenna. Kl. 15.30 á laugardag leika Þór og Þróttur 1 2. deild karla í Vest- mannaeyjum — Grótta—Dalvík í 3. deild karla kl. 17.00á Seltjarnarnesi. Á sunnudag kl. 14.00 leika HK, Handknattleiksfélag Kópavogs og Haukar í 1. deild karla í íþróttahúsinu að Varmá í Mosfellssveit og ættu Haukar að vinna þar nokkuð öruggan sigur. í Laugardalshöll leika svo Fram og KR kl. 19.00 og tveir leikir verða á eftir í 1. deild kvenna. Fyrst KR og Grinda- vík, síðan Fram og Valur.Sá leikur er mjög þýðingarmikill fyrir bæði lið. En hvað um leik Fram og KR í 1. deild karla? Sigurbergur Sigsteinsson, fyrirliði Fram, sagði í morgun. „Leikirnir við KR hafa alltaf verið erfiðir, jafnir og miklir baráttuleikir. í þetta skipti ætlum við að vinna! — Það er bara orðið tímaspursmál hvenær við getum haldið forustu út heilan leik, en ekki aðeins í fimmtíu mínútur.”

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.