Dagblaðið - 30.11.1979, Blaðsíða 13
13
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 1979.
Erlendar
fréttir
Zaire:
Mobuto fær
aðstoð
Níu vestræn ríki hafa fallizt á að
hlaupa undir bagga með stjóm
Mobutos i Zaire og leggja fram rúm-
lega 300 milljónir dollara landinu til
aðstoðar. Auk ríkja í Vestur-Evrópu
eru Bandaríkin og Japan þarna með í
för.
REUTER
r
meiri harka að færast í deilu Irans og Bandaríkjanna
Stjórn Mexikó tilkynnti í gær-
kvöldi að fyrrum keisari í íran fái
ekki heimild til að snúa aftur til bú-
staðar sins i landinu, þegar hann
hverfur af sjúkrahúsinu í New York,
sem talið er verða eftir nokkra daga.
Ástæðan er sögð sú að endurkoma
keisarans brjóti i bága við hagsmuni
Mexikó. Áður hafði stjórn landsins
sagt að hún mundi ekki leggjast gegn
komu keisarans til baka.
Þetta verður að teljast sigur fyrir
andstæðinga Bandaríkjanna í íran.
Síðustu yfirlýsingar frá þeim sem
hafa sendiráð Bandaríkjanna i
Teheran á sínu valdi og halda þar 49
bandarískum gíslum vom á þá leið að
réttarhöldum yfir gíslunum yrði
hraðað enn meir en áður var ætlað ef
keisarinn fengi að fara frjáls ferða
sinna á brott frá Bandaríkjunum.
Framsals keisarans í hendur núver-
andi iranskra yfirvalda er krafizt ef
láta á gíslana lausa.
Talsmenn stúdentanna í sendiráð-
inu sögðu í morgun að ákvörðun
Mexikóstjórnar væri spor í rétta átt.
Deila Bandaríkjamanna og frana
virðist nú vera farin að harðna mjög,
kröfur um að Bandaríkjamenn grípi
til vopna til að frelsa gíslana eða til
að sýna frönum hver raunverulega
ráði gangi mála verða sífellt háværari
í Bandaríkjunum.
Utanríkisráðuneytið bandaríska
sagði í morgun að því væri kunnugt
um tilkynningu stjórnar Mexikó
varðandi keisarann en talsmenn
ráðuneytisins vildu ekkert segja um
málið efnislega.
Vaxandi gagnrýni beinist nú að
þeirri ákvörðun Bandaríkjastjórnar
að leyfa íranskeisara að koma til
New York á sínum tima. Sagt er að
læknisaðgerð sú sem hann þurfti að
gangast undir hefði eins vel getað
verið framkvæmd í Mexikó eða ann-
ars staðar. Þykir þáttur Kissingers
fyrrum utanríkisráðherra og David
Rockefeller bankastjóra einkum
ámælisverður í málinu.
ANKER FELLIR
KRÓNUNA 5%
Efnahagsmálaráðherra Danmerkur,
Ivar Norgaard, tilkynnti í gærkvöldi að
gengi dönsku krónunnar yrði fellt um
5%. í tilkynningunni var sagt að
danska stjómin mundi leita formlegs
samþykkis ráðs Efnahagsbandalagsins
hvað varðar skráningu gjaldmiðilsins
við niðurgreiðslur og viðskipti með
landbúnaðarvörur á milli ríkja í banda-
laginu.
Anker Jörgensen, forsætisráðherra
Danmerkur, er nú staddur á fundi
ráðamanna ríkja bandalagsins, sem
fram fer í Dublin í frska lýðveldinu.
Þar hafði hann skýrt öðrum þjóðar-
leiðtogum frá efnahagsvanda Dana.
Gengisfellingin er einn liður í þeim
efnahagsaðgerðum, sem minnihluta-
stjórn danskra jafnaðarmanna hafði
boðað fyrir nokkru.
Fyrsta skráning danska þjóðbankans
eftir tilkynninguna um gengisfall krón-
unnar var í morgun.
EITURLYF UND-
IR GERVIGÓLFI
Eiturlyf af ýmsu tagi fundust í gær á
milli gólfklæðninga i húsi einu í Los
Angeles í Kaliforníu. Eru þau talin að
virði 180 milljóna dollara eða jafnvirði
um það bil áttatíu milljarða íslenzkra
króna. Er þetta talinn einn mesti eitur-
lyfjafundur I sögunni.
Eitrið sem falið var undir fölsku
gólfi var 45 kílógrömm af heróíni, 22
kílógrömm af morfínbasa og 13 kíló-
grömm af kókaíni. Talið er að þarna
hafi verið til húsa dreifistöð fyrir
mikinn eiturlyfjahring.
Enginn hefur enn verið handtekinn
vegna þessa máls og ekki er talið að eig-
andi hússins eða leigjandi haFi neitt
vitað um þá starfsemi sem þar fór fram
innan veggja og milli veggja.
STUDIO 54 0G
JORDAN í MIKLUM
VANDRÆÐUM
Hamilton Jordan, æðsti samstarfs-
maöur Jimmy Carters Bandaríkja-
forseta í Hvita húsinu, sagðist hafa
orðið fyrir miklum vonbrigðum
þegar tilkynnt var að ákveðiö hefði
verið að skipa sérstakan saksóknara I
máli sem sprottið er af ásökunum á
hendur honum um neyzlu kókaíns.
Alríkislögreglan bandaríska, FBI,
hefur haft þetta mál til rannsóknar í
þrjá mánuði, síðan maður einn
sagðist hafa verið viðstaddur þegar
Jordan hefði neytt kókaínsins í kjall-
ara diskóteksins Studió 54 í New
York.
Mál þetta þykir verulegt áfall fyrir
Carter Bandaríkjaforseta. Talsmenn
Hvíta hússins hafa algjörlega vísað á
bug hugmyndum um að Hamilton
Jordan yrði vísað úr embætti á
meðan rannsókn á máli hans færi
fram. Benda þeir á að þarna sé aðeins
um frumrannsókn að ræða. Ekkert
sé að því látið liggja í gögnum um
skipan saksóknarans ao'JoFdan sé
sekur um eiturlyfjaneyzlu.
Studíó 54 diskótekið, eitt hið fræg-
asta í New York og jafnvel í heimi, á
nú einnig í miklum erfiðleikum. Eig-
endur þess liggja undir grun um
skattsvik og fleira sem ólöglegt er
talið.
Hamilton Jordan, nánasti aðstoðar-
maður Carters Bandarikjaforseta i
Hvítahúsinu.
SAMBANDIÐ AUGLÝSIR
go/fteppi
Urval af einlitum og
munstruðum teppum
Ensk úrvalsvara
SAMBAND ÍSLENZKRA SAMVINNUFÉLAGA
BYGGINGARVÖRUR Teppadeild
SUÐURLANDSBRAUT 32 SÍMI82033
Stokkseyringar, Ámesingar!
ALLABÚÐ
auglýsir allt íjólamatinn
(Jrbeinum og göngumfrá öllu kjöti eftir
óskum neytenda. Allt unnið af fagmanni.
Einnig höfum við gjafavörur, snyrtivörur,
leikföng o.fl.
Komið og reynið viðskiptin
Opifl ménud—fimmtud. fré kl. 9—6
Föatud. kl. 9-22 - Laugard. kl. 9-12
Parrtífl Jóiamatinn timaniaga
ALLABUÐ, STOKKSEYRI - SÍMI99-3206
Meðal annars:
SVÍNAKJÖT
KJÚKLINGAR
UNGHÆNUR
ALIENDUR
og margt fleira