Dagblaðið - 30.11.1979, Blaðsíða 12
12
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 1979.
Sindy
dúkkan er
jínleg ogfalleg.
PÉTUR
PÉTURSSON
SUÐURGÖTU 14
SfMAR 21020 - 25101
evu
Þessi heimsþekktu
quartz-úr fást
hjá flestum
úrsmiðum
UMBODSMAÐUR
Datsun 120Y árg. '11. Rauöur, vel
meö farinn. Ný frambretti. Sænska út-
gáfan. Ótrúlega sparneytinn. Gerið
göö kaup.
Vestur-Þýzkaland:
ENN FINNST EITUR-
GAS OG SPRENGJUR
leifar sem ekki var hent í Norðursjó og Eystrasalt
Á annað hundruð dunkar af
eiturgasi frá því á tímum síðari
heimsstyrjaldarinnar fundust í skóg-
lendi í Bæjaralandi í Vestur-Þýzka-
landi í gær. Það var innanríkis-
ráðherrann í Munchen, sem tilkynnti
þetta. Lögreglan hefur þegar lokað af
stóru landsvæði í um það bil eitt
hundrað kilómetra fjarlægð frá
Munchen. Tvö eiturgasbox fundust
fyrst og þegar farið var að athuga
málið kom í ljós að mun meira var af
þessu efni í skóginum. Auk þess mun
vera þarna um nokkurt magn af
sprengjum.
Sagt var í vestur-þýzka sjónvarp-
inu i gær að þarna væru taldarvera i
það minnsta 6 milljónir kilógramma
af eiturgasi og sprengjum frá
síðari heimsstyrjöldinni.
Eiturgasið var framleitt á vegum
þýzka hersins í Póllandi og Sovét-
ríkjunum á meðan Þjóðverjar réðu
þar. Er bandamenn hemámu Bæj-
araland í april 1945 voru sprengj-
urnar afhentar herstjórn þeirra.
Var mestu magninu sturtað í
Noröursjó og Eystrasalt en af-
ganginum komið fyrir í fyrmefndum
skógi. Undanfariö hefur vestur-þýzki
herinn notað landsvæðið fyrir úrelt
vopn og aflóga drasl.
Fyrir um það bil tveim mánuðum
fundust 500 tonn af eiturefnum og
skotfærum í rústum vopnasmiðju í
úthverfi Hamborgar. Ekki var þó
neitt gert í málinu fyrr en ungur
drengur hafði farizt þar.
t dag lýkur mikilli trúarhátið i tranog er búizt við aö rúmlega milljón manns verði á götumTeheran i tilefni af þvi og einnig til aö lýsa yfir stuðningi viö Kho-
meini trúarleiötoga og stefnu hans. Stúdentar f bandarfsku sendiráösbyggingunni hafa tilkynnt að þeir muni flýta réttarhöldunum yfir gfslum sfnum ef keisar-
inn fyrrverandi fái að hverfa frá Bandarfkjunum.
Danmörk:
Læknir fékk 8 mánuði
fyrir falska reikninga
Erlendar
fréttir
Lancer 1400 Colt sendibfll árg. ’78.
Ekinn S þ. km. Eyðir 7 I pr. 100 km.
Hiiðardyr beggja megin. Sparneytinn
fyrirtækisbfll. Hvitur og grænn.
Fimmtugur danskur læknir var ný-
lega dæmdur í átta mánaða fangelsi
fyrir að falsa reikninga, sem hann síðan
lét sjúkrasamlagið greiða. Einnig var
læknirinn’ sviptur heimild til að
,,'praktisera” sem sjálfstæður læknir
næstu fimm árin. Að lokum var hann
síðan krafinn endurgreiðslu á jafnvirði
nærri tólf milljóna íslenzkra króna,
sem hann var talinn hafa haft á ólög-
legan hátt út úr sjúkrasamlaginu.
Aðferð læknisins mun hafa verið sú
að hann útbjó einfaldlega of háa eða
algjörlega falska reikninga fyrir
aðgerðir og rannsóknir, sem hann
hafði annaðhvort ekki framkvæmt eða
ofmat verulega við reikningagerðina.
Rúmlega fjögur hundruð vitni voru
leidd fram i málarekstrinum. Það var
deild i ríkislögreglunni dönsku, sem
kom upp um málið. Svikin eru sögð
hafa átt sér stað á árunum 1972 til
1975.
Honda Cure árg. '11 var aö koma inn.
Silfurlitur meö svartri rönd. Ekinn 33
þ. km. Eftirsóttasti smábfilinn á’
markaðnum.
Lada 1200 station árg. ’74. Nýupp-
tekin vél. Grænn, gott lakk. Góö kjör.
SKEIFAN 5 — SlMAR 86010 og 86030 |j
Efnahagsbandalagið:
Kröfum Breta hafnað -
verda að greiða sama
Nær víst var talið í morgun að
Margréti Thatcher, forsæusráðherra
Breta, mundi ekki takast að fá fram-
lag Breta til Efnahagsbandalagsins
lækkað verulega eins og þeir hafa
krafizt. Segja sérfræðingar að deil-
urnar hafi aldrei verð harðari og and-
stæðurnar skarpari á milli Breta og
hinna þjóðanna átta i Efnahags-
bandalaginu siðan þeir gengu i það
árið 1973.
Talsmenn Breta á fundi bandalags-
ins, sem haldinn er i Dublin í írska
lýðveldinu, vildu ekkert segja um
málið annað en þaö að mikill vandi
væri framundan ef Bretar fengju
ekki framlögsín lækkuð.
Andrúmsloftið við kvöldverðar-
borð leiðtoga þjóðanna í gær var
mjög kuldalegt. Notaði frú Thatcher
þá tækifærið og fullyrti að Helmut
Schmidt, kanslari Vestur-Þýzka-
lands, byggði á röngum upplýsingum
er hann áfeUdist Breta fyrir að hækka
verð Noröursjávarolíu sinnar upp
fyrir verðskráningar OPEC ríkjanna.
Bretar hafa frá byrjun verið þeirrar
skoðunar að þeir séu látnir bera
meira en þeim nemur af fjárhags-
birgðum Efnahagsbandalagsins.
hefur þeim því ekkert gengið að fá
þessa skoðun sína viðurkennda.
Aðrar þjóðir i bandalaginu hafa
ekki viljað fallast á kröfur Breta þó
svo að tillögur um nokkra lækkun
framlags þeirra hafi komið fram.