Dagblaðið - 30.11.1979, Blaðsíða 23
ÐAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 1979.
31
REYKJANES
Sérfræðingar hafa á orði að í
Reykjaneskjördæmi ,,eigi?’ Sjálf-
stæðisflokkur tvö þingsæti og síðan
hver hinna flokkanna, Framsókn,
Alþýðuflokkur og Alþýðubandalag,
eitt þingsæti. Eiga fræðingarnir þá við
að hið trausta fylgi sem flokkarnir geti
reiknað með tryggi þeim yfirleitt slíka
útkomu.
Ekki hefur þetta þó reynzt svo í
tvennum undanförnum alþingis-
kosningum og miðað við kenningar um
að hæstvirtir kjósendur gerist sífellt
djarfari í flokkalausung er engan
veginn víst að kenningar hinna sér-
fróðu eigi sér nokkuð frekari stoð í
komandi kosningum um helgina næstu
eða þá síðar.
f kosningunum 1959, — ’63, —’67
og ’71 stóðst kenningin um tvo sjálf-
stæðisþingmenn og einn frá hverjum
hinna þriggja flokkanna gömlu að
fullu. Hún féll síðan í kosningasigri
sjálfstæðismanna árið 1974 og óförum
Alþýðuflokksins, sem þá komst næst
andarslitrunum sem þingflokkur. Síð-
arnefndi flokkurinn ruglaði siðan öll-
um kenningum á sigurstundu sinni í
siðustu kosningum í júní í fyrra.
Kratar fengu aftur manninn sem
þeir höfðu tapað 1974 og felldu auk
þess Jón Skaftason, fyrsta
manninn á lista Framsóknar-
flokksins.
Jón Skaftason
reyndist spá-
mannlega vaxinn
Jón var eðlilega sár yfir úrslitunum
þó hann bæri sig karlmannlega. í
viðtali við DB snemma á mánudags-
morgni, er úrslit lágu fyrir í fyrra,
sþáði Jón að þeir flokkar s^m sigruðu í
kosningunum þá mundu ekki geta
myndað stjórn sem gæti sctið út kjör-
tímabilið.
Jón Skaftason reyndist spámann-
lega vaxinn og þess vegna kjósum við
aftur nú í byrjun jólaföstu. Jón hefur
aftur á móti dregið sig út úr pólitík og
situr nú á friðarstóli sem yfirborgar-
fógeti í Reykjavík á skrifstofu
embættisins við Skólavörðustíg.
Sporgöngumaður Jóns á stjórn-
málasviðinu er Jóhann Einvarðsson,
bæjarstjóri í Keflavík. Vei látinn á
Suðurnesjum og þykir hafa staðið sig
vel i bæjarstjórastarfinu, sem ekki er
öllum lagið. Jóhann hefur verið for-
maður stjórnar Hitaveitu Suðurnesja
frá upphafi en hitaveituframkvæmdir
þeirra Suðurnesjamanna eru líklega
einhverjar mikilvægustu úrbætur sem
unnið hefur verið að þar um slóðir.
Kemst þingmanns-
fley Framsóknar
aftur á f lot
Jóhann Einvarðsson, sem
framsóknarmenn ætla til að setja þing-
mannsfley sitt í Reykjaneskjördæmi
aftur á flot, er reyndar fæddur i
Reykjavík og meira að segja í vestur-
bænum. Maðurinn mun hafa gerzt KR-
ingur snemma og lék þar i það minnsta
handknattleik framan af árum. Jóhann
starfaði mikið að félagsmálum hand-
knattieiksmanna þar til hann hvarf
nokkuð óvænt til ísafjarðar, þá
nýráðinn bæjarstjóri. Hann tók síðan
við sama embætti í Keflavík árið .19
Gunnlaugur féll naumlega fyrir Olafi
Björnssyni 1 prófkjörinu um þriöja sætíð
á Alþýðuflokkslistanum. Hann skipar nú
annað heiðurssætí listans.
Salome og Jóhann berj-
ast líklega um 5. sætið
—gildir eignarhald f lokkanna á tryggum þingsætum eða
raskar lausung kjósenda kenningum sérfræðinganna
Vinna sjálfstæöismenn aftur þriðja sætiö i Reykjaneskjördæmi og senda Salome
Þorkelsdóttur á þing eða lætur hún sér nægja uppbótarsætið? Hún er alla vega ein
af fáum konum sem vafalítið munu sitja á Alþingi eftir þessar kosningar.
Hvort Framsókn tekjt'naff'éfídtjr-
heimta þingmann sinn í kjördæminu er
ekki ljóst. Ýmsir segja að Jóhapn geti
vænzt fylgis óánægðra sjálfstæðis-
manna á Suðurnesjum. Rökstuðningur
fyrir því er sá að enginn fulltrúi Suður-
nesja sé í öruggu sæti á sjálfstæðislist-
anum. Fyrri fulltrúar þeirra, Oddur
Ólafsson læknir og Eiríkur
Alexandersson, bæjarstjóri í Grinda-
vík, eru nú í heiðurssætum listans.
Oddur vinnur vel
fyrir Salome
Oddur vann mjög ötuilega að því að
sjálfstæðismenn á Suðurnesjum
styddu Salome Þorkelsdóttur úr Mos-
fellssveitinni í prófkjöri flokksins.
Hann er vinsæll þar syðra sem annars
staðar, ættaður úr Höfnunum og
orðstir hans sem eins forustumanna
berklasjúklinga hefur orðið honum að
góðu liði í pólitíkinni.
Ef litið er framhjá fjarveru fulltrúa
Suðurnesjamanna á sjálfstæðislistan-
um er það almannarómur að aðrir
hlutar kjördæmisins megi vel við una.
Rótgrónir kappar eru i tveim fyrstu
sætunum. Þeir Matthías Á. Mathiesen
og Ólafur G. Einarsson. Hinn
fyrrnefndi traustur í sessi með Hafnar-
fjarðarfylgið að baki sér siðan hann
felidi Emil Jónsson, þáverandi for-
sætisráðherra minnihlutastjórnar
krata í frægu einvígi þeirra árið 1959,
er Hafnarfjörður var enn einmennings-
kjördæmi.
Ölafur G. Einarsson hefur lengi
verið forustumaður í samtökum sveit-
arstjórna frá því hann var sveitarstj. i
Garðabæ. Vegna þeirra starfa varð
Ólafur formaður hlutafélagsins
Olíumalar, sameignar nokkurra sveit-
arfélaga, sem vildu bæta gatnakerfi
sin. Nú er Olíumöl djúpt sokkin í
skuldasúpuna og óvíst um framtíð
fyrirtækisins. Vilja sumir kenna stjórn
fyrirtækisins um og hefur Ólafur sem
stjórnarmaður hlotið nokkurt ámæli
fyrir. Ekki hefur þetta áhrif á að hann
er örugfeúi- irieð þingsæti sitt og alls
óvíst hvort ófarir Olíumalar hafa
nokkur áhrif á gengi Sjálfstæðis-
flokksinsí Reykjaneskjördæmi.
Saiome úr Mosfellssveit mun án
vafa verða í þingliði flokksins eftir
kosningar. Hún er þaulreynd úr sveit-
arstjórnarmálum og öðrum félags-
málum.
Seltirningurinn Sigurgeir Sigurðs-
son, bæjarstjóri, þar er í fjórða
sæti listans. Hann mun vafalaust koma
til með að sitja sem varaþingmaður á
næsta þingi í fjarveru aðalmanna.
Nýtt andlitá
sjálfstæðislistanum
Nýtt andlit er í fimmta sæti sjálf-
stæðislistans, mikill dugnaðarforkur úr
Garðabæ, Arndís Björnsdóttir. Á
námsárum sínum í Verzlunarskólanum
var hún margsinnis i dúxasæti. Síðan
'kenndi hún við sama skóia ytð-gýðan
orðstír og stundar nú-auk húsftóðúr-
starfa kaupmennsku í höfuðborginni.
Andstæðingar Arndísar vildu
kenna hana við Kassagerð Reykjavíkur
þegar hún birtist nokkuð óvænt á
prófkjörsvígvellinum fyrr í vetur.
Þetta erómaklegt. Arndís Björnsdóttir
þarf enga kassagerð á bak við sig.Húrv
mun vera fullfær um að sjá um sig sjálf
í hinum pólitíska sjó kjósi hún að
sækja hann i framtíðinni.
Alþýðuflokksmenn mæta nú til
leiks með Ólaf Björnsson útgerðar-
mann í Keflavík i þriðja sæti listans i
staö Gunnlaugs Stefánssonar
guðfræðinema úr Hafnarfirði sém
óvænt komst inn sem uppbótarþing-
maður, er kratar fengu tvo menn
kjördæmakjörna í síðustu kosningum í
kjördæminu.
Karlmannlegir
kratar að
langfeðgatali
Ekki munaði þó nema örfáum at-
kvæðum á þeim í prófkjöri flokksins í
haust. Þá varð nokkur ágreiningur
vegna galla á atkvæðaseðlum. Gunn-
laugur tók ósigrinum karlmann-
lega.Lýsti yfir órofa stuðningi við
Alþýðufokkinn eins og krata að lang-
feðratali ber að gera. Hann skipar
síðan næstneðsta sæti listans og hefur
auk þess sótt um stöðu fréttamanns
hjáRíkisútvarpinu.
’,.;Ölíklegt er talið að Alþýðu-
flokkurinn haldi fylgi sínu í Reykjanes-
kjördæmi. Þeir Kjartan Jóhannsson,
varaformaðúf ílijJtksuis og sjávarút-
vegsráðherra, og Karl Steinar Guðna-
son verkalýðsleiðtogi af Suðurnesjum,
munu þó vafalítið báðir endurheimta
þingsæti sín þó sá síðarnefndi verði
kannski uppbótarmaður.
Gils Guðmundsson sem veríð hefur
efsti maður á lista Alþýðubandalagsins
frá því 1960, sezt nú á friðarstól og
gefur ekki kost á sér aftur. Gils, sem
verður 65 ára á komandi gamlársdag,
kýs nú vafalaust að snúa sér alfarið að
fræðistörfum og skriftum, sem hafa
orðið að verá hjáverk hans meðan á
þingmennskunni stóð.
' Gils var aldrei neinn hávaðamaður á
þingi þó hann skipaði sitt sæti með
sóma. Slíkt verður heldur ekki sagt um
Geir Gunnarsson sem nú færist úr
öðru sæti lista bandalagsins á Reykja-
nesi upp í hið fvrsta. Geir, sem er gegn
þingmaður, hefur aldrei fengizt til að
taka við neinum vegtyllum úr hendi
fiokks síns þrátt fyrir tilraunir flokks-
bræðra. Hann hefur um árabil setið í
fjárveitinganefnd Alþingis, sem þykir
ein sú annasamasta. Þar hefur Geir
Gunnarsson þótt betri en enginn.
Benedikt verður
ekki bumbult
af mixtúrunni
í annað sætið hjá Alþýðubanda-
laginu kemur verkalýðsfor-
inginn Benedikt Davíðsson, for-
maður Sambands byggingamanna.
Hann er trésmiður að mennt en hefur
iengi verið í fylkingarbrjósti fyrir
starfsbræður sína. Hann hefur auk
þess gegnt trúnaðarstörfum fyrir
Alþýðubandalagið um árabil. Sumir
vilja segja að erfitt sé að samræma
þetta tvennt en ekki er vitað til þess að
Benedikt hafi orðið bumbult af
mixtúrunni. Víst má telja að hann fari
nú á þing sem uppbótarmaður. Þar
bætist þá einn við af verkalýðs-
foringjum á Alþingi. Annars hefur
Benedikt Davíðsson stundum verið
kallaður fulltrúi svokallaðs upp-
mælingaraðals, sem ekki eigi neitt
sameiginlegt með hinum almenna
verkalýð.
Um úrslitin, þegar talið hefur verið
úr kjörkössunum, er það að segja í
heild sinni að þeir Matthías og Ólafur
eru inni sem kjördæmakjörnir fyrir
Sjálfstæðisflokkinn, Kjartan fyrir Al-
þýðuflokk og Geir Gunnarsson fyrir
Alþýðubandalag. Baráttan stendur
liklega á milli Salomc Þorkelsdóltur af
sjálfstæðisiistanum og lóhai n<
Einvarðssonar hjá Frainsókn.l kki mi
þó gleyma því að Alþýðuflokkur hafði
þetta sæti í kosningunum í fyrra. Til
Reykjanesskjördæmis fara að venju
þrjú uppbótarþingsæti og í þau eru
líklegust Salome eða Sigurgeir bæjar-
stjóri frá Sjálfstæðinu, Karl Steinar
eða Ólafur útgerðarmaður frá krötum
og Benedikt Davíðsson fyrir Alþýðu-
bandalag.
-ÓG.
Matthias Á. Mathiesen, fyrrum fjár-
málaráóherra, verður vafalaust 1. þing-
maður Reykjaneskjördsmis og byggir
þá m.a. á traustu fylgi I Hafnarfirði.
Veðja óánsgðlr sjálfstæðismenn á
Suðurnesjum atkvæði sinu á Jóhann Ein-
varðsson bæjarstjóra, fyrsta mann á lista
Framsóknar?
Benedikt Daviðsson verkalýðsleiðtogi
situr nú i öðru sætí á lista Alþýðubanda-
lags.
Jón Skaftason, sem orðinn er yfirborgar-
fógetí 1 Reykjavík, reyndist sannspár um
langlifi vinstri stjórnarinnar.