Dagblaðið - 30.11.1979, Blaðsíða 37

Dagblaðið - 30.11.1979, Blaðsíða 37
I DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 1979. SUÐURLAND 45 Roði hef ur færzt í kinnamar Magnús H. Magnússon — vildi halda i vinstrí stjórn. Kosningaúrslitin á Suðurlandi verða mjög spennandi i þetta sinn. Erfitt er að spá. Furðumargir sem verið hafa þingmenn eru nú í fallhættu, þótt lík- lega falli í mesta lagi einn úr þeim hópi. Suðurlandskjördæmi var löngum býsna stöðugt í pólitíkinni. Það um- turnaðist í síðustu kosningum. Síðasta hálfan annan áratuginn fyrir síðustu þingkosningar hafði Sjálfstæðisflokk- urinn haft fylgi á bilinu 39 til 42 pró- sent atkvæða og þrjá þingmenn. Fram- sókn hafði haft fylgi frá 33 til 37 af hundraði atkvæða og tvo þingmenn. Talsvert á eftir þeim en í öruggu þriðja sæti kom Alþýðubandalagið með 12 til 15 prósent atkvæðanna og einn þing- mann. Alþýðuflokkurinn var jafnan í niðurlægingu. Hann hafði fylgi frá 6 til 9,4 af hundraði og engan þingmann. 1 síðustu kosningum varð víða um land mikil röskun. Alþýðuflokkurinn rauk upp í 16,8 af hundraði atkvæð- anna og fékk þingmann kjörinn á kostnað Sjálfstæðisflokksins, sem missti einn af stnum þremur. Alþýðu- bandalagið fór upp í 19 af hundraði at- kvæðanna og var ekki mjög langt frá að vinna mann. Fylgi Sjálfstæðis- flokksins hrapaði niður í 31,5 prósent og Framsóknar í 21,8 prósent. í kosn- ingabaráttunni nú spyrja margir hvort gamla flokkakerfið verði endurreist á Suðurlandi, en margt fleira hangir á spýtunni. Sveitahöfðingjar valtir Ef marka má skoðanakannanir má gera ráð fyrir fylgistapi Alþýðuflokks og Alþýðubandalags. Við það getur þingmaður Alþýðuflokksins, Magnús H. Magnússon, lent í mikilli fallhættu. En miklu áhrifameira getur orðið fram- boð L-listans, lista Eggerts Haukdal. Með einföldun má segja að Suður- landskjördæmi skiptist í þrjá hluta. í fyrsta lagi landbúnaðarhéruð, sem ná um mikinn hluta Árnessýslu og yfir Rangárvalla- og Vestur-Skaftafells- sýslu. í öðru lagi Vestmannaeyjar, með gjörólíku atvinnulífi. í þriðja lagi má telja þorpin í Árnessýslu, Selfoss, Þor- lákshöfn, Stokkseyri, Eyrarbakka og Hveragerði, sem eru um margt ólík en eiga ekki samleið nema að hluta með sveitahéruðunum austar og í kring. Úrslit síðustu þingkosninga eiga að miklu rætur í umbreytingu á atvinnu- lífi. Sveitahöfðingjarnir, sem mestu réðu á listum Sjálfstæðis- og Fram- sóknarflokks, höfðu ekki sama að- dráttarafl og áður. Við bættist að sjálf- sögðu óánægja með ríkisstjórn Sjálf- stæðis- og Framsóknarflokks, sem ýtti Guðmundur Karlsson — kominn 1 fallhættu. undir það rót sem fyrir var í kjördæm- inu. Fallhættan Sjálfstæðismenn lentu í miklum vanda í Suðurlandskjördæmi þegar með litlum fyrirvara var efnt til kosn- inga að þessu sinni. Steinþór Gestsson bóndi og alþingismaður hafði verið í 3. sæti á D-lista seinast og fallið. Á þing komust fyrir sjálfstæðismenn Eggert Haukdal, Rangæingur, og Guðmundur Karlsson úr Eyjum. Steinþór Gestsson sótti nú fast að komast í öruggt sæti. Hann fékk stuðning Vestmannaeyinga. Menn Eggerts Haukdal báðu um próf- kjör en fengu ekki. Eggert átti að fara í 3. sæd D-listans, sem var engan veginn öruggt til þingmennsku, þótt búast mætti við fylgisaukningu. Eggert undi ekki þeirri ráðstöfun og varð þá til L- listinn, sém stundum er kenndur við sjálfstæðismenn „austan Þjórsár”. Þessi listi verður áreiðanlega nálægt því áð ná manni á þing og flestir munu spá að honum takist það. Spurningin er þá: Hver fellur af hinum? Guðmundur, Magn- ús eða Jón? L-listinn þarf sennilega yfir 1200 at- kvæði til að fá þingmann. Vafalaust verða flest atkvæði sem listinn fær, en ekki öll, tekin af Sjálfstæðisflokknum. Við það ætti 2. maður D-listans, Guð- mundur Karlsson, að falla. En þetta þarf ekki endilega að fara svona. Fari til dæmis svo að D-listinn vinni fylgi af A-listanum til að bæta sér að nokkru upp fylgistapið til L-listans getur 1. maður á A-lista, Magnús H. Magnússon, verið í fallhættu. Enn- fremur finnast menn á Suðurlandi sem segja að L-listinn muni einnig vinna fylgi af Framsókn þannig að ekki sé útilokað að 2. maður á B-lista, .Jón Helgason alþingismaður, sé í fallhættu. Telja má víst að Alþýðubandalagið fái hvorki meira né heldur minna en sinn venjulega einn þingmann í kjör- dæminu, Garðar Sigurðsson, þótt ein- hverjar sveiflur gætu orðið á fylgi flokksins. Sú var tíðin að kempurnar Ingólfur á Hellu, úr Sjálfstæðisflokknum, og Ágúst á Brúnastöðum, úr Framsóknar- flokknum, báru höfuð og herðar yfi^ aðra menn á Suðurlandi. Mönnum hefur ekki fundizt mannvalið hið sama síðan. Enn er töggur í Ingólfi. Honum mislíkar eðlilega að sjálfstæðisforystan í kjördæminu hefur ekki farið að ráðu'm hans. Hann hefur þvi gengið til ötullar og talsvert árangursríkrar bar- áttu fyrir kjöri Eggerts Haukdal, að Eggert Haukdal — afsprengi bænda- fundanna. gömlum sið sínum. Afstaða Ingólfs ræður miklu um kjördæmið allt. Bændahöfðinginn Steinþór Gestsson skipar nú efsta sæti D-listans. Steinþór þykir mönnum hinn þekkilegasti maður. Söng- og hestamaður. Hann var formaður fjárveitinganefndar AI- þingis þegar hann sat síðast á þingi. Steinþór sætti sig aldrei við er honum var ýtt niður í 3. sæti D-listans, sem reyndist fallsæd. Hann hugði á endur- reisn æru og tókst það. Steinþór skortir hins vegar á að vera jafnlitríkur og vera þyrfti. Leiðir á þingi í 2. sætí D-lista er Guðmundur Karlsson, frystihússeigandi í Vest- mannaeyjum, prúður maður og þægi- legur en ekki Iitrikur. Sögur segja að Guðmundi leiðist á Alþingi og kunni betur við sig í stússi fyrir fiskvinnslu. Bændahöfðingjarnir drottna enn á B-lista Framsóknarflokksins. Þar er sem fyrr Þórarinn Sigurjónsson i öruggu sæd. Litið hefur farið fyrir honum á Alþingi enda einnig um hann sagt að honum leiðist þar. Hann kunni betur við búrekstur sinn. Jón Helgason, bóndi á Seglbúðum, 2. maður á B-lista, hefur að undan- förnu hafizt til nokkurs vegs á Alþingi. Hann hefur öðrum framsóknarmönn- um fremur tekið tíl við fjármál hins opinbera í nefndum. Fyrir vikið er Jón Helgason, sem fyrrum var nánast í fel- um, farinn að koma fyrir augu þjóðar- innar annað veifið. Þótt Jón sé í sæti á Jón Helgason — hefur vaxið nokkuð. eftir Þórarni hefur Jón tekið forystu fyrir Sunnlendingasveit Framsóknar í þjóðmálum, en Þórarinn fremur feng- izt viö málefni kaupfélags og héraðs síns. Slagur við Baldur Garðar Sigurðsson kennari er enn efstur á lista Alþýðubandalagsins eftir harðan slag við Baldur Óskarsson í skoðanakönnunum fyrir kosningarnar. Garðar vann á aðeins fjórum at- kvæðum. Þeir sem þekkja Baldur vita að hann hefur ekki Iátið hér staðar numið. Garðar er hress í ræðum og tali 'og fellur vel að tilfinningum Vest- mannaeyinga. Honum hefur ásamt Baldri, sem skipar 2. sætið eins og síðast, tekizt að auka fylgi Alþýðu- bandalagsins verulega. Ást á stólnum? Magnús H. Magnússon er vafalaust þjóðkunnastur af þeim mönnum sem þarna er um að ræða. Hann var þjóð- hetja í Eyjagosinu en hefur tíl þessa skort litríki til forystu. Þó er Ijóst að ráðherradómurinn hefur stælt Magnús. Hann er mun hressari og öruggari en hann var í fyrra þegar hanaat stjórn- málamanna fer fram á framboðsfund- um. Magnús vildi halda lifi í vinstri stjórninni og skar sig úr í þingflokki Alþýðuflokksins fyrir þær sakir. Stundum hefur komið fram að Magnús hefúr í ráðherradómi ekki áttað sig fylli- lega á kerfinu en vafalaust hefur hann samúð margra fyrir áhuga á ýmsum málum sem hann hefur ýmist flutt eða haft í smíðum og Magnús segir að hafi valdið ,,ást sinni á stólnum”. Eggert tvíeflist Eggert Haukdal, 1. maður L-lista, reynir með því framboði að halda þing- sæti sínu. Nokkuð er misjafnt hvað þessi fulltrúi bændaménningarinnar er harðvitugur í baráttu fyrir sínum mál- um. Andstæðingar hans láta í veðri vaka að hann hafi verið fylgissveinn annarra á Alþingi. Erfitt er að halda því fram í þessum kosningum þar sem hann brý/t undan aga flokksvaldsins. Eggert vakti mikla athygli á bænda- fundunum, sem frægir voru fyrir síð- ustu kosningar. Hann reyndist þar skel- eggari en menn töldu að óreyndu og varð það til að koma honum á þing. Eggert stóð á sínu og sat eftír þegar nær allir sjálfstæðismenn gengu úr þingsölum í fyrra ásamt alþýðuflokks- mönnum til að mótmæla fundarstjórn Ingvars Gíslasonar í umræðum um þriggja til þriggja og hálfs milljarða styrk til bænda. Málið dagaði uppi. Þetta er hitamál í landbúnaðarhéruð- um um allt land fyrir þessar kosningar og stendur Eggert mun betur gagnvart bændafylginu fyrir afstöðu sína. Egg- ert hefur tvíeflzt í bardaganum síðan L- listinn varð tií. Eins og segja má um suma aðra af þessum forystumönnum Sunnlendinga má telja að roði hafi færzt í kinnar manna, sem voru lit- lausir í fyrra. - HH Baldur Óskarsson — ekkihættur. SEM ÞORIR

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.