Dagblaðið - 30.11.1979, Blaðsíða 35
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 1979.
43
NORÐURLAND EYSTRA
Bræður berjast
og
Framsókn hirðir þingsæti
Lárus Jónsson ræðir milin við Dalviking. Stefán Jónsson á næsta viðtalsbil.
DB-mynd: ARH.
Það liggur bærilega á Ingvari Glslasyni, efsU manni hjá Framsókn,og Helga
DB-mynd: ARH.
Norðurland eystra er eitt af þeim
kjördæmum sem mest eru í kastljósi
spámanna í pólitík þessa stundina.
Ástæðan er augljós. Þar getur dregið
til meiri háttar tíðinda í kosningunum.
Þar er hart barizt um bitann.
Hvað halda kratarnir miklu fylgi?
Fær Framsókn 3 menn kjörna? Heldur
Alþýðubandalagið sínu? Fellur Halldór
Blöndal? Á Sólnes möguleika eða fá
þeir pólitíska bræðrabyltu, hann og
Blöndal?
Spurningarnar eru margar sem menn
velta fyrir sér.
Þingmenn kjördæmisins voru sjö
talsins á síðasta þingi, 6 kjördæma-
kjörnir og 1 til uppbótar. Allir nema
einn fyrrverandi þingmenn eru í „volg-
um” sætum og einstaka jafnvel í bull-
andi heitum sætum. Bragi Sigurjóns-
son, fv. þingmaður og ráðherra, á ekki
kost á því að setjast í stólinn að loknum
kosningum. Hann féll í prófkjöri Al-
þýðuflokksins og er ekki að finna á
framboðslista fiokksins.
Möguleikar Árna
þokkalega góðir
Kratar fengu dúndrandi glæsilega
kosningu síðast og komu tveimur
mönnum að, Braga Sigurjónssyni og
Árna Gunnarssyni. Árni datt naumlega
inn fyrir þröskuld þinghússins sem
uppbótarmaður og var ýmist úti eða
inni tímunum saman þegar Vestfirðing-
ar voru að tína atkvæði sín upp úr
kössum.
Ólíklegt er að kratar fagni svo
góðum sigri í ár og leggja þeir allt kapp
á að halda inni einum þingmanni, Árna
Gunnarssyni.
Jón Helgason, formaður verkalýðs-
félagsins Einingar, keppti um 2. sætið á
A-listanum á móti Jóni Ármanni
Héðinssyni. Jón fyrrnefndi lá fyrir.
Jóni síðarnefnda og þykir framboðið
veikara fyrir vikið. Jón Ármann er
sunnanmaður eins og Árni. Finnst
ýmsum nóg komið af sunnanmönnum í
framboði. Auk þess hefði Jón Helga-
son styrkt framboðið sem foringi í
verkalýðshreyfingunni.
Möguleikar Arna verða að teljast
þokkalega góðir ef marka má það sem
hvislað er. Helztu atkvæðamið hans
eru á Húsavík og nágrenni, einnig á
Akureyri. Hann hefur að sögn verið
allliðtækur að snattast fyrir norðlenzka
þegna í höfuðborginni og fær trúlega
krossa út á það. Flestir viðmælendur
blaðsins spá honum áframhaldandi
setu í þingsölum.
Simonarsyni á Þverá.
Klofningur
Sjálfstæðisflokks
hjálpar Framsókn
Framsóknarmenn ætla sér að endur-
heimta 3. þingmanninn sem þeir misstu
í síðustu kosningum. Og klofinn Sjálf-
stæðisflokkur hjálpar jæim að hreppa
sinn 3ja mann.
Mál manna er að Framsókn hafi
góðan byr i kjördæminu núna. Einn af
kosningastjórum krata sagði við undir-
ritaðan að hann „óttaðist byrinn hjá
Framsókn núna”.
Ingvar Gíslason, þingmaður kjör-
dæmisins síðan 1961, og Stefán Val-
geirsson, þingmaður síðan 1967, eru í
efstu sætum. Heyra má á sumum
„frömmurum” að þeim hefði fundizt í
lagi að endumýja eitthvað á toppnum.
Einkum heyrast þær raddir í Þingeyjar-
sýslum.
í 3ja sætinu er nýtt andlit, Guð-
mundur Bjarnason. Hann er fæddur og
uppalinn Húsvíkingur, en flutti til
Keflavíkur fyrir 2 árum og er þar
bankaútibússtjóri. Guðmundur var í
bæjarstjórn Húsavíkur í 7 ár, þar af
forseti bæjarstjórnar í 3 ár. Hann hefur
áður verið á B-listanum en aldrei fyrr
staðið á þröskuldi alþingis. Nú er því
spáð að kjósendur fleygi honum inn
fyrir þröskuldinn þann.
Kostar klofningurinn
þingsætið?
Sjálfstæðismenn fengu tvo menn
kjörna síöast, Jón G. Sólnes og Lárus
Jónsson. Nú eru breyttir tímar og upp-
lausn í herbúðum Sjálfstæðisflokksins í
kjördæminu. Sólnes vildi prófkjör en
fékk ekki. Hann býður sig fram á sér-
lista, skipuðum flokksbundnum sjálf-
stæðismönnum. Láms er hins vegar
oddviti D-listans. Lárus á ættir að
rekja til Ólafsfjarðar og hefur verið
þingmaður kjördæmisins síðan 1971.
Hann hefur haft talsverð afskipti af
sveitarstjórnarmálum, var m.a. fram-
kvæmdastjóri Fjórðungssambands
Norðlendinga.
Halldór Blöndal skipar 2. sætið á D-
listanum. Hann hefur setið á þingi sem
varamaður og var í 3ja sæti listans í
síðustu kosningum. Halldór hefur
starfað við blaðamennsku á Morgun-
blaðinu, kennslu á Akureyri og erind-
rekstur fyrir Sjálfstæðisflokkinn í
Norðurlandskjördæmi eystra. Hann
þykir harðskeyttur kappræðumaður og
kemur vel fyrir í pontu.
Halldór er einn af yfirskoðunar-
mönnum ríkisreiknings sem grúskað
hafa í símareikningum Sólness.
Barátta D- og S-listamanna er hörð.
Fyrst og fremst er bitizt um Akureyrar-
fylgi Sjálfstæðisflokksins. Klofningur-
inn mun að öllum líkindum kosta sjálf-
stæðismenn þingsæti í kjördæminu.
Alþýðubandalagið
má þakka fyrir að
halda sínu
Fjögur efstu sætin á lista Alþýðu-
bandalagsins eru skipuð sama fólki og i
síðustu kosningum. Stefán Jónsson er í
fylkingarbroddi.
Alþýðubandalagsmönnum þykir
mörgum hverjum að góður kostur
hefði verið að skipta um fólk i fram-
boði að þessu sinni og hressa svolítið
upp á listann. Ekki er þó að heyra að
þeir séu á einu máli um það á hvern
hátt sú andlitslyfting hefði bezt verið
framkvæmd. Sumir vilja Soffiu Guð-
mundsdóttur (G-2) á toppinn, aðrir
Helga Guðmundsson (G-3). Enn aðrir
vilja skipta um fólk í þrem efstu sætun-
um.
Ég er á móti hernum og erlendri stór-
iöju... Steingrimur Sigfússon, 4. maður
á G-lista, steytir hnefa að framsóknar-
mönnum máli sinu til stuðnings.
DB-mynd: ARH.
Alþýðubandalaginu er ekki spáð
auknu fylgi frá því síðast. Sumir
flokksmenn hafa við orð að Bandalag-
ið megi þakka fyrir að halda sínu.
Stefán Jónsson hefur verið kjör-
dæmakjörinn þingmaður síðan 1974,
þar áður sat hann sem varamaður.
Soffia Guðmundsdóttir hefur setið á
þingi sem varamaður.
Framsókn lítur
S-listann hýru auga
Sólness-framboðið hefur lífgað heil-
mikið upp á kosningabaráttuna og
hleypt í hana hörku. D-listamenn eru
að vonum lítið hrifnir af tiltækinu. Þeir
halda því óspart að atkvæðum Sjálf-
stæðisfiokksins að þetta sé „dautt
framboð” og hafi það markmið eitt að
fella annan mann á D-lista. Framsókn
rennir hins vegar hýru auga til Sólness-
listans (eða Sólskinsflokksins, eins og
gárungar kalla hann) enda er útlit fyrir
að klofningurinn hjálpi Framsókn að
hirða 3 menn í kjördæminu.
Fylgi S-listans er fyrst og fremst á
Akureyri. Einhvern reyting á listinn hér
og þar í kjördæminu. Frambjóðendur
listans mættu ekki á sameiginlegum
framboðsfundum austast i kjördæm-
inu á dögunum og virðast því álíta að
betur gagni að ólmast á Akureyri og á
Eyj afjarðars væðinu.
„Sólnes fær eitthvað á annað þús-
und atkvæða,” heyrist gjarnan sagt í
hópi spámanna. Ljóst virðist að S-list-
inn fái talsvert fylgi, aðallega úr röðum
sjálfstæðismanna á Akureyri. Einnig
frá óánægðum krötum og jafnvel fyrr-
verandi stuðningsmönnum Alþýðu-
bandalagsins.
Fáir aðrir en harðsviraðir stuðnings-
menn Sólness halda því fram að at-
kvæðaforði S-listans muni nægja til að
setja þingmann á vetur. Liklegast er að
fylgi Sjálfstæðisflokksins skiptist á
milli S- og D-listans. Og að Framsókn
noti tækifærið og hirði þingsæti af
sjálfstæðismönnum.
Jón G. Sólnes hefur verið þingmaður
kjördæmisins frá 1974, þar áður sat
hann sem varamaður.
Sólnes var útibússtjóri Landsbank-
ans á Akureyri og forseti bæjarstjórnar
um skeið. Og svo var hann formaður i
Kröflunefnd. -ARH
Jón G. Sólnes fær um þúsund atkvæði, segja spámenn.
DB-mynd: Einar Ólason.
> i 'V'.y
Guðmundur Bjarnason.þriðji á lista Framsóknar og hreppir þingsætí, Halldór Blöndal, annar maður á D-listanum, sér á eftír þingsætí.
DB-mynd: ARH. DB-mynd: ARH.