Dagblaðið - 30.11.1979, Blaðsíða 36

Dagblaðið - 30.11.1979, Blaðsíða 36
44 DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 1979. AUSTURLAND Oddvitar Hánefsstaða- ættar og Ásgrímssynir eiga harma að hef na —en þá er Austfjarðagoðinn hættur og verður ekki sigraður í Austurlandskjördæmi — ríki kommissaranna — stendur kosning- baráttan helzt um möguleika á uppbót- arþingsætum. í kjördæminu kjósa um 5% kjósenda í landinu. Ef 60 alþingis- mönnum væri skipt af jafnræði milli kjósenda kæmu því 3 í hlut Austur- lands. En kjördæmið á 5 þingmenn, fékk að auki Hjörleif Guttormsson í uppbót síðast og með litlum breyting- unt gæti kjördæmið náð 7 þing-. mönnum. „Austfjarðagoðinn” Lúðvik Jósepsson hefur nú horfið af „víg- vellinum” en það er meira en andi hans sem svífur yfir vötnum þar eystra cnnþá. Á hátindinum hætti hann, þá er hann hafði náð að verða I. þingmaður Austurlands og hélt með tvo lærisveina sína inn á Alþingi siðast, sem sagt þrjá þingmenn út á 36,5% atkvæða. Geri aðrir betur. Og við þetta lá gamla vigið hans Eysteins í sárum. Prinsar lágu i valnum og nú stendur til að oddvitar Hánefs- staðaættar hefni harma og allir Ás- grimssynir. En lítum á frambjóðendur. Bjarni fer ekki til Ástralíu Prófessor Bjarni Guðnason skipar efsta sæti A-listans. Hann er fæddur vinstri pólitíkus en hefur þó viða komið við í stjórnmálunum eins og ýmsir fleiri á þeim væng. Hann var formaður Frjálslynda flokksins 1963, komst á þing fyrir Samtökin 1971, sprengdi öðrum fremur stjórnina 1974 og er nú í annað sinn, innfæddur Reykvíkingur- inn, kominn í framboð fyrir krata á Austurlandi. Bjarni hefur víða sýnt það að hann er hamhleypa til verka, áður fyrr á knattspyrnuvelli og síðar í sprettum fyrir ýmsa stjórnmálalfokka. Hann tvöfaldaði fylgi A-listans eystra í fyrra — þrátt fyrir það að tveimur vikum fyrir kjördag hljóp hann af baráttuvelli og hélt til Ástralíu í fyrirlestraferð. Víða er fullyrt að Ástralíuförin hafi kostað hann uppbótarþingsæti. Bjarni nær oft vel til áheyrenda, cr málefna- legur, dregur upp skýrar myndir og glettnar af mistökum mótherjanna og nær oft á undarlega prófessorslegan hátt taki á hjartastrengjum þeirra sem hann talar til. Þar nýtur hann sjálfsagt meðfæddra kennarahæfileika. Haldi hann utan um það fylgi sem hann var búinn að ná fyrir Ástralíuförina frægu og fái góðan hluta atkvæða fyrri flokksbræðra í Samtökunum, er uppbótarsætið honum engan veginn útilokað og Bjarni er líklega eina von Austfirðinga um 7 menn á Alþingi. Tómas í heila höfn —loksins Loksins er Tómas Árnason kominn í það sæti, sem Eysteinn Jónsson ætlaði honum í Austurlandskjördæmi, þá er hann valdi hann til framboðs 1959. Það fellur í hlut þessa fulltrúa Hánefsstaðaættarinnar að rétta við fylgi Framsóknar í kjördæminu, eftir að Vilhjálmur frændi hans af sömu ætt hefur nú runnið sitt þingmannsskeið og orðið að þola og kyngja ósigrinum stóra er Framsókn féll úr forystuhlut- verkinu eystra. Tómas er harður í horn að taka, á- kveðinn og fylginn sér. Ósveigjan- legastur allra var hann í síðustu nýliða- stjórn Óla Jóh. Með ríkiskassann tóman í kjöltunni neitaði hann bæði krötum og kommum um dans þegar þeir vildu stiga hliðarspor vegna ágangs þrýstihópa. Fyrir kom að hann stóð einn gegn öllum hinum og hafði sigur. Ekki skaðar það hann eystra að hafa átt ogeigageymdan kommissar-stól hjá Framkvæmdastofnun og persónulega getur hann boðið flestu byrginn með sinn hlut í Dairy Queen fjölskyldufyrir- tækinu í bakhöndinni. Halldór inn úr kuldanum Halldór Ásgrímsson (F—2) kemst nú inn ,,úr kuldanum” eftir 15 mánaða fjarveru frá Alþingi. Halldór, sem komst 33 ára inn á þing, varð fórnar- lambið er Lúðvík vann sinn sasta sigur síðast að ná 1. sæti á Austurlandi. Eins og Tómas nýtur Halldór sterkra ættar- banda í kjördæminu og erfði nánast þingsæti vinsæls afa síns og alnafna, sem enn er rómaður vítt um Austur- land þótt látinn sé fyrir 6 árum, sat enda 24 ár á þingi. Halldór yngri hefur sýnt að hann er hæfur alþingismaður, málafylgju- maður, rökfastur og finnur auðveld- lega kjarna hvers máls, þó framsetning eða talandi þyrfti ekki að vera jafn einhæfur og svekkelsislegur og hann / **»*'»*'*«* Helgi Seljan á traust fylgi riðast á fjörðunum en hvort það nægir til 1. þingsætis eystra er mjög óvíst. alla jafna er, því það er ekki það sem að baki býr. Meðal afreka Halldórs er að ná lektorsstöðu við Háskólann þó hann hafi aldrei stundað háskólanám. Það fara ekki margir i slíka skó. Blanda úr Samvinnu- skólanum og UMFÍ Guðmundur Gislason heitir nýliðinn hjá Framsókn í 3. sæti. Úr Kjósinni mun hann ættaður, dubb- aður í Samvinnuskólanum, starfs- maður UMFÍ um tíma og giftur inn i atkvæðaætt á Stöðvarfirði. Hvort eitthvað af þessu eða allt leiddi til þess að hann varð kaupfélagsstjóri á Stöðvarfirði 1974 skal ósagt látið. En. bragð er að öllu þessu i ræðum hans á framboðsfundum. Kenningarnar eru úr Samvinnuskólanum, ræðumennskan er úr UMFÍ hreyfingunni þar sem fjöldi orða og reiprennandi tal — sem sagt hugsað upphátt — er aðalreglan. Kaupfélagsstjórastaðan, þó litt eftir- sóknarverð sé, hefur svo opnað manninn í báða enda, til sjávar og sveita svo hvergi er föstum fótum staðið. Af fyrstu kynnum við manninn á fundum verður því varla trúað að hann verði frelsari Framsóknar í fyrstu Halldór Ásgrfmsson kemst nú inn úr kuldanum i hlViuna á Albinei. Egill á Seljavöllum er án efa bezta „auka”-framboðið á Austurlandi nú og tryggír Sverri I sessi. Tómas Árnason — loksins kominn i 1. sætið sem Eysteinn ætlaði honum 1959. Og nú skal harma hefnt. tilraun. En hvað getur ekki skeð á Austfjörðum? Að Sverrir Hermannsson og Sjálf- stæðisflokkurinn geti gert eitthvert óvænt strik í reikninginn i Austurlands- kjördæmi er dregið i efa. Flokkurinn galt mikið afhroð i síðustu kosning- um þá er AA-flokkarnir sópuðu til sín atkvæðum á forsendunum fölsku „Samningana í gildi”. Það fylgistap ætti að skila sér a.m.k. að einhverju leyti til baka og Sverrir ætti vart að þurfa að hafa áhyggjur af því að missa þingfararkaupið. Vel sótt prófkjör hjá flokknum í kjördæminu boðar viss merki um aukinn styrk og vafalítið er flokknum mikill styrkur í veru Egils Jónssonar bónda að Seljavöllum i 2. sæti listans. Þar er á ferð mikill trú- maður um ágæti Sjálfstæðisflokks og talar af innlifun um hlutina, vel menntaður og góðættaður. Þó Sverrir hafi munninn fyrir neðan nefið er hann tekinn að þreytast um aldur fram. Versti löstur hans er hversu langt hann telur sig yfir aðra hafinn, vita allt betur, gera allt betur og geta allt betur en aðrir. Það gengur dável fyrir austan ef dæma má af aðsókn og því trausti sem Sverrir hlaut í prófkjöri eystra nú. En hann er lika kommissar. En dugar það á annarra flokka fólk eða óráðna fólkið? Leiðin að hjarta Austfirðinga Þó Helgi Seljan (G-l) sé traustur, þingmaður, frántúrskarandi alþýðu- bandalagsmaður qg bindindismaður í sérflok ki þá er eltki víst að hann feti; þegar i stað i fótspor Lúðvíks eystra.i Helgi hefúr'þ'ó clyggiléga fetað i fótspor „austfjarðagoðans”. Hann fann sömu brautina og Lúðvík, Vilhjálmur Hjálmarsson og fleiri að hjarta Aust- firðinga — nefnilega kennarastarfið. Hannibal og ótal aðrir kennarar í fyrri daga í ýmsum kjördæmum fundu smuguna, nenntu að „móta” alþýðuna og uppskáru þingstörf. Kennarastarfið var lykillinn. Helgi er ekki leiðtogi, bardaga- maður né persónuleiki á borð við Lúðvík. Hann er sannur þjóðernis- kommi en Moskvukommi litill. Hann er góður vinur vina sinna og á því dygga stuðningshópa í heimabyggðum og viðar. Honum gæti e.t.v. haldizt sæmilega á þegar unnu fylgi en gæti síður unnið upp dyggan hóp nýrra stuðningsmanna. Til þess er sjóndeild- arhringurinn helzt til þröngur. Spurningin er hvort Sveinn yngri Jóns- son á Egilsstöðum heldur sæti Hjörleifs. Bjarni sleppir Ástraliuförinni núna. Engin kom Bessa- staðaárvirkjun Vafasamt er að Hjörleifur Guttormsson, líffræðingurinn snyrtilegi, héldi þingsæti sinu ef hann skipaði sama sæti á G-Iistanum og síðast. En nú er Lúðvík hættur og við það er öryggi Hjörleifs tryggt. Það og ótalmargt fleira á hann Lúðvík að þakka. En svona eru örlögin. Hjörleifur vann sem ráðherra dyggilegast í sínu orkumálaráðuneyti meðan hin óvænta dýrð stóð. Plön á plön ofan voru gerð, gömlum nefndum sagt upp og hælzt yfir, en fljótt nýjar og fleiri skipaðar, verkefnin stærri og óframkvæmanlegri og áþreifanlegur árangur minni. Austurland er fjær Bessastaðaárvirkjun eftir setu Hjörleifs i stól orkuráðherra. Hjörleifur komst þó á þing með því m.a. að segja að væru réttir menn í réttum stólum yrði virkjað á Austurlandi. HANN komst i stólinn, en Bessastaðaárvirkjun er fjær raunveruleika en nokkru sinni eins og hún var upphafiega hugsuð. Svona grátt leikur lifið menn. Hjörleifur er andstæða Helga Seljans í sósíalismanum. Lærður austantjalds veit Hjörleifur allt um kartöfiuuppskeru A-Þýzkalands og svínafjölda i Grúsiu og aðra statistik. Hvort betra er fyrir frambjóðanda G- listans skal ósagt látið. En Helgi virtist koma sókndjarfari til funda í kjör- dæminu en Hjörleifur, en báðir munu þeir líklega i hendur haldast á næsta þingi, hvernig sem allt veltist Fulltrúi Egilsstaðatorf- unnar á G-lista! Hin nýja stjarna á G-listanum eystra er Sveinn Jónsson verkfræðingur á Egilsstöðum. Ef G-listinn héldi sínu frá þvi i fyrra væri þarna á ferð nýr þing- maður. Ekki er honum frýjað vits og vinsæll er hann talinn. En hissá" og undrandi eru ýmsir yfir þvi að hann skuli hafa fundizt eftir langa leit og graadskoðun. Sveinn Jónsson hinn yngií'iS EgHsjt.öðum á e.t.v. eftir að ná því sem nafna'*‘ftans*,pg afa aldrei auðnaðist að verða þingmaður Austur- lands. Sveinn jr. kom vel fram á fundum en las heldur leiðinlega ræðu nýliða, sem beindist i allar áttir, lítið hér, annað þar, nánast ekkert neins staðar. Á svoleiðis slagorðaræðu kemst enginn neitt — nema kannski inn- fæddur Austfirðingur. -A.Sl.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.