Dagblaðið - 30.11.1979, Blaðsíða 8

Dagblaðið - 30.11.1979, Blaðsíða 8
8 /S DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 1979. DB á ne ytendamarkaði Engin afsláttarkort á meðan beðið er eft ir fargjaldahækkun Allir ferðast nú á „fullu” verði með Hafnarfjarðarstræto „Manni finnst það anzi mikið að greiða 280 kr. fyrir hvem farmiða fyrir skólakrakka með Landleiðum til Reykjavíkur. Þeir eru hættir að selja afsláttarkortin á meðan þeir bíða eftir því að fá að hækka far- gjaldið,” sagði argur faðir í Garðabæ sem á tvö börn sem sækja menntaskóla í Reykjavik. Beðið eftir hækkun Við höfðum samband við Land- leiðir h/f, þar sem Hróbjartur Jóns- son varð fyrir svörum. „Við kláruðum kortin á gamla verðinu fyrir nokkru. Þar sem samþykkt var hækkun til okkar í september en stendur á samþykki ríkisstjórnarinnar, bíðum við eftir þeim úrskuiði áður en við látum prenta ný kort,” sagði Hróbjartur. Eitt lár með Landleiðum frá Hafnarfirði til Reykjavíkur kostar núna 370 kr. en 25 miða kort hafa verið seld með 20—25% afslætti. Sagði Hróbjartur að kortin hefðu jafnan verið seld í vögnunum. „Við höfum raunverulega ekki fengið nema eina hækkuná árinu Var það í júní sl. Hljóta allir að sja að dæmið gengur engan veginn upp með því móti. Við fengum að vísu hækkun á fargjöldum í febrúar, en það fór aðeins til þess að bæta upp verðhækkanir á árinu 1978.” Hróbjartur sagðist ekki hafa á reiðum höndum hvað fargjaldið þyrfti raunverulega að kosta til þess að vagnarnir stæðu undir sér. 60% af útgjöldum Landleiða eru laun og launatengd gjöld, þar við bætast olíuhækkanir og viðbótarþunga- skattur. Farþega- fjöldi stendur ístað Farþegafjöldi með Landleiðum er nálægt einni milljón á ári og hefur sú tala staðið í stað á undanförnum árum. Nokkru færri farþegar hafa þó verið með vögnunum undanfarinn mánuð en Hróbjartur sagði að það væri jafnan svo að farþegatalan lækkaði eitthvað í nóvember og desember miðað við september og. október. -A.Bj. Skreytiö svalirnar meö gamaldags * enskum luktum frá Sjónvali. ’i 10 luktir í hverri seríu. Seríurnar eru vatnsþéttar og öruggar í öllum veörum, enda samþykktar af Rafmagnseftirliti ríkisins. Óþarfi er aö nota litaöar perur, þar sem luktirnar eru sjálfar í litum. Verð afieins kr. 22.650 - m/perum Vesturgötu 11 Reykjavík sími 22600 Flórídaferð og heimilistæki fyrir beztu uppskriftir Hverja dreymir ekki um Flórída nú í skammdeginu? Þú gætir unnið ferð til Flórída ef þú sendir okkur inn góða uppskrift sem þú átt í fórum þínum. í dag er síðasta tækifærið að senda inn seðilinn og strax eftir helgina verður dæmt um beztu uppskriftina. Við munum þó bíða með að dæma þangað til seðlar utan af landi hafa borizt til okkar. Látið nú ekki happ úr hendi sleppa og sendið okkur góða og ódýra uppskrift. Önnur og þriðju verðlaun eru ekki heldur af verri endanum þvi þau eru heimilistæki. -ELA. Flórida er án efa einn af draumastöðum okkar íslendinga. Sú sem sendir okkur beztu uppskriftina á eftir að ganga um þessa fallegu og skemmtilegu götu i Disney World innan tfðar þar sem allt iðar i fjölbreyttu mannlifi. Reglur samkeppninnar Eftirfarandi reglur hafa verið settar í uppskriftasamkeppni Landssambands bakarameistara og Dagblaðsins: 1. Þátttaka er öllum heimil nema starfandi bökurum. 2. Uppskriftunum skal skilað til Dagblaðsins fyrir 1. desember á meðfylgjandi eyðublaði. 3. Hverjum þátttakanda er einungis heimilt að senda eina uppskrift. 4. Tekið verður tillit til hráefniskostnaðar enda er verið að \ leita eftir ódýrum uppskriftum. 5. Landssamband bakarameistara áskilur sér ráðstöfunarrétt yfir þeim uppskriftum, sem berast. Uppskriftasamkeppni Landssambands bakarameistara og Dagbtaðsins. Nafn: _ Heimili: Sími: _ Nafn uppskriftar: Magn:_____________ Hráefni grömm Verðpr.ein. Samtals Samtaís: Bökunarhiti:. Bökunartími: Skýringar: _ Vi

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.