Dagblaðið - 30.11.1979, Blaðsíða 40
frfálst, éháð dagblað
FÖSTUDAGUR 30. NÓV. 1979.
Lögregluþjónar i spekingslegum
steliingum við niðurbrotinn staurinn.
DB-mynd S.
Sneru niður
Ijósastaur
Á fyrsta tímanum í nótt var lög-
reglan kvödd i Breiðholtið þar sem
hópur unglinga hafði snúiðniður ljósa-
staur af minni gerðinni. Er talið að
unglingar hafi klifrað í staurinn og
vaggað sér til unz staurinn lét undan.
Enginn vildi viðurkenna verknaðinn
en málið var síðan flutt niður á lög-
reglustöð en þangað var farið með full-
hlaðinn lögreglubíl af unglingum, sem
fóru um hverfið í ærslahug. Var af
staurnum slysahætta, því á honum var
straumur og ljós, jafnvel eftir brotið.
-A.St.
Búvöruhækk-
unvarfrestað
Baráttan gegn hungurvof unni:
Veitiö Rauöa krossinum alla aöstoö
—segir Samúel Neak f rá Kampútseu, verkamaður hjá Bæjarútgerðinni
,,Ég vil þakka Rauða krossinum,
Hjálparstofnun kirkjunnar og ríkis-
stjórninni fyrir aðstoðina við sveltandi
og deyjandi fólk heima í Kampútseu.
Ég á aðeins tárin til að sýna þakklæti
mitt. Ef íslendingar vilja leggja meira
af mörkum þá er réttast að veita Rauða
krossinum og Hjálparstofnun
kirkjunnár-ajla aðstoð. Þeir aðilar vita
bezt hvað geraskal.”
Samúel Van Thorn Neak Than er
verkamaður hjá Bæjarútgerð Reykja-
víkur og kom til islands fyrst fyrir 9
árum. Hann er sonur land-
búnaðarráðherrans í stjórn Shianouks
prins , sem steypt var af stóli i Kampút-
seu 1968. Þá var Samúel flugmaður í
flugher landsins, en fór úr landi og
hefur ekki komið heim síðan. Síðast
frétti hann af föður sínum 1972. Þá var
hann i fangelsi Lon Nol-stjórnarinnar.
Síðan hefur ekkert spurzt tii fjöl-
skyldunnar.
Shianouk prins hefur dvalið I
Peking undanfarið, en kom til Parísar
sl. sunnudag. Samúel er á förum til
Parísar til fundar við prinsinn og fleiri
landsmenn sína. Þeir ætla að ræða á-
standið heima fyrir, hungursneyðina og
baráttuna gegn innrásarherjum Víet-
nams. ,,Ef þeir vilja að ég sinni
hjálparstarfinu á Norðurlöndum, þá
verð ég hér áfram. Ef þeir vilja að ég
fari til Kampútseu, þá fer ég,” sagði
hann.
„Kvikmyndin í sjónvarpinu var á-
fall fyrir mig og aðra áhorfendur. En
þar sást aðeins hluti af því sem málið
snýst um. Meira væri hægt aðsegja um
skálmöldina sem ríkti í tíð Pol Pot-,'
stjórnarinnar. Þá var fólkið drepið
miskunnarlaust, sérstaklega mennta-
fólk.”
-ARH.
Ríkisstjórnin samþykkti á fundi
sínum í gær að búvöruhækkun tæki
ekki gildi 1. desember. Bragi Sigurjóns-
son landbúnaðarráðherra mun byrja
viðræður við fulltrúa bændasam-
takanna umcinstaka liði verðlagsgrund-
vallar landbúnaðarafurða.
Ekki var tekin afstaða til tillögu
Magnúsar H. Magnússonar félags-
málaráðherra þess efnis að búvörur
hækki um þessar mundir aðeins sem
svarar því að „laun bænda” hækki
eins og laun annarra, eða um 13,2%.
Ef farið væri að þeirri tillögu yrði
hækkun búvara eitthvað nálægt 7%.
Sex manna nefndin, sem fjallar um bú-
vöruverðið, hefur lagt til að verðið
hækki um 13,92 prósent.
-HH.
Þjófar herða
sókn að
fyrirtækjum
Innbrotafaraldrinum linnir ekki. í
nótt var farið m.a. í niðursuðuverk-
smiðju Ora við Kársnesbraut. Þar var
mikið brotið og bramlað og öllu rótað
til, sýnilega í peningaleit. En peningana
var ekki að finna á staðnum utan
skiptimyntar Hún hvarf.
Þá var farið i a.m.k. tvö iðnfyrir-
tæki i Hafnarfirði, trésmiðaverkstæði í
Helluhrauni og lakkrísgerð í Dals-
hrauni. Málin eru í rannsókn.
Sýnilegt er að varúðar er nú þörf
vegna aukinnar ásóknar þjófa.
-A.St.
„Ég vil segja fólkinu á lslandi frá hörmungunum i Kampútseu, ef það mætti verða til hjálpar,” sagði Samúel Van Thorn Neak Than i samtali við
Hann hefur ekki fyrr viljað tala opinberlega um ástandið I Kampútseu.
Dagblaðið i gærkvöldi.
-DB-mynd: ARH.
Fjármálaráöherra dæmdur fyrir aðgerðir lögreglunnar:
60 þúsund króna bætur
fyrir siö tíma tugthús
Fyrir nokkru féll í borgardómi
Reykjavíkur dómur'sem Halldór Þ.
Briem höfðaði gegn fjármála-
ráðherra f.h. ríkissjóðs vegna frelsis-
skerðingar hans af hálfu lögreglunn-
ar. Málið á sér rætur í allflóknu
deilumáli um foreldrarétt fyrir syni
Halldórs. Kæran í þessu tilviki reis út
af handtöku Halldórs á húströppum í
Mávahlíð 37. Þar átti hann orða-
skipti við konu er þar réð húsum og
geymdi son Halldórs innan dyra, en
kallaði i lögreglu er Halldór vitjaði
sonarsíns.
í áliti dómsins segir, að eftir að
Halldór hafi verið fjarlægður af
tröppunum í Mávahlíðinni hafi hon-
um verið haldið á annan tima í
einangrunarklefa og bannað að hafa
simasamband við aðila utan fang-
elsisins. Taldi dómurinn ekki ástæðu
til svo harkalegra aðgerða af hálfu
Iögreglunnar.
Dómur áleit að frelsissvipting
Halldórs hefði staðið í a.m.k. 7
klukkustundir. Ósannað væri að þörf
hefði verið á svo langri frelsis-
sviptingu. Taldi dómurinn að
stefnandi ætti rétt á bótum sam-
kvæmt 151 gr. laga nr. 74/1974 sbr.
154gr. sömu laga.
Tekið er fram að við ákvörðun
bóta hafi verið tekið tillit til aðdrag-
anda handtökunnar en í dómsorðum
segir að fjármálaráðherra f.h. ríkis-
sjóðs skuli greiða Halldóri Þ. Briem
kr. 60.000.- ásamt tilgreindum
vöxtum í ýmsum áföngum frá 1. apríl
1976 til greiðsludags.
Hallór fékk gjafsókn í málinu og
segir í dómsorði að allur kostnaður
skuli greiddur úr ríkissjóði, þar á
meðal málflutningslaun lögmanns
stefnanda, Þorvaldar Lúðvíkssonar
hrl.,kr. 90.000.-kr.
Báðir aðilar áfrýjuðu dómnum og
bíður hann nú í afgreiðsluröð Hæsta-
réttar. -A.St.
íathugun íbönkunum:
ÞRIÐJUNGS LENG-
ING LÁNSTÍMA
Bankarnir eru með í athugun til-
mæli viðskiptaráðherar um lengingu
lánstíma til að létta greiðslubyrði.
„Viðmiðun í þessu sambandi gæti
verið um það bil þriðjungs lenging
lánstima á algengustu lánum í útlán-
um viðskiptabankanna, vitaskuld
eftir nánara samkomulagi við ein-
staka viðskiptamenn,” segir í bréfi
ráðherra til viðskiptabankanna, sem
var sent í tengslum við vaxtahækkun,
sem verður 1. des.
Seðlabankinn athugar ennfremur
möguleika á að verða við tilmælum
ráðherra um að innlánsstofnanir gefi
viðskiptavinum sínum kost á að fá
vexti af innstæðum greidda í byrjun
hvers mánaðar og vaxtakjörin verði
miðuð við, að ársávöxtun verði hin
sama, hvort sem greitt er árlega eða
mánaðarlega.
Viðskiptaráðuneytið hefur einnig
beint því til viðskiptabankanna, að
hlutfall þeirra lána sem þeir bæta við
endurkaupanleg lán út á útflutnings-
afurðir verði rýmkað um sem svarar
2% af endurkaupanlegu lánunum og
jafnframt að þau fylgi jafnan upp-
færðu andvirði endurkaupanlegu
lánanna.
Eftir talsvert hik í ríkisstjórninni
varð það ofan á á fundi hennar í gær
að vextir skyldu hækka 1. desember í
vextiraf
innstæðum
um
mánaðamót
vaxtahækkun
l.des.
samræmi við tillögur bankastjórnar
Seðlabankans, að því tilskildu að
greiðslubyrði yrði létt með lengingu
lána. Almenningi skyldu kynntir
rækilega þeir möguleikar sem boðið
væri upp á. Viðskiptabankarnir hafa
tekið framangreindum tilmælum já-
kvætt.
Vextir af sparifé og öðrum innlán-
um hækka 1. des. um 4% en útláns-
vextir um 2,5 prósent. -HH