Dagblaðið - 30.11.1979, Blaðsíða 33

Dagblaðið - 30.11.1979, Blaðsíða 33
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 1979. 41 ÓLAFUR | GEIRSSONj VESTFIRÐIR Kratar ganga samein- aðir til kosninga Hrafnscyri viö Arnarfjörð er fæðingarstaður Jóns Sigurðssonar forseta. Stundum hafa Vestfirðingar safnazt þar saman til hátiða en það mun þó fátiðara hin siðari ár þar sem Hrafnseyri er ekki I alfaraleið. „Þessi úrslit eins og þau liggja fyrir sýna óumdeilanlega, að fólk er orðið leitt á því kerfi, sem við höfum búið við,” sagði Karvel Pálmason, er DB ræddi við hann kl. rúmlega 6 að morgni hins 26. júní 1978. Þá benti allt til þess samkvæmt talningu atkvæða, að hann hefði náð því að verða kjördæmakosinn þingmaður í Vestfjarðakjördæmi. Síðar þennan sama dag lauk talningu. Reyndist Karvel ekki hafa náð kjöri, enda þótt listi hans fengi 776 atkvæði eða 14.6% eða aðeins 0,3% minna en annar maður Sjálf- stæðisflokks. Karvel Pálmason var því kominn í þann hóp fallinna frambjóðenda og fyrrum þingmanna, sem DB ræddi við þennan þriðjudag um hvað þeir hygðust leggja fyrir sig á næstunni. í þessum kosningum í fyrra féllu fleiri en Karvel af þeim sem í kjöri voru á Vestfjörðum. Voru það þau- Gunnlaugur Finnsson (B) og Sigurlaug Bjarnadóttir (D). Til gamans má geta þess að það urðu fjórir þingmenn landskjörnir með lægra atkvæðahlutfall i sínum kjördæmum en Karvel Pálmason hlaut á Vestfjörðum. Þeir voru Bragi Níelsson (A) í Vesturlandi með 11,4%, Jósef H. Þorgeirsson (D) einnig á Vesturlandi með 12,7%, Hjörleifur Guttormsson (G) Austur- landi 12,2% og Finnur Torfi Stefáns- son (A) Norðurlandi vestra með 13,6%. Karvel í sátt við kerfið Nú hafa málin snúizt þannig að Karvel Pálmason hefur — í það minnsta að einhverju leyti — samið við kerfið, sem hann sagði að fólk væri orðið leitt á. Hann gengur nú fram til kosninga með Alþýðuflokki og skipar þar annað sæti á lista flokksins á Vestfjörðum á eftir Sighvati Björgvinssyni^ýium helzta andstæðingi sínum fyrrum. Sé haldið áfram að leika sér að fyrri kosningatölum þá má segja að sam- einaðir hefðu þeir Sighvatur og Karvel báðir komist að sem kjör- dæmakjörnir i síðustu kosningum. Sighvatur þá sem fyrsti þingmaður Vestfirðinga en Karvel hefði fellt Karvel Pálmason, sem naumlega missti af fimmta sætinu á Vestfjöróum I sfðustu alþingiskosningum, skipar nú annað sæti á lista krata. annan mann Sjálfstæðisflokksins, Þorvald Garðar með einu atkvæði. Sennilegt er að einmitt Alþýðu- flokkur og Sjálfstæðisflokkur verði aðalkeppinautarnir um fimmta þing- mann Vestfirðinga. Ekki er þó hægt að reikna með því að allt fyrra fylgi Karvels fvlai honum yfir i Alþýðu- flokkinn. Ilins vegar er mögulegt að við sameininguna hafi ganilir stuðningsmenn krata fyllzt nýrri von og komi nú til liðs við flokkinn aftur. Guðvarður Kjartansson fjórði maður á lista Alþýðubandalags og búsettur á Flateyri sá í það minnsta ástæðu til þess á kosningafundum að skora á Vestfirðinga að verða nú ekki eina kjördæmið sem yrði til þess að stækka hlut Alþýðuflokks af at- kvæðakökunni við komandi kosningar. Sighvatur Björgvinsson „glans- aði” í prófkjöri krata og stuðnings- menn hans vestra segja hann vaxandi mann. Á fundum lagði Sighvatur áherzlu á að jafnaðarmenn á Vest- fjörðum hefðu nú aftur gengið í sömu sæng. Sameiningartákn þeirra væri „gamla kempan Hannibal”. Sjálfstæðisflokkurinn tapaði hvorki meira né minna en 216 at- kvæðum í kosningunum í fyrra í Vestfjarðakjördæmi. Flokknum tókst þó að halda tveim mönnum kjördæmakjörnum, naumlega þó. Sigurlaug Bjarnadóttir frá Vigur mátti aftur á móti búa við það að falla af skrá yfir landskjörna þing- menn. Matthías sennilega sterkastur Nú eins og i kosningunum 1978 er Matthías Bjarnason sennilega sterk- asti frambjóðandinn í kjördæminu. Seta hans í stóli sjávarútvegsráðherra hafði síður en svo slæm áhrif á-Veg' hans fyrir veytan. Kjartan og Þorvaldur Garðar lögðust í f erðalög Talið er áð Þorvaldur Garðar Kristjánsson, annar maður á Sjálf- stæðislistanum, hafi aldrei fyrr lagt jafn mikla vinnu í kosningaundir- búninginn og nú. Að sögn munu þeir ekki vera margir bæirnir í kjör- dæminu þar sem hann hefur ekki komið og rætt við kjósendur. Kjartan Ólafsson fyrsti maður Alþýðubandalagsins er einnig sagður hafa verið drjúgur í ferðalögum og oftsinnis fylgt Þorvaldi Garðari eins og skugginn eða verið eins og sending á undan honum víða um firði. Kratar og Sjálfstæðið berjast um fimmta manninn Kjartani standa fáir á sporði t persónuþekkingu og frændsemis- og venzlaböndum. Hann er öruggur með kosningu og bætir enn við fylgi Jijjt að sögn kunnugra. Kjartan Ólafs- json er fæddur og uppalinn á Súgandafirði fram til unglingaldurs. Þar er hann vel látinn þó svo að ekki hijóti hann kjörfylgi alfra sinna ætt- menna á staðnum. Ólafur Þórðarson (B) skólastjóri að Reykholti í Borgarfirði var til skamms tima skólastjóri á Súganda- firði, oddviti hreppsins og framá- maður á staðnum. Þar er hann aftur á móti umdeildur mjög og athyglis- vert var að hann sá ekki ástæðu til að mæta á sameiginlegum fundi fram- bjóðenda á Súgandafirði þar sem starfsvettvangur hans var þó um langt árabil. Ólafur felldi Gunnlaug en Steingrímur ber þungann Flokksmenn Ólafs, Framsóknar- menn, tóku hann þó fram yfir Gunnlaug Finnsson bónda að Hvilft í önundarfirði og skipuðu honum í annað sæti listans. Það varð þó ekki nemá með oaumWclúm eftir Sleingrímur Hermannsson þykir minna á föður sinn, þegar honum lekst scm bezt upp, og framsóknarmenn á Vest- fjörðum segja hann vaxandi mann. margítrekaðar' kosningar þeirra á milli. Auðvitað er það Steingrimur Hermannsson, nýkjörinn formaður Framsóknarflokksins, sem ber hita og þunga baráttunnar, sem efsti maður listans. Sjálfir segja fram- sóknarmenn vestra að ábyrg af- staða flokksins i þjóðmálum að úndanförnu hafi létt þeim róðurinn í baráttunni. Um ábyrgðina eru vitan- lega skiptar skoðanir en sjálfur siendur Steingrímur traustum fótum i öruggu fylgi. Þykir vaxandi maður og jafnvel minna á Hermann föður sinn, þegar honum tekst bezt upp á Ströndum. -BS/ÓG. Sighvatur Björgvinsson var langefstur 1 prófkjöri Alþýðufiokks og skipar efsta sæti hjá flokknum. Guðvarður Kjartanss-m fjórði maður á lista Alþýðubandalagsins á Vestfjörðum hvatti fólk til að varast að kjördæmið yrði það eina þar sem k úar bættu við sig fýlgi. Kjartan Ólafsson, efsti maður listans, hefur gert víðreist um kjördæmið eins og Þorvaldur Garðar sjálfstæðismaður i öðru sæti. DB-mynd ÓG. Sá frambjóðandi á Vestfjörðum, sem þar þykir hafa sterkasta aðstöðu einn sér, er Matthfas Bjarnason, efsti maður á lista Sjálfstæðisflokksins. Frammistaða hans f embætti sjávarútvegsráðberra varð honum einnig - til framdráttar heima I héraði.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.