Dagblaðið - 30.11.1979, Blaðsíða 1
5. ÁRG. - FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 1979 - 266. TBL.
RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI IL—AÐALSÍMI 27022.
Ríkissjóður2,3 milljaröa ip/ús ígær:
12—1300 milljóna auka-
fjárveiting til launagreiðslna
—allar launagreiðslur til ríkisstarfsmanna með eélilegum hætti um mánaðamótin
„Þrátt fyrir allt er staða ríkis-
sjóðs nú í nóvember samkvæmt
reikningum betri en ég minnist í mörg
ár,” sagði Höskuldur Jónsson,
ráðuneytisstjóri í fjármála-
ráðuneytinu, í viðtali við DB í
morgun. „Þar með er ég ekki að
segja að fjárhagsvandi rikissjóðs sé
úr sögunni,” sagði Höskuldur.
Staða hlaupareikniga við Seðla-
bankinn var 1.9 milljarðar í plús í
fyrradag. í gær var hún jákvæð um
2.3 milljarða króna. „Við munum nú
um mánaðamótin hreinsa rikissjóð af
öllum lausaskuldum, sem eru
mánaðargamlar eða eldri,” sagði
ráðuneytisstjórinn.
Þær stofnanir ríkisins, sem eru
háðar verðlagsákvæðum, svo sem
Þjóðleikhúsið, eru illa settar. í
Þjóðleikhúsinu var í gær óttazt að
ekki yrði unnt að greiða laun þar sem
reksturinn væri kominn talsvert fram
úr áætlun. Starfsmannafélagið hefur
boðað til fundar þar kl. 2 í dag. Var
menntamálaráðherra boðið að koma
áfundinn.
Samkvæmt upplýsingum, sem
blaðið telur öruggar, hefur fjármála-
ráðuneytið að tilmælum mennta-
málaráðherra, Vilmundar Gylfa-
sonar, veitt aukafjárveitingu, 12—13
hundruð milljónir króna, til þess að
unnt verði að greiða öllu starfsfólki
laun nú um mánaðamótin.
„Við erum að allra mati, sem hér
um fjalla, búnir að gera þær
ráðstafanir sem ætlazt er til af
okkur,” sagði Davíð Á. Gunnarsson,
forstjóri ríkisspítalanna. Hann bætti
við: „Fjármálaráðherra leysti okkar
fjárhagsvanda, a.m.k. fram yfir ára-
mót. Hér standa því ekki fyrir dyrum
nein fjárhagsvandamál, hvorki
launagreiðslur né neinar uppsagnir á
starfsfólki, eins og heyrzt hefur,”
sagði Davíð.
-BS.
„Háhymingarnir eru
meö kalsár ” segja
Greenpeace-menn:
„Endemis
fjarstæða”
— segir forstjóri
Sædýrasafnsins
Alan Thornton (lengst til hægri) og
myndatökumenn hans að störfum í
Ssedýrasafninu I gær.
DB-mynd Hörður.
„Það eru hvitir blettir á 5 af 6 dýr-
um, sem ég tel augljóst að séu kalsár.
Ég tel aö háhyrningarnir séu illa
haldnir,” sagði Allan Thornton, tals-
maður Greenpeace-samtakanna, í
samtali við DB i morgun um háhyrn-
inganasem núeru í Sædýrasafninu.
Sem kunnugt er drápust tveir há-
hyrningar i Sædýrasafninu í fyrra-
vetur. Sérfræðingar voru sammála
um að frostið hefði lcitt til dauða
dýranna þá.
„Þetta er endemis fjarstæða,”
sagði Jón Kr. Gunnarsson, forstjóri
Sædýrasafnsins, í samtali við'DB í
morgun en þá var verið að flytja í
burt fjóra afsex háhyrningum og áttu
þeir að fara til Bandarikjanna.
„Ef Thornton þekkir eitthvað inn
á háhyrninga þá á hann aö vita, að
það er jafnan hvitur skuggi aftan við
bakuggann á þeim. Það hafa þrír
dýralæknar frá jafnmörgum löndum
fylgzt með dýrunum og staðfesta að
ekkert ami að þeim. Sjór er heldur
ekki orðinn það kaldur ennþá. Það
þarf frost til þess að mynd kaisár.
Þetta sýnir aðeins hvað þessir Green-
peace-menn vita litið um hvað þeir
eru að tala. Ég held að þeir hljóti að
vera eitthvað kalnir á sálinni,” sagði
Jón Kr. Gunnarsson að lokum.
-GAJ
H Ellri Tvrfadóttir for-
E, eiginkona Guömundar
fuíki I (fósmyndarann næst
ýn dóttir hans, Sólveig,
viö hlið hans.
-DB-mynd: Hörður.
„LEIFTURSÓKNIHALDSINS
11 ■■ r
AF TOFRASPROTA ALFKONU
— sagði Guðmundur Jaki í ræðu sinni í gær
„Það er líkast því að álfkona hafi
birzt Sjálfstæðisflokknum í draumi,
lostið hann töfrasprota og þá hafi
furðusamsetningurinn — Leiftur-
sókn gegn verðbólgunni — orðið
til,” sagði Guðmundur J.
Guðmundsson, annar maður á lista
Alþýðubandalagsins í gærkvöldi á
baráttufundi þess í Háskólabíói.
Hvert sæti var setið í bíóinu og fjöldi
manns stóð í göngum. Fundarmann
hafa ekki verið færri en þrettán
hundruð.
Dagskráin var í hefðbundnu
formi. Stjórnmálamenn og listamenn
skiptust á að flytja efni sitt.
Mikill fjöldi var þegar kominn í
anddyri Háskólabíós áður en farið
var að hleypa inn í salinn. Voru dyr
hans opnaðar í þann mund sem
kosningastjóri Alþýðubandalagsins í
Reykjvík gekk inn hlaðinn gulum
örkum þar sem á var prentaður
alþjóðlegur baráttusöngur verka-
lýðsins, Internationalinn, í þýðingu
Sveinbjarnar Sigurjónssonar.
Jón Múli Árnason fundarstjóri
hvatti bandalagsmenn til dáða.
Minnti þá á að ekki væru nema
nokkrir mánuðir síðan „íhaldið”
hefði verið lagt að velli í Reykjavik.
„Okkur Alþýðubandalagsmenn
munar ekkert um að afgreiða íhaldið
aftur í kosningunum nú með einni
vinstri handar sveiflu. Okkur munar
heldur ekkert um að afgreiða fylgifé
þeirra (væntanlega framsókn og
krata) i leiðinni,” sagði Jón Múli og
fundarmenn tóku undir með fögn-
uði.
Svo lauk þessu með því að allir
kyrjuðu „Nallann” af mikilli innlif-
un.
-ÓG.
Kýlin vegna
sóðaskapar
um borð í
skipinu Eddu
— Heilbrigiiseftirlit
Reykjavíkur
sótthreinsaði skipið
háttoglágt
„Heilbrigðiseftirlit Reykjavikur fór
um borð í flutningaskipið Eddu og
var allt sótthreinsað, bæði vistar-
verur, eldhús og matargeymslur,”
sagði Hróbjartur Lúðvtksson, starfs-
maður heilbrigðiseftirlitsins. Eins og
DB greindi frá í fyrradag fengu há-
setar igerðir í sár og kýli víða um
likamann og töldu það stafa af
sóðaskapum borð.
DB ræddi við einn skipverja á
Eddu í morgun, sem leitaði sér
lækninga vegna kýlanna. Sagði hann
að læknirinn hefði nú tjáð honum að
kýlin hefðu stafað af sýklum um
borð, sem hefðu borizt í sárin.
„Eftir að ég hafði fengið
meindýraeyði til þess að sótthreinsa
skipið lét ég hreinsa allar íbúðir,”
sagði Hróbjartur Lúðviksson. „Þeg:
ar skipið lét úr höfn átti aðeins eftir
að gera við eitt klósett og ég tók
loforð af skipstjóranum um að það
yrðisett ístand.
Það er óhætt að segja að það var
anzi illa gengið um, yfirleitt. Ef yfir-
menn halda undirmönnum ekki að
hreinlæti getur farið svo. Hins vegar
vissi ég ekki um ígerðir á
skipverjunum fyrr en ég las það i
DB. Sotthreinsunin fór fram út af
kakkalökkum og öðrum meindýrum
og fékk Skipið vottorð unt sótt-
hreinsunina, enda skilst mér að það
hafi átt að fara í matarflutninga.
Það er ekki nógu gott að búa í
þessu. Það er mín skoðun að hrein-
læti um borð í skipum fari alveg eftir
yfirmönnum þess. Ef þeir eru
passasamir, þá halda þeir skipinu
hreinu. Það er mín skoðun, að á-
standið hafi ekki verið af slælegu
viðhaldi útgerðarinnar, nema hvað
varðar ástandið á klósettinu, heldur
af miklum sóðaskap.”
-JH.
BIAÐW
er48síðurídag