Dagblaðið - 30.11.1979, Blaðsíða 30
38
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 1979.
Veðrið
Minnkandi norAaustan átt fram
eftír degi. Slydda eða snjókoma fyrir
norðan. Bjart veður verður sunnan-
lands en'gengur í vaxandi suðaustan
átt og þykknar upp með rigningu
vestanlands ( fyrramálið. Heldur
hlýnar (veðri þegar l(ða fer á daginn.
Veður kl. 6 ( morgun: Reykjavlt
norðnorðaustan 4, léttskýjað og 1
stíg, Gufuskálar norðaustan 5, hálf-
skýjað og 1 stíg, Gaharviti
norðaustan 4, frostrigning á siðustu
klukkustund og 0 stíg, Akureyri
sunnan 2, slydduól og 1 stíg, Raufar-
höfn norðaustan 4, snjókoma og 1
stíg, Dalatangi norðan 1, léttskýjað
og 0 stíg, Höfn ( Homafirði norðnorð-
vostan 3, léttskýjað og 0 stíg, og Stór-
höfði ( Vestmannaeyjum norönorð-
vostan 6, léttskýjað og -1 stíg.
Þórshöfn I Færeyjum veðurskeyti
vantar, Kaupmannahöfn rigning og 6
stíg, Osló skýjað og 3 stíg,
Stokkhólmur léttskýjað og 4 stíg,
London rigning og 11 stíg, Hamborg
skýjað og 7 stig, Paris þokumóða og
1 stíg, Madrld heiðrfct og -2 stíg,
MaHorka léttskýjað og 2 stíg, Lissa-
bon þokumóða og 8 stíg og New
York heiðrikt og -1 stíg.
AndSát
Guðrún Oddsdóllir lézt sunnudaginn
11. nóv. Hún var fædd í Nýjabæ 28.
ágúst 1888, dóttir Odds Bjarnasonar og
Elínborgar Sverrisdóttur frá Króki í
Meðallandi. Guðrúin var gift Gísla
Sigurðssyni frá Hellum í Mýrdal. Gísli
lézt 13. jan. 1943. Guðrún og gísli
eignuðust einn son, Þorstein, sem býr í
Nýjabæ. Guðrún var jarðsungin frá
Prestbakkakirkju á Síðu laugardaginn
17. nóv. sl.
Helga Jóhannesdóttir lézt þriðju-
daginn 13. nóv. Hún var fædd 26. júlí
1898 í Syðri-Villingadal í Eyjafirði.
Helga var dóttir Jóhannessonar Rand-
verssonar frá Jökli í Eyjafirði og Ólínu
Ragnheiðar Jónsdótur frá Hólum í
Eyjafirði. Árið 1905 lézt móðir Helgu,
fór hún þá í lóstur til Sigríðar móður-
systur sinnar að Skálds'öðum í Eyja-
firði. Helgadvaldi þar í tvö ár. Síðan
fer hún til vandalausra hjóna að Kola-
grímsstöðum i Eyjafirði, en þaðan fer
hún til Jóhannesar bróður síns og
konu hans Sæunnat Steinsdóttur árið
1909. Hjá þeim var hún til ársins 1915
er hún flutti til Geirlaugar systur sinnar
og Jóns Þ. Björnssonar á Sauðárkróki.
Helga giftist Þorvaldi Þorvaldssyni
árið 1919. Hann var sonur hjónanna
Þorvalds Gunnarssonar og Rannveigar
Þorvaldsdóttur. Þorvaldur maður
Helgu lézt árið 1930. Þau eignuðust sjö
börn. Eftir lát manns síns vann Helga
við ýmis störf, m.a. við mötuneyti
sjómanna á Siglufirði, og var ráðskona
hjá vega- og brúargerðarmönnum á
sumrin, einnig var Helga ráðskona við
mötuneyti sjómanna á Suðurnesjum.
Síðustu áratugina vann Helga hjá
Fiskiðju Sauðárkróks. Helga var
jarðsungin frá Sauðárkrókskirkju laug-
ardaginn 24. nóv. sl.
Guðrún Sigurhjartardóttir lézt þriðju-
daginn 27. nóv. Hún verður jarðsungin
frá Lágafellskirkju laugardaginn 1.
des. kl. 11 f.h.
Halldóra Sigurðardóttir lézt að
Hrafnistu þriðjudaginn 20. nóv. Útför
hennar hefur farið fram.
Ragnheiður Árnadóttir, Hrannarstíg 3
Reykjavík, lézt í Södersjúkrahúsinu í
Stokkhólmi þriðjudaginn 20. nóv.
EMavfi) ti sðlu
Til sðlu Rafha eldavél (kubbur). Verð 90.000 kr.
Sími 44043.
Illlllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll
Ökukennsla
Ökukennsla-æfingatímar.
Kenni á nýjan Volvo árg. ’80. Lærið þar
sem öryggið er mest og kennslan bezt.
Hagstætt verð og greiðslukjör. Hringdu
í sima 40694 og þú byrjar strax. öku-
kennsla Gunnars Jónassonar.
ökukennsla — æflngatimar —
hæfnisvottorð.
Engir lágmarkstímar. Nemendur greiða
aðeins tekna tima. ökuskóli og öll próf
gögn ef óskað er. Jóhann G Guðjóns
son, simar 21098 og 17384.
ökukennsla-æfingatimar.
Kenni á nýjan Mazda 323 station.
ökuskóli og prófgögn ef óskað er. Guð-
mundur Einarsson ökukennari, simi
71639.______________________________
Ökukennsla-Æfingatimar.
Get nú aftur bætt við nemendum, kenni
á hinn vinsæla Mazda 626 árg. ’80,
númer R—306. Nemendur greiða
aðeins tekna tíma, greiðslukjör ef óskað
er. Kristján Sigurðsson, simi 24158.
Ökukennsla — æfingatimar
— bifhjólapróf. _ _
Tíenni á nýjan Audi. Nemendur greiða
'aðeins tekna tima. Nemendur geta
.byrjað strax. ökuskóli og öll prófgögn ef!
^óskaðer. Magnús Helgason, simi 66660.
Ökukennsla
Kenni á Datsun árg. ’78. Pantið reynslu-
tíma og 1 þeim tima kynni ég ykkur
námsefniö og þær nýjungar og þau kjör
sem ég hef upp á að bjóða. Ath. að mjög
hagstætt er ef tveir til þrír panta saman.
P.S.: Allar kennslubækur fáið þið
ókeypis. Sigurður Gislason, simi 75224.
ökukennsla — æfingatínar. ’
Kenni akstur og meðferð oifreiða, kenni
á Mazda 323 árg. ’78. Ckuskóli og öll
prófgögn fyrir bá sem þess óska. Helgi
K. Sessiliusson.^ími 81349.
°ðkukennsla — æfingatlmar.
Kenni á Mazda 626 árg. 79, engi".
skyldutimar, nemendur greiði aðeins
tekna tíma. ökuskóli ef óskað er. Gunn-
ar Jónasson, simi 40694.
ökukennsla — æfingatimar.
Kenni á Mazda 323 árg. 79, ökuskóli og
prófgögn ef óskað er. Nemendur greiða
aðeins tekna tíma. Ingibjörg S. Gunnars-
dóttir, sími 66660.
Ökukennsla — æfingatímar —
bifhjólapróf.
Kenni á Mazda 626 árg. 79. ökuskóli
og prófgögn ef óskað er. Hringdu í síma
74974 eða 14464 og þú byrjar strax.
Lúðvík Eiðsson.
Ökukennsla — æfingatimar.
Kenni á Toyota Cressida og Mazda 626
árg. 79 á skjótan og öruggan hátt. Öku-
skóli og öll prófgögn ef óskað er. Njótið
eigin hæfni, engir skyldutimar, greiðsla
eftir samkomulagi. Friðrik A. Þorsteins-
son, sími 86109.
Ökukennsla-æfingatimar.
Kenni a Mazda 626 hardtop árg. 79.
ökuskóli á vegum ökukennarafélags
Islands og prófgögn fyrir þá sem þess'
ióska. Hallfriður Stefánsdóttir, simi
81349.
ökukennsla, æfingatímar.
Kenni á Cortinu 1600, engir lágmarks-
tímar, nemendur greiði aðeins tekna
tíma. Nýir nemendur geta byrjað strax.
Guðmundur Haraldsson ökukennari,
simi 53651.
Afmæil
Gengið
Endurskin
I skammdegi
Nú i svartasta skammdeginu leggur Slysavarnaféiag
islands enn áherzlu á notkun endurskinsmerkja.
Til að minna á þau vill félagið nota kjördagana sem
i hönd fara með dreifingu limmiða til aö mina alla á að
bera endurskinsmerki. Munu slysavamadeildir og
björgunarsveitir dreifa þessum miöum á flesta
kjörstaði um land allt.
Limmiðarnir, sem bera áletrunin „Endurskin í
skammdegi”, eru ekki sjálfir endurskinsmerki heldur
einungis áminning um að bera slík merki. Allir, sem |
feröast um eftir að dimma tekur eða þegar skyggni er,
slæmt, hafa séð hversu erfitt ei að sjá gangandi veg-
faranda án endurskinsmerkja. Sé það hinsvegar notaö|
gegnir öðru máli. Þá sést vegfarandi mikiðfyrr.
Það er þó ekki nóg að bera endurskinsmerki ef þaðj
sést ekki úr bil sem nálgast vegfaranda. Séj
endurskinsmerkiö aðeins haft á baki cins og er alltof,
algengt þá sézt það ekki þegar gengið er á mótij
umferð, eins og á að gera þar sem eru ekki gagnstéttar.
Merkin þarf að hafa þannig að þau sjáist vel. Einnig
er hægt að fá merki sem eru límd eða saumuð á
flikina. Þá eru það tvö stór merki, sem eru sett á
flikina að aftan og framan svo neðarlega sem auöiö er
og tvö litil sem eru sett fremst á ermarnar. Þar sem þvl
verður við komið verða endurskinsmerkin höfð til
sölu.
Leigjendasamtökin:
Opiðhúsé
laugardag
Leigjendasamtökin halda opið hús i húsakynnum
sinum að Bókhlöðustig 7 kl. 3—6 nastkomandi
laugardag. Georg H. Tryggvason, aðstoðarmaður
félagsmálaráðherra og Jóhanna Sigurðardóttir fv.
alþingismaður mæta og spjalla við gesti.
Ætlunin er aö hafa opið hús næstu iaugardaga og fá
stjórnmálamenn í heimsókn til skrafs og ráðagerða.
Siðastliðinn laugardag mættu Guðrún Helgadóttir,
borgarfulltrúi Alþýðubandalags, og Gerður Steinþórs-
dóttir, formaður Félagsmálaráðs Reykjavíkur.
Fiskiðn heldur
námskeið að
Hótel Loftleiðum
FISKIÐN, fagfélag fiskiðnaöarins, efnir til
námskeiðs að Hótel Loftleiöum, ráðstefnusal, dagana
30. nóvember og 1. desember nk. Á námskeiðinu
verður fjallað um þá rafeindatækni sem nú er að ryðja
sér til rúms innan fiskiðnaðarins. Þessi nýja tækni
mun gjörbylta vinnu- og skráningaraðferðum við
vinnsluna.
Á námskeiöinu verða fluttir fyrirlestrar og tæki
sýnd sem notuð veröa varðandi þessa tækni, sjá
meðfylgjandi dagskrá sem einnig gildir sem boðskort.
Kabarett f Valaskjálf
Laugardaginn 1. des munu Tónkórínn og leikfélagiö
standa fyrir skemmtikabarett i Valaskjálf. Verður
hann með svipuðu sniði og kabarett sá sem áðumefnd
félög héldu fyrir tveimur árum, þaö er að segja söngur
og gamanmál ýmiss konar, frumsamin, stæld og stol-
in. Frægasta fatafella Austurlands mun mæta á stað-
inn og einnig má búast viö aö draugar riði húsum.
Aðstandendur Kabarettsins sjá ekki fram á annað
en að almennt kvöldbann verði að gilda, þannig að
unglingar innan 14 ára aldurs fái ekki aögang nema i
fylgd með fullorðnum.
Gleðin hefst kl. 9 og svo verður dansur aftaná og
mun Slagbrandur stjórna honum. Vonandi geta
Héraðsbúar slitið sig frá einglyminu eina kvöldstund
til að létta skapið í skammdeginu og kosningaslagnum.
Fjöldinn allur af málverkum er geymdur í vel
einangraflri málverkageymslu í kjallara hússins.
Þessar gömlu perlur eru stundum teknar upp og
hafflar til sýnis fyrir almenning á hinum ýmsu
Ævintýramyndir
Ásgríms á haustsýningu
Haustsýning stendur nú yfir í Ásgrimssafni. Er þetta
47. sýning safnsins og er hún helguö bamaári. Á,
sýningunni em sagna- og atburðamyndir. Ásgrimur er
ekki aðeins þekktur fyrir iandslagsmyndir sinar. Hann
teiknaöi líka persónur úr þjóðsögum og ævintýrum |
scm öll börn þekkja. Nokkrar sagnamyndir hans eru
einnig málaðar með olíu- og vatnslitum.
Myndir úr ævintýrum um Hlyna konungsson eru i •
vinnustofu listamannsins. Einig myndin Börn i leik,
sem máluð var frostaveturinn 1918.
Á aðalvegg i vinnustofunni eru sex vatnslitastúdíur
frá árinu 1946, allar úr þjóðsögunum A heimililista
mannsins er sýnirig á teikningum og vatnslita-
myndum, sem allar eru úr þekktum sögum t.d.
Djákninn á Myrká, Tröllin á Hellisheiði, Búkolla,'
Álfakirkjan, Mjaðveig Mánadóttir o. fl.
Þjóðsagnaheimur islenzkra bókmennta var Ásgrími
Jónssyni jafnan mikil uppsprettulind. Má geta þess aö
siðasta verkið sem hann vann, aðeins fjórum dögum j
fyrir andlát sitt, var teikning úr ævintýrinu um Sigurð
konungsson. Listamaðurinn var þá rúmliggjandi á
sjúkrahúsi og gat ekki lokiö við myndina. ■'
Á jólakorti safnaðarins í ár er eftirprentun af vatns |
litamyndinni Á ferð yfir Kaldadal, máluö árið 1922.
Er þaðein af öndvegismyndum safnsins.
Ásgrímssafn, Bergstaðastræti 74 er opið sunnudaga,
þriðjudaga og fimmtudaga frá kl. 1.30—4. Aðgangur
er ókeypis.
Vilhjálmur Ingibergsson húsasmiöur,
Byggðarholti 4Mosfellssveit, er 70 ára í
dag, föstudag 30. nóv. Hann verður að
heiman.
Bjargey Jóhanna Júliusdóttir, Sólvalla-
götu 12 Keflavík, verður jarðsungip frá
Keflavíkurkirkju laugardaginn 1. des.
13.30.
Endurskm
*
í
Kvenfélag
Neskirkju
Kaffisala á kosningadaginn, 2. des., hefst kl. 3 í
safnaðarheimili Neskirkju. Komið og takið úr ykkur
kosningahrollinn um leið og þið styrkið gott málefni.
Tekiö á móti kökum frá klukkan 10 sama dag.
Hlutavelta
Þessir brosmildu snáðar héldu hlutaveltu að
Unufelli um daginn. Þar var hægt að fá kökur, popp
og ýmislegt dót. Þeir heita, talið frá vinstri, Geir
Hilmarsson, 9 ára, Arnar Gunnarsson, 7 ára, og Birgir
Hilmarsson, 7 ára.
Starfsmannafélagifl Sókn
Úthlutun er hafin úr Vilborgarsjóði. Umsóknir berist
skrifstofunni fyrir 10. des.
sýningum Ásgrímssafns. — Þessi mynd var tekin er
DB heimsótti sefnifl fyrír (yeimur árum.
DB-mynd Bjarnleifur.
GENGISSKRÁNING Ferflmanna-
NR. 228 — 29. nóvember 1979 gjaldeyrir
Eining KL 12.00
Kaup Sala Sala
1 Bandarfkjadollar 391.40 392.20 431.42
1 Steríingspund 852.00 853.70* 939.07*
1 Kanadadollar 334.25 334.95* 388.45*
100 Danskar krónur 7523.30 7538.70* 8292.57*
100 Norskar krónur 7825.65 7841.65* 8825.82*
100 Sœnskar krónur 9342.00 9381.00* 10287.10*
100 Finnsk mörk 10451.30 10472.60* 11519.86*
100 Franskir frankar 9552.75 0S72.25* 10529.48*
100 Belg. frankar 1378.65 1381.45* 1519.60*
100 Svissn. frankar 23946.20 23995.10* 26394.61*
100 Gyllini 20114.10 20155.20* 22147.72*
100 V-þýzk mörk 22454.25 22500.15* 24760.17*
100 Lfrur 47.73 47.83 52.81
100 Austurr. Sch. 3112.50 3118.90* 3430.79*
100 Escudos 782.80 784.40* 862.84
100 Pesetar 589.50 690.70* 649.77*
100 Yen 157.09 157.42 173.16
1 Sérstök dróttarróttindi 509.66 510.70*
* Breyting fró sfðustu skráningu. Simsvari vegna gengisskráningar 22190