Dagblaðið - 15.12.1980, Síða 16
16________ DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 15. DESEMBER 1980
REGLUGERÐARAKVÆÐIUM
MERKINGU KJÖ1S BROTIN
Stundum vantar nafn dýralæknis, stundum einnig sláturhafa og oftast nær er ekki tilgreint hvaða ár
varslátrað
,,Það er afar erfitt að tryggja að
fólk fái þaö Ijjöt sem það er að greiða
fyrir og nánast furðulegt hve eftirlit
með sláturleyfishöfuffí er lítið,”
sagði Hrafn Bachmann kjötkaup-
maður er hann á dögunum sýndi
okkur nokkrar miðamerkingar er
fylgja kjöti frá sláturleyfishöfum.
,,í allt of mörgum tilfellum eru
reglugerðarákvæði sem gilda um
þessa hluti brotin, og eftirlitið virðist
nánast ekkert því þetta helduráfram
áreftirár.”
Hrafn sagði að í reglugerð
varðandi nautakjöt og annað stór-
gripakjöt væri ákvæði sem krefðist
þess að merkja ætti sláturár hvers
grips. Undantekningarlítið eða
kannski undantekningarlaust er þetta
ákvæði ekki uppfyllt. Við sáum ótal
merkimiða hjá Hrafni þar sem hvergi
var getið hvenær gripnum hafði verið
slátrað.
Á merkimiða kjöts á að vera nafn
þess dýralæknis sem á að tryggja
gæði kjötsins. Þau sjást ekki nema á
hluta þeirra miða sem stórgripakjöti
fylgja. Til eru dæmi um að á
merkimiðum sé ekki tilgreint nafn
sláturleyfishafa né heldur nafn dýra-
læknis sem skoðað hefur kjötið og á
að tryggja gæði þess.
í reglugerðarákvæðum varðandi
dilkakjöt er ekki skylda, en þó talið
æskilegt, að á merkimiða sé getið um
sláturár dilks eða ær. Þess finnast
sem betur fer dæmi að sláturárið sé
tilgreint en það er ekki í öllum
tilfellum, enda ekki skylda sam-
kvæmt reglugerð.
Varðandi stórgripakjötið kemur
það fyrir að prentuðum merkingum
hefur verið breytt með blýantsyfir-
strikunum. Þannig eru þess dæmi að
á kjöti sem merkt var UN II (þýðir
ungnautakjöt 2. flokkur) hafi annar
leggurinn verið krotaður út og kjötið
þannig gert 1. flokks.
Upp úr öllu þessu kemur að við
verðhækkanir kjöts á þriggja mán-
aða fresti koma margar verðhækk-
anir á gamalt kjöt. Eru þess þannig
dæmi að kindasnitzel og kindabuff,
sem unnið er úr lærvöðvum fyrsta
flokks ærkjöts, þykir gott og er orðið
vinsælt, hafi hækkað um 2500 krón-
ur frá því í mai í vor og koma allar
hækkanirnar á kjöt sem slátrað var
og greitt bónda 1979. Sláturleyfishaf-
inn fær allar hækkanirnar.
-A.St.
Tveir efstu miðarnir til vinstri eru
með nafni sláturleyfishafa og á
miðunum er lika nafn skoðunardýra-
læknis. Á þá báða vantar ártalið. Á
tveimur neðstu miðunum er ekkert
ártal, ekkert nafn dýralæknis og á
öðrum (þeim t.h.) ekki heldur nafn
sláturleyfishafa. Miðinn efst til
hægri er af kindakjötsskrokk frá
Kaupfélagi Borgfirðinga. Þar er um
2. flokks kjöt að ræða, 6. verðflokk.
En á miðanum er nafn dýralæknis og
sláturártal — sem talið er æskilegt á
miða með dilkakjöti en ekki skilyrði
eins og á miðum stórgripakjöts.
Heilbrigðisreglugerðin
bannar einnig
sölu á heimabakstri
Við vöktum athygli á því í
fimmtudagsblaðinu að samkvæmt
lögum er bannað að baka kökur í
heimahúsum og selja. Þórhallur
Halldórsson forstöðumaður
Heilbrigðiseftirlits Reykj avik urborg-
ar vakti athygli okkar á því að þetta
er einnig bannað samkvæmt
heilbrigðisreglugerð borgarinnar.
-A.Bj.
Marengsbotninn á að vera heimatilbúinn en e.t. r. er hœgt aðfá í bakariinu tilbúna
botna með nokkuð háum köntum. DB-mynd Einar Ólason.
ISBOMBA
Með rommbleyttum rúsínum
Einn af þeim ísréttum, sem
komust í úrslitin i uppskriftasam-
‘keppninni hét ísbomba, marengs-
botn með rommrúsinum og ís. Send-
andi var Heiðrún Þorgeirsdóttir,
Keflavik.
Marengsbotn, bakaður með köntum
1/2 glas rúsinur, lagðar f romm
daginn áður
súkkulaðispænir og
1/2 Iftri Emmess isl.
ísinn er hrærður með rúsínunum
og súkkulaði og látinná marengs-
botninn. Skreytt með súkkulaði-
spónum. -A.Bj.
Ódýrt f innskt síróp
f Mosfellssveitinni
Bakararmótmæla
skrifumá
Neytendasíðunni:
Smákök-
urá
40-50 kr
„Mér brá við að lesa á Neytenda-
siðu Dagblaðsins á fimmtudaginn
að í bakaríum séu jólasmákökurnar
„yfirleitt seldar á 180 kr. stykkið”.
Ég trúi ekki að kökur á slíku
brjálæðisverði fyrirfinnist í nokkru
bakaríi. Aðalvertíðin í smákökum
hjá okkur er fyrir jólin. Við bjóðum
10 tegundir og kostar stykkið af smá-
kökum 50 krónur,” sagði Sigþór
Sigurjónsson í Bakarameistaranum,
Suðurveri. Hann vildi koma á fram-
færi athugasemdum við skril
Neytendasíðunnar um smá-
kökubakstur þar sem rangai
upplýsingar sem kæmu þar fram
gætu „skaðað viðskiptin hjá okkur”.
Sigþór sagði að í umræddri greir
væri lika gefið í skyn að bakarat
vönduðu ekki smákökubakstur álíka
og húsmæður í heimahúsum. Sagði
það fjarstæðu: „Bakarar spara
ekkert og vanda mikið til vör.u
sinnar, hvort sem það eru smákökui
eða annað.”
Angantýr Vilhjálmsson i
Bakaranum við Leirubakka benti DB
lika á að hann hefði jafnan á
boðstólum sjö til átta tegundir af
smákökum, sem kosta 40 krónur
stykkið. Smákökurnar í Bakaranum
eru litlar, svona eins og „okkur
finnst að smákökur eigi að vera”.
-ARH.
Við minntumst á hve síróp væri
dýrt i fimmtudagsblaðinu. Tókum
fram að leyfilegt verð væri 2.362 kr.
fyrir 1/2 kg. Kona úr Mosfellssveit
hringdi og sagði að hún hefði keypt
finnskt síróp i Kjörvali og hefði
kgdós af því kostað 1.473 kr. Konan
sagði að þetta væri Ijóst siróp, mjög
gott.
-A.Bj.
Raddir neytenda
Upplýsingaseðill
til samanbutóar á heimiliskostnaði
Hvað kostar heimilishaldið?
Vinsamlcga scndið okkur þcnnan svarscðil. Þannig cruð þér orðinn virkur þátttak-
andi f upplýsingamjðlun mcðal almcnnings um hvcrt sé mcðaltal heimiliskostnaðar
fjölskyldu af sömu stærð og yðar. Þar að auki eigið þér von um að fá nytsamt hcimilis-
tæki.
Nafn áskrifanda
Heimili
Sími
Fjöldi heimilisfólks.
Kostnaður í nóvembermánuði 1980.
Matur og hreinlætisvörur kr.________
Annað
kr.
Alls kr.
m viKiv
i