Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1968, Page 39
41
áburður er aldrei skorinn við neglur árið sem grasfræinu er
sáð, hvað sem kann að vera endranær“. (Ræktun, bls. 135.)
Þegar þessi hlið málsins er athuguð, hver kjör grasfræinu
og sáðgresinu eru búin við nýræktun hér á landi, er sannar-
lega sízt að undra þótt gróðrinum geti orðið hætt við kali,
þegar sækir í það horf um tíðarfar.
Hér er ekki aðeins um að ræða getu túnanna til að gefa
mikið og gott töðufall. Athugum, að þar sem allt er vel í
haginn búið ræta grösin sig auðveldlega vel og til mikillar
dýptar. Vallarfoxgras (Tímótei) er talið til þeirra túngrasa
sem sækja lítt til dýptar með rætur í svörð, þó ganga rætur
þess 12—15 cm í jörð niður, ef allt er í góðu lagi með jarð-
veginn, önnur grös sækja dýpra til fanga. En hvað standa
rætur sáðgrasanna djúpt í sverði í nýræktartúnunum hér á
landi, eins og þau gerast víðast hvar? Mjög víða ekki nema
5—6 cm! Er þetta ekki að bjóða kalinu heiml Það er ekki að
nndra þótt slíkur gróður standi höllum fæti gegn kalhætt-
unni.
Auðsætt er, að rannsóknir á kali og kröfur um betra gras-
fræ leysa ekki þann þátt vandamála ræktunarinnar, sem hér
hefir verið nefndur og lýst nokkuð, það væri óhæfa að ætl-
ast til þess. Hér duga engin vettlingatök, ekkert minna en
að taka upp forvinnslu og forrcektun lands á nýjan leik, áð-
ur en grasfræi er sáð, og með miklu fidlkomnari hætti held-
ur en var, þegar þannig var að unnið um skeið. Um leið
verður að koma búfjdráburði niður í flögin, plcegja hann
niður. Það er plógurinn sem verður að koma við sögu í
ræktuninni, langtum meira en nú tíðkast, einrœði jarðtæt-
aranna verður að víkja, þótt þeir séu góðir — já ágætir —
til síns brúks.
En víða þarf mikils með, til þess að seigt torf fúni og
verði að frjómold, svo mikils, að búast við, að sá björn
verði ekki unninn í einni lotu, með forræktun í 1—2 ár. Vel
má vera að sums staðar reynist heilladrýgst að grasbinda
flögin áður en þau eru orðin fullfúin, áður en landið er
orðið frjó og ræktuð jörð, með það ákveðið í huga að endur-
rœkta túnið eftir nokkur ár.