Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1970, Side 4
aðarfélagið stóð fyrir námsskeiðum fyrir eftirlitsmenn naut-
griparæktarfélaganna víðsvegar að af landinu og voru þau
haldin árlega í Reykjavík á árabilinu frá 1905 til 1919, en
síðan fækkaði þeim smám saman, þar til síðasta námsskeiðið
var haldið árið 1938.
A árunum 1929 til 1933 fjölgar nautgriparæktarfélögun-
um í landinu mjög hratt, og kemur hér aðallega tvennt til:
Ahugi og starfsorka Páls Zóphóníassonar, sem þá hafði fyrir
skömmu tekið við ráðunautsstarfi Búnaðarfélagsins í naut-
griparækt, og svo hitt, að á þessum árum eru stofnuð mjólk-
ursamlög og mjólkurbú, sem auka og bæta markaðshorfur
fyrir mjólk og mjólkurvörur. Þar með vaknar almennur og
sterkur áhugi hjá bændum fyrir aukinni mjólkurframleiðslu
og þar með nauðsyninni fyrir bættum og auknum stofni
mjólkurkúa.
SAMBAND NAUTGRIPARÆKTARFÉLAGA EYJAFJARÐAR
FR S'FOFNAÐ
Haustið 1927, þ. 4. sept., boðaði Kaupfélag Eyfirðinga til
aukafulltrúafundar. Viðfangsefni fundarins var að taka form-
lega ákvörðun um stofnun og starfrækslu mjólkursamlags
á Akureyri. Þessi framkvæmd var þá talin vera mjög nauð-
synleg, bæði í þágu framleiðenda og neytenda á félagssvæði
K. E. A., en mál þetta liafði verið undirbúið í nokkur ár af
stjórn og framkvæmdastjóra kaupfélagsins. Fundurinn sam-
þykkti þessa framkvæmd og gekk formlega frá reglugerð
fyrir mjólkursamlagið.
Á meðan mál þetta hafði verið í undirbúningi, höfðu ey-
firzkir bændur reynt á ýmsan hátt að búa sig undir aukna
mjólkurframleiðslu. Hins vegar gátu þau sveitarfélög, sem
áttu alllangt að sækja til Akureyrar, eins og Árskógsströnd,
Svarfaðardalur og Höfðahverfi, ekki liaft nema lítil not af
þessari nýju stoínun til að byrja með, þar sem nijög skorti
akvegi á þessum slóðum.
Þann 26. marz 1928 tók mjólkurstöðin á Akureyri til
6