Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1970, Side 11

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1970, Side 11
sig, að heildarframfarir kúastofnsins eru í bezta tilfelli til- tölulega mjög hægfara, oft er kyrrstaða og stundum jafnvel bakkippir. Veldur þessu að miklu leyti tilhneiging manna til að nota mest ung, óreynd naut. Þótt sum séu í eðli sínu góð til kynbóta, koma kostirnir jafnaðarlega ekki í ljós fyrr en of seint, þ.e. eftir að þau hafa safnast til feðra sinna. Við þessu er erfitt að gjöra, meðan ekki er unnt að fá nema 50—100 kálfa undan nauti á ári. Þegar fundið er kosta- naut með sannreynda kynbóta eiginleika, og þegar fundin er aðferð, sem gjörir unnt að tífalda árlegan afkvæmafjölda nautsins, þá er fyrst sköpuð skilyrði til þess að framkvæma fljótvirkar og öruggar kynbætur. Þessháttar naut eru nú til í landinu, þótt fá séu, og með sæðingu (tæknifrjóvgun) er hægt að framkvæma síðara atriðið. Hugmyndin um að notafæra sér þennan möguleika hefir verið á sveimi í Eyjafirði urn nokkurt skeið. Forráðámenn S. N. E. héldu málinu vakandi og ólu á áhuga meðlimanna. En með áhuganum einum varð ekki komið upp sæðingastöð. Til þess þurfti líka fé. En S. N. E. átti enga sjóði, en tímamir voru hagstæðir. Búnaðarfélag íslands hafði áhuga á að reyna eina slíka stöð hérlendis. Nú bauð stjórn þess að lána Ey- firðingum einn starfsmann sinn til að koma upp stöðinni og stjórna henni fyrst um sinn. Boðið var þegið. Leitað var til K. E. A. og Eyjafjarðarsýslu og þessum stofnunum boðið upp á þau fríðindi að styrkja gott málefni. Báðar þekktust boðið og veittu kr. 12.500 hvor. Enn var eigi nóg komið. Þá var þess farið á leit við bændur, að þeir hlypu undir bagga. Á mjólkursamlagsfundi var ein- róma samþykkt að láta i/2 eyri af hverjum mjólkurlítra, sem til Samlao;sins kæmi, oanoa til S. N. E. Þetta var alls um 20.000 kr. Nú þótti tiltækilegt að ráðast til framkvæmda. Vinnustofa var útbúin hér á Grísabóli, tæki voru fengin og allt, sem til þarf, svo hægt sé að framkvæma tæknifrjóvgun. Þar á meðal tveir Jeppar, og þann þriðja þarf að fá til vara. — I stuttu máli: Hlutunum var komið í það horf, senr þið sjáið þá í núna. 13

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.