Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1970, Side 62

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1970, Side 62
angri. Samanber það sem þegar hefur verið sagt um tildrög þess, að túnin þarfnast endurvinnslu. Þó hygg ég, að óvíða sé hörgull á slíkum túnum eða nýræktun, sem úrræktast hafa á einn eða annan hátt, svo auðvelt sé, nær undantekn- ingarlaust, að hagnýta búfjáráburðinn í sambandi við end- urræktun, ef ekki skortir plóga og verklega kunnáttu við notkun þeirra, en áburðurinn verður að plægjast niður, ef liann á að koma að tilætluðum notum. Þar duga engin und- anbrögð. Þá er það gildi endurvinnslunnar í sambandi við ástöðu- og yfirborðsvatn. Jarðvegur, sem þétzt hefur af einhverjum ástæðum, hvort sem því veldur of mikil umferð eða léleg eðlisgerð, verður ávalt mjög vatnsheldur. Vatn, sem fellur á yfirborð hans sígur því seint og illa niður. Sama verður auð- vitað ef grunnvatnsstaðan er of há, en hún hækkar oft veru- lega á veturna. Þetta getur haft mjög slæmar afleiðingar, eykur jarðklakann, spillir jarðvegsbyggingunni og stuðlar að langvarandi svellamyndunum á yfirborðinu og eftirfylgj- andi kali. Einhverjum kann að finnast, að þetta skipti ekki miklu máli, því úr því jörð sé freðin á annað borð, þá sleppi hún ekki vatni í gegn um sig. Þetta ætla ég þó mesta mis- skilning. Vel ræstur og vel unninn jarðvegur er sjaldan mettaður af vatni. Hann er því ávallt með nokkurt holrými, og verður því ekki fullkomlega þéttur, þótt hann frjósi. Þar af leiðandi sleppir hann alltaf nokkru vatni í gegn um sig, og því fremur sem hann er gljúpari og lausari í sér. Því ætti endurvinnsla túnanna við og við að geta dregið verulega úr uppistöðu vatns á yfirborðinu, langvarandi áfrera og skemmdum af svellalögum. Þetta gæti verið orsök þess, að sáðsléttur á fyrsta ári virð- ist í ýmsum tilvikum verjast betur kali en eldri sléttur. Sama veldur sennilega því, er sums staðar má sjá í sléttum, sem lokræstar hafa verið með hnausræsunr eða jafnvel kílræsum, að sáðgresið heldur velli yfir lokræsunum, löngu eftir að það er horfið með öllu víðast hvar á milli þeirra. Svipuðum ár- angri mætti ef til vill ná með djúpplægingu, en hún hentar varla við endurvinnslu túnanna. Skýringin á þessu gæti 65

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.