Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1970, Qupperneq 21
TILRAUNIR MEÐ KVÍGUKÁLFA í OPNU HÚSI
Á árunum 1961 til 1963 lét S. N. E. gera tilraunir með upp-
eldi á kvígukálfum við frumstæðan húsakost. Umsjón þess-
ara tilrauna liafði Sigurjón Steinsson ráðunautur, sem þá
var bústjóri á Lundi. Ástæðan fyrir framkvæmd þessarar til-
raunar var sú, að allmargir bændur höfðu áhuga fyrir að
fjölga nokkuð kúm sínum, en fjóspláss voru víða ekki nægj-
anleg fyrir aukið uppeldi og fjósbyggingar kostnaðarsamar
framkvæmdir. Auk þessa benti margt til, að uppeldi ung-
viðahópa gæti vel heppnast í ódýrum og einföldum húsum
og við opnar dyr, ef vissum reglum væri fylgt.
Tilraunir þessar fóru fram í gömlum herbragga á Rangár-
völlum og hófst fyrri tilraunin í maímánuði 1961 og stóð
yfir í 12 mánuði. Keyptir voru 16 kvígukálfar, sem voru frá
7—10 daga gamlir. Húsplássið var aðeins 28 m2 þar sem kálf-
arnir voru látnir ganga lausir, en auk þess höfðu þeir aðgang
að 50 m2 hlaupagarði við suðurhlið braggans. Hreysti og
vaxtarauki kálfanna á tilraunaskeiðinu reyndist í bezta
lagi þegar miðað var við aðra tilraunakálfa, sem á svipuðum
tíma voru aldir í bragga á Grísabóli við allt aðrar, hlýrri og
betri aðstæður.
Hin tilraunin var mjög hliðstæð og liófst haustið 1962 og
var lokið eftir f2 mánuði eins og sú fyrri. Hún fór fram í
sama húsi og við sömu aðstæður og fóðrun. Munurinn var
aðeins sá, að þessi tilraun hófst að haustinu, en ekki að vor-
inu eins og sú fyrri, því kanna þurfti hvernig þessir kálfar
þyldu vetrarkulda á þessu aldursskeiði. Niðurstaða þessarar
tilraunar var næstum alveg hin sama og var á vorkálfunum,
að því er varðaði hreysti og þroska. Niðurstaðan af þessum
tilraunum með kálfauppeldi í opnu húsi bæði vetur og
sumar virðist geta verið lærdómsrík fyrir bændur, sem
stunda nautgriparækt sem aðalbúgrein.
Sigurjón Steinsson, sem annaðist þessa tilraun, gerði
ýtarlega grein fyrir framkvæmd og niðurstöðu tilraunar-
innar í Ársriti Ræktunarfélagsins 1964.
23