Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1970, Page 10
Fyrsti sœðingarkálfurinn.
frá áramótura 1947 voru sæðingagjöldin ákveðin kr. 40,00
fyrir hverja kú félagsmanns, er skilaði skýrslum yfir kýr sín-
ar, en kr. 50,00 fyrir kú þeirra, sem ekki voru félagsmenn í
nautgxiparæktarfélagi.
Fyrsti kálfurinn, sem getinn var með þessari tæknifrjóvg-
un hér í Eyjafirði var steingrá kvíga, fædd á Ytri-Varðgjá þ.
23. jan. 1947. Stofnun og starfræksla þessarar fyrstu sæðinga-
stöðvar á Islandi vakti talsverða athygli víða um land, og í
janúarmánuði 1947 komu blaðamenn frá tímaritinu „Sam-
vinnan“ í heimsókn í sæðingastöðina að Grísabóli og fengu
þar viðtal við forstöðumann hennar, Hjört E. Þórarinsson,
ráðunaut. Þetta viðtal, sem var mjög fræðandi um aðdrag-
ana og byrjun á rekstri sæðingastöðvar S. N. E., birtist í marz-
hefti Samvinnunnar 1947 og var svohljóðandi:
„Síðan eyfirzkir bændur tóku að byggja afkomu sína að
miklu leyti á mjólkurframleiðslu, hefir mikil og stöðug
áherzla verið lögð á kynbætur nautgripa. Árangurinn hefir
líka verið mikill, eins og samanburður við eldri skýrslur
sýna glöggt. En eins og allstaðar annarsstaðar hefir það sýnt
12