Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1970, Side 16
aðferð dæmdist því úr leik og varð að finna aðra fljótvirkari
og öruggari til þess að geta dæmt eiginleika og erfðaeðli
nautanna á meðan þau væru tiltölulega ung og í fullu I jöri.
Slík rannsókn virtist ekki vera framkvæmanleg nema með
stofnun og rekstri sérstakrar búfjárræktarstöðvar þar sem
fyrrgreind rannsókn gæti farið fram, en síðan aðeins valin
til notkunar þau naut, sem örugglega byggju yfir góðum
erfðaeiginleikum.
Árið 1954 fór fram allnákvæm athugun varðandi heppilegt
staðarval fyrir þessa tilraunastöð, sem nauðsynlegt þótti að
byggja og starfrækja í þessu sambandi. En allt frá fyrstu
starfsárum S. N. E. hafði fjárhagurinn jafnan verið þriing-
ur, en þó höfðu ekki safnast verulegar skuldir. Nú var rekst-
urinn hins vegar farinn að ganga betur, og rekstursreikn-
ingur ársins 1953 sýndi, í fyrsta sinn í 24 ár, að um nokkurn
rekstursafgang var að ræða og virtist því vera bjartara fram-
undan.
í ársbyrjun 1955 ákvað stjórn S. N. E. að kaupa býlið
Lund við Akureyri ásamt Rangárvöllum, sem var gamalt
eyðibýli í nágrenni Lunds. Eftir að þessi ákvörðun hafði
verið samþykkt á aðalfundi þ. 10. maí sama ár var gengið
formlega frá kaupunum og skyldi eignin afhent vorið 1956.
Tilraunastöð þessari var þegar valið nafnið: Búfjárrœktar-
stöðin i Luncli. Jafnframt þessu var ákveðið hvaða ungnaut
skyldu fyrst tekin til prófunar og urðu fyrir valinu nautin:
Völlur N. 180 og Ægir N. 181. I þessu sambandi voru gerðar
viðeigandi ráðstafanir, því haustið 1955 var safnað saman
úr héraðinu 38 vikugömlum kvígukálfum undan þessum
nautum og þeir teknir til uppeldis í gömlum bragga að
Grísabóli, sem innréttaður hafði verið til þessara nota. En
uppeldi kvíganna tekur tvö ár, en þá bera þær sínum fyrstu
kálfum og mjaltaskeið þeirra hefst, en það stendur yfir að
jafnaði um 300 daga. Að mjaltaskeiðinu loknu er dæmt um
mjólkurhæfni kvíganna og þar með um erfðaeiginleika til-
raunanautanna.
Með þessari framkvæmd voru loks hinar margumtöluðu
tilraunir hafnar og hafa þær verið gerðar stöðugt síðán, eða
18