Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1970, Side 42
fjárræktarfélaginu „Þistli“. Haustið 1963 var Spakur sýnd-
ur þar þriðja sinni með afkvæmum og hlaut þá í þriðja
sinn I. verðlaun. Þá voru á skýrslum undan honum 37 ær,
þar af 14 2ja vetra. Af þeim voru 70,3% tvílembdar og skil-
uðu þær um 30,2 kg af kjöti. Á Hesti í Borgarfirði hafa dæt-
ur Spaks 73 reynzt mjög góðar afurðaær, en á þeim hafa
orðið nokkuð meiri vanhöld en eðlilegt má telja. Ennfrem-
ur má geta þess, að Bíbí 16, móðir Spaks, var ágætlega frjó-
söm og góð mjólkurær.
Þokki 33 var fæddur í Holti í Þistilfirði. Hann var sonur
Hnattar 60. Móðir hans var Hnúta 929, dóttir Pjakks 31.
Hnúta 929 var frjósöm ær, var 6 sinnum tvílembd og tvisvar
einlembd. Hún var í meðallagi afurðasöm, en lömb undan
henni skárust vel. (Meðalkjöt % lamba 43). Undan henni
voru aldar 6 ær, þar af voru 3 dætur Hnattar 60 og því al-
systur Þokka.
Þokki var í eigu Sauðfjárræktarfélags Núpsveitunga þar
til liann fór að Lundi. Hann gaf þar lömb, sem lágu yfir
meðaltal í vænleika, en mjög fáar dætur hans er þar að
finna á skýrslu. Þær fáu sem finnast, virðast mjög frjósamar,
en ekki sérlega afurðamiklar. Þokki er síðan notaður á sæð-
ingarstöð í 5 vetur og munu hafa fæðzt undan honum fleiri
lömb en nokkrum öðrum íslenzkum hrút, og er hann tví-
mælalaust langmesti hrútafaðir á Islandi til þessa.
Fjórði hver veturgamall hrútur, sem fyrstu verðlaun hlaut
á starfssvæði sæðingarstöðvarinnar haustið 1966, var sonur
Þokka. Niðurstöður þær, sem hér birtast, benda til þess, að
dætur Þokka séu ekki meira en meðalær til afurða. Þó
reynast þær betur en meðálær á Hesti í Borgarfirði og mjög
farsælar. Sérstaka athygli vekur hin mikla frjósemi þrevetl-
anna vorið 1969.
Gyllir 104. Gyllir 104 var frá Syðra-Álandi og hafði verið
notaður þar nokkuð áður en hann kom á sæðingarstöðina.
Mcðir Gyllis, Gullhúfa 70, var sæmileg afurðaær, en ófrjó-
söm og sömu sögu er að segja um dætur hennar, sem er að
finna á skýrslu í „Þistli". Dætur Gyllis á skýrslum sauðfjár-
ræktarfélaganna eru það fáar, að þær veit engar upplýs-
45