Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1970, Page 51
meðaltalsins fyrir söluhæfar kartöflur úr reitum, sem ekki
höfðu fengið bóráburð 10,6 og fyrir þá, sem bóráburð fengu
8,2 eða að meðaltali 9,4. Ef sú tala er borin saman við upp-
skeruaukann 34 hkg/ha sést, að hann er 3,6 sinnum stærri
en meðalskekkjan á meðaltalinu, en samkvæmt því eru
meir en 99% líkur, að uppskeruaukinn sé að einhverju leyti
vegna mismunar í meðhöndlun, þ. e. að borinn var á bór-
áburður. Verður því að telja sæmilega að því sönnur færðar,
að um bórskort hafi verið að ræða í téðum kartöflugarði í
Hrafnagilshreppi.
í töflu 3 má einnig sjá, að smælki er nokkru minna, þar
sem borið var á bór. Er sá munur þó tæplega raunhæfur.
Sem heildarhluti af uppskerunni er þó smælkið nokkru
minna, þar sem bór var áborið, eða 14,3% á móti 18,0%
á bórlausu reitunum.
F.ins og fyrr er frá greint í pistli þessum voru áberandi
Tafla 4. Nokkur atriði um veðurfar á Akureyri sumurin
1968 og 1969.
1968
Mánuður Meðal- Raka- Úrkoma Lægsta Fjöldi
hiti stig mm lágmark frostnótta
Jání 7,4 79 45,8 -t- 3,0 12
JáH 11,4 77 20,0 -t- 3,5 5
vgúst 10,2 76 25,1 -i- 3,6 1
September 8,0 86 16,5 -i- 2,4 4
Mánuður 1969
Júní 9,7 82 19,4
júlí 9,6 87 48,4 -f- 2,0 1
Ágúst 11,6 82 39,5 0,6 0
September 6,1 83 19,0 -4- 6,4 13
54