Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1970, Page 59
lega. Sama gilclir ef gera þarf verulegar umbætur á fram-
ræslu, sem hefur uppgröft í för með sér, eða ef flytja þarf til
jarðveg til þess að breyta halla sléttanna og auðvelda af-
rennsli yfirborðsvatns.
3. Langvarandi notkun túna til beitar, veldur oft smáþúfu-
myndun og veridegri rýrnun á afrakstri, sem varla verður
úr bætt nema með endurvinnslu beitarlandsins, en beit á
túnum er nú orðin næsta algeng, þar sem kúabúskapur er
stundaður og reyndar líka hjá sauðfjárbændum. Má í því
sambandi benda á, að endurvinnsla gæti hamlað nokkuð
gegn mengun af innýflaormum, sem oft getur orðið mikil
í bithaga.
4. Samanþjöppun jarðvegsins með þungum viiltum eða
vélaumferð á öllum tímum árs, getur valdið stórfelldum
vaxtartruflunum og uppskerurýrnun. Þetta skeður helzt í
leirkenndum jarðvegi, flagmóa- og fokjarðvegi. Oft verður
ckki bætt úr þessu ástandi nema með endurvinnslu.
5. Rotnun rætins jarðvegs, svo sem mýrajarðvegs, er mjög
hægfara hér á landi, en hún er forsenda þess, að frjóefni
jarðvegsins nýtist, og að hann verði hagkvæmur vaxtarstað-
ur túngrérðurs. Ástæðan fyrir því hve myldingin er hæg hér,
er auðvitað kalt og rakt veðurfar. Helzta ráðið til að flýta
molnun jarðvegsins er að bylta honum við og við, og láta
hann liggja í plógstrengjum veturlangt. Við það myldist
torfið, frjóefni losna úr torleystum samböndum, og vatn og
loft fær greiðari leið um jarðveginn.
6. Smáverugróður jarðvegsins flýtir venjulega mjög fyrir
myldingu hans, en búfjáráburður, sem plægður er niður í
moldina, eykur mjög smáverugróðurinn. Auk þess fæst á
þennan hátt allt að þrefaldur árangur af búfjáráburðinum,
samanborið við yfirbreiðslu. Þetta eitt ætti í raun og veru að
vera nóg til þess að réttlæta endurvinnslu túnanna.
7. Við rannsóknir á kali, virðist meðal annars hafa komið
í Ijós, að nýjar sáðsléttur, þ. e. á fyrsta ári, verjast betur kali
heldur en eldri sléttur. Talið er, að til þessa geti legið líf-
eðlisfræðilegar orsakir, en ég hefd að skýringin geti verið
miklu einfaldari. Sem sé sú, að yfirborðsvatnið sígur því
62