Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1970, Side 85

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1970, Side 85
Hverjar eru helztu lausnir á ofangreindum atriðum? — Lausnir hafa eflaust ætíð sinn aðdraganda, en iagfæringar ættu að geta komið fljótlega ef áhugi er fyrir hendi. f. í fyrsta fagi yrði afleiðingin af því, sem sagt hefur verið, ef af yrði, sú að fjöfga þyrfti starfsmönnum búnaðar- sambanda. Það er mitt mat, að hver ráðnautur geti ekki kom- izt yfir að sinna fleiri bændum en hundrað. Þá er meiningin, að ráðunauturinn leiðbeini alhliða, t. d. bæði jarðrækt og búfjárrækt. Með þessu fyrirkomulagi yrði samstarfið við bændurna nánara og þekkingin notfærðist betur, heldur en ef ráðunauturinn leiðbeindi á vissu sviði og þyrfti þá að heimsækja fleiri hændur. Þetta fyrirkomulag lækkaði ferða- kostnað, eða öllu lieldur gerði hann minni. 2. Æskilegt er, að ráðunauturinn hafi búsetu sem næst því svæði, sem hann starfar, og haga starfssvæðaskiptingu þannig, eftir því sem við verður komið, að búskapurinn sé sem líkastur innan livers svæðis. Þó gert sé ráð fyrir veru- legri skiptingu, þá er auðvitað áríðandi, að ráðunautar vinni saman og hafi samvinnu sín á milli í mörgum atriðum. — F.kki væri óeðlilegt, að Ræktunarfélag Norðurlands yrði tengiliður í málefnum leiðbeiningaþjónustunnar hér á Norðurlandi og annaðist jafnvef yfirstjórn þessara mála. — Tækist þetta, ætti að skapast meiri festa í störfum og árangur að verða meiri en ella. Með það í huga, sent áður hefur verið sagt, og miðað við starfskrafta, sem nú eru, þarf að bæta við 6—7 mönnum hér á Norðurlandi. 3. Það sem fyrst kemur tif, ef af þessu yrði, er að afla fjár. Þarna er auðvitað nokkur vandi úr að bæta, en ef það er rétt að fara inn á þessa braut, og áhugi fyrir að leysa verkefnið, virðist fjárhagsvandinn ekki vera óyfirstíganlegur. 4. Ef lagt er til grundvallar, að hver maður kosti kr. 500.000,00, hugsa ég mér vandann leystan í aðalatriðum með þessu: a) Ríkið greiði 65%. b) Árgjald til hreppabúnaðarfélaga frá hverjum bónda 88

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.