Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1980, Síða 7
leiðbeiningum byggðum á þekkingu er aflað væri innanlands.
Þessu máli hafði nokkuð verið hreyft og líklega fyrst árið 1921,
en síðan við ýmis tækifæri, þó einkum á búnaðarþingum.
Ef til vill hefur Guðmundi verið í minni hinn langi að-
dragandi að stofnun búnaðarskólanna á sínum tíma, þegar
hann lagði á það allt kapp að hefjast handa við starfrækslu
slíkrar deildar, við lítil efni og þröngan kost haustið 1947. Eitt
ráðherrabréf var fyrirliggjandi sem starfsheimild fyrir þessu
námi, að öðru leyti voru ekki nein fyrirmæli um deildina frá
opinberum aðilum.
Hið almenna búnaðarnám var í nokkuð föstum skorðum
þessi ár, verknám smá minnkaði og það varð algengara að
nemendur lykju skólanum á einu ári. Búnaðarnáminu var
síðan breytt í eins árs nám árið 1969 og inntökukröfur auknar.
Megin viðfangsefni í skólastjóratíð Guðmundar var því
baráttan fyrir tilvist æðra búnaðarnáms á Hvanneyri. Má
segja að það hafi verið stöðugt stríð, sem háð var á mörgum
vígstöðvum, einkum innanlands, en þó einnig erlendis.
Þessu uppbygggingarstarfi tengdust margir þættir. Má þar
nefna heimildir til að ráða fleiri starfsmenn, efling rannsókna
og tilraunastarfsemi á staðnum, uppbygging námsbrautar-
innar, undirbúningur nemenda, viðurkenning að námi loknu
svo eitthvað sé nefnt.
Skortur á flestu þessu var talið starfsemi deildarinnar til
foráttu.
Guðmundur vann að þessu verkefni á fleiri vígstöðvum
samtímis. Tilraunastarfsemi hlaut fastan sess í starfi skólans
með tilkomu tilraunastöðvar í jarðrækt skömmu eftir 1950.
Efnarannsóknarstofu var komið á fót árið 1958. Árið
1960 leita fyrstu nemendur deildarinnar erlendis til fram-
haldsnáms. Áður höfðu nokkrir dvalist úti til skemmri dvalar.
Þótti þá sumum keyra um þverbak ofdirfsku þessa skóla að
telja afsprengi sín hæf til átaka í háskólum erlendis.
Það fór þó þannig að þessir nemendur stóðu sig með mikilli
prýði og nú hafa allmargir lokið framhaldsnámi erlendis að
loknu kandidatsprófi frá Hvanneyri.
Þess er áður getið að bókaútgáfa hafi fyrst verið reynd hér
9