Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1980, Blaðsíða 116
ar. Skýrði hann frá því, að farið htfði verið fram á það við
áburðarverksmiðjuna að hún setti bæði brennistein og
kalk í allar áburðarblöndur. Jóhannes ræddi um þjónustu
við bændur utan félagssvæðisins og hvort setja ætti upp
hærra verð fyrir þá þjónustu heldur en til félagsmanna.
Bjarni Guðleifsson útskýrði nánar tilraunir sínar þar
sem framkalla átti kal með svellalögum. Þá gat hann
einnig um skjólbeltatilraunir í Eyjafirði.
Guðmundur Þórisson átaldi landnámsstjóra fyrir
upplýsingar um heyverð er hann nýlega gaf fjölmiðlum og
vildi að fundurinn ályktaði um málið.
Fundarstjóri bar nú reikningana upp til atkvæða og
voru þeir samþykktir samhljóða.
5. Jóhannes Sigvaldason sagði frá ferð sinni til Noregs nú í
sumar. Með honum i för voru Björn Sigurbjörnsson, Bjarni
Arason og Magnús B. Jónsson. Ferðuðust þeir um Norð-
ur-Noreg og heimsóttu tilraunastöðvar, bændaskóla og
bændabýli. Kynntu þeir sér tilraunir og tilraunaniður-
stöður og fræddust um leiðbeiningarþjónustuna og land-
búnaðarstefnuna. Sýndi Jóhannes fjölda mynda máli sínu
til skýringar og svaraði mörgum spurningum er fundar-
menn beindu til hans jafnóðum.
6. Eftirtaldar nefndir voru skipaðar á fundinum:
Fjárhagsnefnd: Sigurður Líndal, Sveinn Jónsson, Ólaf-
ur Þórarinsson, Teitur Björnsson, Jóhannes Torfason og
Björn Þórðarson.
Allsherjarnefnd: Ari Teitsson, Guðmundur Þórisson,
Jóhann Guðmundsson, Stefán Flalldórsson, Þorsteinn
Davíðsson, Ævarr Hjartarson, Ragnar Eiríksson, Guð-
bjartur Guðmundsson og Guðmundur Helgi Gunnarsson.
7. Jóhannes Sigvaldason las upp og lagði fram fjárhagsáætl-
un Ræktunarfélags Norðurlands fyrir árið 1980. Vísað til
fjárhagsnefndar. Þórarinn Lárusson lagði fram erindi um
nýbreytni í leiðbeiningarstarfi Ræktunarfélags Norður-
118